Prenta síðu

Lesa frétt

8. janúar 2009

Málstofa LbhÍ: Þróun kynbótamats íslenska hestsins

Mynd með frétt

Næsta málstofa Landbúnaðarháskóla Íslands verður í Ásgarði á Hvanneyri mánudaginn 12. janúar klukkan 15. Þar mun Elsa Albertsdóttir doktorsnemi í kynbótafræði við LbhÍ flytja erindi en rannsóknarverkefni hennar ber heitið Samþætt kynbótamat íslenska hestsins - kynbóta og keppniseiginleikar. Margir ræktendur íslenska hestsins leitast við að framleiða góða keppnishesta en hafa hingað til ekki haft þau úrræði sem árangursrík ræktun grundvallast á.

Það er meginmarkmið þessarar rannsóknar að bæta hér úr með því að koma á samþættu kynbótamati kynbóta- og keppniseiginleika þar sem enn fremur er tekið tillit til þess úrvals sem fyrir hendi er. Með rannsókninni fæst nauðsynleg vísindaleg þekking á keppnishæfni hrossa sem gerir kleift að byggja ræktun þeirra á sama trausta grunninum og ræktun kynbótahrossa gerir.

Samþætta kynbótamatið yrði einfaldlega viðbót og útvíkkun þess kynbótamats sem fyrir er. Önnur markmið rannsóknarinnar er að kanna forval hrossa fyrir kynbótadóm og keppni og áhrif þess á niðurstöður kynbótamatsins. Í heild er verkefninu ætlað að stuðla að nákvæmara og öruggara vali á kynbótahrossum og hraðari erfðaframförum.

Hægt verður að fylgjast með erindinu á heimasíðu LbhÍ; Sjá: http://www.lbhi.is/utgafumalogkynning/malstofa

Auk doktorsnámsins sinnir Elsa Albertsdóttir kennslu í hrossarækt og reiðmennsku við skólann. Elsa lauk búfræðiprófi ásamt reiðkennara- og þjálfaraprófi frá Hólaskóla árið 1998, B.Sc. Cand. Agr. frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri árið 2001 og Licentiate í erfða- og kynbótafræði frá Sænska Landbúnaðarháskólanum árið 2007. Elsa starfaði sem ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyfirðinga og Þingeyinga árin 2001-2004 ásamt því sem hún hefur sinnt tamningum og þjálfun hrossa, reiðkennslu og dómsstörfum innan hestamennskunnar samhliða námi.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi