Prenta síðu

Lesa frétt

5. október 2009

Sokki

Mynd með frétt

Sokki er fæddur vorið 2007 á Brúnastöðum í Fljótum. Faðir hans er Kækur 03-961, sem var því miður lítið notaður meðan hann var á stöð, en reynsla af afkvæmum hans bendir til að hann hafi verið mjög öflugur kynbótahrútur. Móðir hans Hvísl 02-268 var dóttir Hvanna 01-030 sem var öflugur hrútur á Brúanstöðum, undan Austra 98-831, en móðurmóðurfaðir Sokka er Prúður 94-834. Rétt er að benda á að nú koma í fyrsta skipti hrútar úr Skagafirði á stöðvarnar.

Sokki vakti athygli haustið 2008 fyrir fádæma gott kjötmat sláturlambanna undan honum, fyrir gerð, og fyrstu niðurstöður benda til að hann endurtaki leikinn nú í haust. BLUP mat hans fyrir gerð í kjötmatinu er 144 og 97 fyrir fitumat eða 115,8 fyrir kjötgæði. Vænleiki lambanna undan Sokka haustið 2008 var nánast nákvæmlega á búsmeðaltali haustið 2008. Móðir Sokka var frjósöm og farsæl afurðaær. Vegna ungs aldurs er engin reynsla fengin um dætur hans enn. BLUP matið fyrir afurðaeiginleikana er því að öllu leyti ætternismat en þar er hann með 108 í mati bæði fyrir mjólkurlagni og frjósemi dætranna.

Sokki er svartflekkóttur að lit og hyrndur. Hann er með fádæmum breiðvaxinn og vöðvafylltur en bollengd í tæpu meðallagi.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi