Prenta síðu

Lesa frétt

2. mars 2008

„Að lifa af landsins gæðum“ - Búnaðarþing 2008

Mynd með frétt

Búnaðarþing verður sett með hátíðlegri athöfn í Súlnasal Hótels Sögu sunnudaginn 2. mars kl. 13:30. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, flytur ávarp en yfirskrift setningarathafnarinnar verður „Að lifa af landsins gæðum“. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, flytur hátíðarræðu og Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ávarpar samkomuna auk þess að veita árleg landbúnaðarverðlaun.

Blásarakvintett Reykjavíkur kemur fram og Grundartangakórinn syngur nokkur lög. Meðal gesta verður Ib W. Jensen varaformaður dönsku bændasamtakanna. Aðgangur er öllum opinn og í boði eru kaffiveitingar.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi