Prenta síðu

Lesa frétt

4. janúar 2012

Orðsending til garðyrkjubænda vegna beingreiðslna

Mynd með frétt

Ný reglugerð nr. 1277/2011 um beingreiðslur í garðyrkju fyrir árið 2012 hefur tekið gildi. Þeir sem hafa hug á að þiggja beingreiðslur á árinu 2012 þurfa að skila inn umsókn og/eða áætlun til Bændasamtaka Íslands fyrir 15. janúar 2012 þar sem fram kemur flatarmál gróðurhúsa, sem ætlað er til framleiðslu fyrir hverja tegund svo og áætluð framleiðsla af hverri tegund á árinu 2012.

Framleiðendur sem hlotið hafa beingreiðslur á árinu 2011 skulu senda heildaruppgjör fyrir árið staðfest af löggiltum endurskoðanda til Bændasamtaka Íslands fyrir 10. febrúar 2012.

Umsóknarblöð og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Bændasamtaka Íslands með því að smella hér eða hjá Ásdísi Kristinsdóttur í netfanginu ak@bondi.is eða í síma 563-0300.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi