Prenta síðu

Lesa frétt

27. mars 2008

Afurðastöðvaverð til bænda hækkar um 14 krónur á lítra

Mynd með frétt

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. apríl n.k. um 14,6%. Frá sama tíma hækkar afurðastöðvaverð til bænda um rúmar 14 kr. á lítra mjólkur. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaðar mjólkur um kr. 2,20 á hvern lítra.

Við þessa breytingu má gera ráð fyrir að einn lítri af nýmjólk hækki úr 87 kr. í tæpar 100 kr., en smásöluálagning á mjólk er frjáls.

Ástæður þessara verðhækkana eru einkum hækkun áburðarverðs, kjarnfóðurs og fjármagnsliða í verðlagsgrundvelli kúabús.

Fulltrúi ASÍ sat hjá við atkvæðagreiðslu þar sem hann gat ekki staðið að hækkun á vaxtalið grundvallarins, en var tilbúinn til að standa að ákvörðun um hækkun á búvörum þar sem tekið væri tillit til kostnaðarhækkana eins og kjarnfóðri og áburði segir  í fréttatilkynningu frá verðlagsnefnd búvara.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi