Ráðstefna um Sauðárkrókshrossin -21. mars
Sögusetur íslenska hestsins stendur fyrir ráðstefnu um Sauðárkrókshrossin, laugardaginn 21. mars 2009. Á ráðstefnunni verða flutt fróðleg erindi um Sauðárkróksræktunina, áhrif hennar á íslenska hrossastofninn og brautryðjandann Svein Guðmundsson. Ráðstefnan fer fram í Frímúrarahúsinu, Borgarmýri 1 á Sauðárkróki og hefst kl. 13.00.
Fundarstjóri: Víkingur Gunnarsson
Dagskrá:
13.00 Setning
13.15 Guðlaugur Antonsson: Sauðárkrókshrossin í 70 ár
14.00 Bjarni Þorkelsson: Kostir og gallar Sauðárkrókshrossa - átök ræktanda og ráðunautar
14.30 Ágúst Sigurðsson: Áhrifamiklir einstaklingar úr Sauðárkróksræktuninni. Tölfræðileg greining á helstu ættfeðrum
15.00 Kaffi
15.30 Ingimar Ingimarsson: Ræktandinn og hestamaðurinn Sveinn Guðmundsson
16.00 Guðmundur Sveinsson: Bústang hversdagsins
16.30 Umræður
17.00 Veitingar
Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis