Prenta síðu

Lesa frétt

17. september 2009

Frjósemi hjá dætrum sæðingastöðvarhrúta vorið 2009

Mynd með frétt

Frjósemi ánna er sá eiginleiki sem mestu ræður um afkomu sauðfjárbúanna. Nú eru tölur úr skýrsluhaldi sauðfjárræktarinnar frá vorinu 2009, að mestu komnar í hús. Tekin hefur verið saman tafla um frjósemi dætra sæðingastöðvarhrútanna vorið 2009 á sama hátt og á síðasta ári. Þetta yfirlit er um þrjá yngstu árganga ánna. Þessa töflu má skoða hér.

Ástæða er til eins og áður að hvetja til ákveðinnar varfærni í að draga stórfelldar ályktanir út frá þessum niðurstöðum, þó að í þeim séu verulegar upplýsingar. Hér er aðeins um að ræða beinar meðaltalstölur fyrir allt landið og mismunandi dreifing dætrahópanna eftir landsvæðum getur haft einhver áhrif.

Ekki verður hér fjallað um niðurstöður fyrir einstaka hrúta, lesendum er eftirlátið að draga þar sínar ályktanir. Einnig er rétt að minna á að fyrir suma hópa þarna er um að ræða dætur á heimabúi áður en viðkomandi hrútur var fluttur á stöð. Áhugasamir lesendur þekkja það auk þess sem það má lesa út frá fjölda dætra í hópunum. Þá er ástæða til að vekja athygli á hve gríðarlega stórir sumir af þessum systrahópum eru. Þannig eru þeir kapparnir Kveikur 05-965 og Raftur 05-966 hvor um sig með upplýsingar fyrir meira en þúsund dætur þó að enn séu aðeins veturgamlar og tveggja vetra dætur þeirra úr sæðingum komnar í framleiðslu.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi