Prenta síðu

Lesa frétt

11. maí 2010

Frá hrossaræktarráðunauti Bændasamtaka Íslands

Sýningar kynbótahrossa eru í gangi þessa dagana víða um land. Afföll hrossa af sýningunum eru talsverð vegna hrossapestarinnar sem hrjáir hrossastofninn. Ekki þótti fært að seinka  sýningunum með því hefði verið brotið á rétti þeirra sem ekki hafa fengið veikina í sín hross og voru tilbúnir til leiks á áður auglýstum sýningartímum.

Til að taka af allan vafa um hvernig þær auka kynbótasýningar sem hugmyndir hafa verið viðraðar um, eru hugsaðar, er rétt að eftirfarandi sé haft í huga.

Aukasýningarnar eru eingöngu ætlaðar fyrir þau hross sem ekki hafa mætt á aðrar sýningar vorsins. Á þetta jafnt við um hross sem skráð voru á þær sýningar eða ekki. Ekki verður krafist neinna læknisvottorða, öll hross sem af einhverjum ástæðum hafa ekki komið til dóms eru velkomin á þessar sýningar.

Þessi fyrirvari á rétti til þátttöku er einvörðungu settur vegna tímaleysis en ómögulegt er að dæma á þeim dögum sem um er að ræða nema fáein hundruð hrossa.

Þeir dagar sem um gæti verið að ræða fyrir þessar sýningar, ef af verður, eru 14 – 16 júní, nær landsmóti er ekki fært að fara vegna sýningarskrár og útreiknings á kynbótamati sem grundvallar verðlaun fyrir afkvæmahesta.

Þeir staðir sem ég hef í huga fyrir þessar sýningar, á þessari stundu, eru Víðidalur í Reykjavík og Sauðárkrókur. Þegar nær dregur verður þó metið hvort víðtækara sýningarhald þarf að koma til.

Ég vænti þess að allir muni leggjast á eitt svo þessi sýningarmáti megi ganga upp að þessu sinni og með þessu móti verði fleirum gert fært að spreyta sig við landsmótslágmörkin.

Enn og aftur skora ég á knapa og umráðamenn að koma ekki með veik hross til dóms, heldur sjá til hvort ekki rætist úr með hækkandi sól.

Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi