Prenta síðu

Lesa frétt

5. febrúar 2009

Alþjóðlegt samstarf um DNA ætternisgreiningar á íslenska hestinum

Vinnufundur um DNA ætternisgreiningar á íslenska hestinum var haldinn 13. janúar sl. í Bændahöllinni í Reykjavík. Fyrir fundinum stóðu Bændasamtök Íslands og var tilgangur fundarins að finna bestu leiðir til að koma á samvinnu milli rannsóknarstofa milli landa og tryggja alþjóðlega samræmingu niðurstaðna. Til fundarins voru boðaðir fulltrúar þeirra rannsóknarstofa sem eru byrjaðar að skila inn gögnum í WorldFeng en ætlunin er síðan að fleiri rannsóknarstofur komi að verkefninu þegar tekist hefur að ná betur utan um verkefnið.


Þátttakendur á fundinum í Reykjavík voru fulltrúar frá rannsóknarstofunum Prokaria (Matís) á Íslandi, Tilraunarstöðvar HÍ á Keldum, SLU í Svíþjóð og Blodtypelaboraratoriet for heste í Danmörku. Jafnframt voru á fundinum Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur, Þorberg Þ Þorbergsson, þróunarstjóri WorldFengs og Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tölvudeildar Bændasamtakanna, sem stýrði fundinum. Að sögn Jóns Baldurs tókst fundurinn vel og ljóst að áhugi á viðfangsefninu var mikill. Nokkrum málum var vísað til ársfundar FEIF í Hamborg 27. febrúar til 1. mars nk. til að fá fram skoðun ræktunarleiðtoga aðildarlanda FEIF á ýmsum álitamálum sem fræðimennirnir vöktu máls á. Það verður síðan stefnt að öðrum fundi þar sem fulltrúar rannsóknarstofa í öðrum löndum verða boðaðir, sem hafa áhuga á samstarfi í samvinnu við aðildarfélag FEIF í viðkomandi landi.


Á myndinni má sjá frá vinstri: Elin Sørensen, frá Blodtypelaboratoriet for Heste í Danmörku, Sigríður Hjörleifsdóttir og Alexandra M. Klonowski, frá Prokaria (Matís), Guðlaugur Antonsson, landsráðunautur í hrossarækt (BÍ), Þorberg Þ. Þorbergsson, þróunarstjóri WorldFengs (BÍ), Jón Baldur Lorange, verkefnisstjóri WorldFengs (BÍ) sem stýrði fundi, Magdalena Hoveklint, Heimur Gunnarsson, Anna Sahlander og Lotta Hegartd Witt, frá Svenska Islandshästförbundet (SIF) í Svíþjóð og Vilhjálmur Svansson frá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Á myndina vantar Kristinn Ólafsson frá Prokaria (Matís) og Sofiu Mikko frá SLU en hún tók þátt í fundinum í gegnum síma.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi