Prenta síðu

Lesa frétt

3. nóvember 2009

Neisti

Mynd með frétt

Neisti er fæddur hjá Ragnari á Heydalsá vorið 2006 Hann er sonur Boga 04-814 en móðurfaðir hans Kútur 03-937, sem því miður notaðist aðeins eitt ár á sæðingastöð, en er að verða með meiri ættfeðrun hjá kollótta fénu í landinu í dag.

Neisti vakti strax athygli veturgamall haustið 2007 þegar hann skákaði föður sínum í stórri afkvæmarannsókn á búinu og haustið 2008 sýndi hann einnig umtalsverða yfirburði í rannsókninni á búinu þá og stóð þá næstur föður sínum. Í rannsókninni haustið 2009 mætti hann enn með mjög öflugan lambahóp og á því fullt erindi sem stöðvarhrútur og fetar þannig slóð föður síns. Vegna fyrri reynslu er Neisti kominn með mjög marktækt BLUP mat um kjötgæði sem er 122,6 og skiptist sem 127 fyrir fitumat og 116 fyrir gerð. BLUP mat fyrir afurðaeiginleika dætra er 108 fyrir mjólkurlagni og 104 fyrir frjósemi, en frjósemi dætra hans á Heydalsdá vorið 2009 var mjög nálægt meðaltali. Neisti er hvítur og kollóttur, bollangur og vel gerður hrútur.

Neisti - ættarskrá.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi