Prenta síðu

Lesa frétt

20. nóvember 2008

Haustfundur HEÞ - 3. des.

Mynd með frétt

Hinn árlegi haustfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga verður að þessu sinni haldinn í Funaborg Melgerðismelum miðvikudaginn 3. desember og hefst hann kl. 20:30.

Á fundinum verður valið ræktunarbú ársins á félagssvæðinu, auk þess sem ræktendur efstu hrossa í kynbótadómi hljóta viðurkenningar. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur fer yfir sviðið í hrossaræktinni og Elsa Albertsdóttir LbhÍ flytur athyglisvert erindi sem hún kallar "Forval til kybótadóms". Einnig mun fulltrúi frá Sjóvá vera með stutta kynningu á hestatryggingum. Þau bú sem tilnefnd eru til ræktunarverðlauna HEÞ 2008 eru eftirtalin: Efri-Rauðalækur, Litla-Brekka, Litli-Dalur, Sauðanes og Syðra-Garðshorn.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi