Prenta síðu

Lesa frétt

27. febrúar 2008

Óska eftir tilboðum í uppbyggingu háhraðanettenginga

Verkefnið felur í sér stuðning vegna viðbótarkostnaðar við uppbyggingu á háhraðanettengingum á skilgreindum stöðum, þ.e. lögheimilum með heilsársbúsetu og fyrirtækjum með starfsemi allt árið þar sem háhraðanettengingar eru hvorki í boði né fyrirhugaðar á markaðslegum forsendum.

Um er að ræða verkefni sem tryggir íbúum á ofangreindum svæðum háhraðanettengingar og tilheyrandi þjónustu til ársins 2014 hið minnsta.
Tilboð verða metin út frá m.a. hraða uppbyggingar, gagnaflutningshraða og tilboðsfjárhæð.

Um Fjarskiptasjóð
Fjarskiptasjóður var stofnaður með lögum um fjarskiptasjóð, nr. 132/2005. Hlutverk hans er meðal annars að styðja við uppbyggingu fjarskiptakerfa á svæðum þar sem fjarskiptafyrirtæki hafa ekki treyst sér í uppbyggingu á markaðslegum forsendum.

Kynningarfundur vegna útboðsins verður haldinn þriðjudaginn 11. mars nk., kl. 13:00.

Frestur til að skila inn tilboðum er til kl. 11:00 fimmtudaginn 31. júlí 2008.

Útboðsgögnin verða til sölu hjá Ríkiskaupum frá miðvikudeginum 27. febrúar nk.

Sé óskað eftir nánari upplýsingum eða frekari skýringum, skal senda Ríkiskaupum skriflega fyrirspurn eigi síðar en 24. júlí 2008.

Fyrirspurnin skal merkt: Útboðsfulltrúi Ríkiskaupa v/14121 Háhraðatengingar (myndsendir: 530 1414 eða netfang: utbod@rikiskaup.is). Öllum fyrirspurnum verður svarað eigi síðar en 27. júlí 2008.

/ www.rikiskaup.is



Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi