Prenta síðu

Lesa frétt

13. mars 2009

Málþing um ágrip á Hvanneyri - 13. mars

Í undirbúningi er málþing um leiðir til að koma í veg fyrir ágrip og aðra áverka við sýningar hrossa. Málþingið er haldið á vegum félagasamtaka í hrossarækt og hestamennsku, auk landbúnaðarháskólanna og Matvælastofnunnar. Málþingið mun fara fram á Hvanneyri föstudaginn 13. mars nk. frá kl. 17-20. Skráning fer fram hjá LbhÍ í síma 433 5000 eða á netfanginu endurmenntun@lbhi.is.

Á málþinginu munu knapar, fræðimenn, sýningastjórar, járningamenn og dýralæknar fjalla um ágrip og áverka, hugsanlegar orsakir og leiðir til úrbóta. Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ, mun flytja inngangsávarp og Ágúst Sigurðsson mun stýra málþinginu. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 11. mars nk. en málþingið er öllum opið og hestamenn úr öllum áttum eru hvattir til að mæta.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi