4. febrúar 2008
Kynbótastarf í hrossarækt
Opinbert ræktunarstarf í hrossarækt á sér lagastoð í Búnaðarlögum (nr. 70/1998) en þar kemur fram að Bændasamtök Íslands hafa á hendi faglega yfirumsjón með því starfi í umboði og samkvæmt samningi við landbúnaðarráðherra en hann hefur á hendi yfirstjórn allra mála sem lögin taka til.
- Í Búnaðarlögunum er kveðið á um að í hverri búgrein skuli starfa landsráðunautur en hann hefur allt landið sem starfssvæði og skal hafa yfirumsjón með leiðbeiningum, kynbótum og ræktun í viðkomandi búgrein.
- Í lögunum er einnig kveðið á um að fyrir hverja búgrein skuli starfa svokallað fagráð.