Prenta síðu

Lesa frétt

27. janúar 2009

Fræðslufundur um heilbrigði íslenska hestsins - 27. janúar

Mynd með frétt

Matvælastofnun heldur fræðslufund um heilbrigði íslenska hestsins þriðjudaginn 27. janúar 2009 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verða teknir fyrir þættir sem ógnað geta heilbrigði og velferð hrossastofnsins og fjallað um viðbrögð við hugsanlegri vá. Þá verða nýleg dæmi um salmonellusýkingu og brot á dýraverndarlögum til umfjöllunar. Fjallað verður um sjúkdómastöðuna hér á landi og hættuna á að nýir smitsjúkdómar berist í hrossastofninn.

Farið verður yfir smitvarnir og aðrar fyrirbyggjandi aðgerðir. Reglugerð um aðbúnað hrossa og lög um dýravernd verða kynnt og fjallað um ábyrgð Matvælastofnunar og eigenda á heilsu og velferð hrossa. Jafnframt verður farið yfir stöðu rannsókna á hrossasjúkdómunum sumarexemi og spatti.

Fyrirlesari verður Dr. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun.

Fundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Fundurinn er opinn almenningi og eru hestaáhugamenn sérstaklega hvattir til að mæta.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi