Prenta síðu

Lesa frétt

18. nóvember 2010

Bændafundir framundan

Mynd með frétt

Almennir haustfundir Bændasamtakanna hófust mánudaginn 22. nóvember og standa þeir til 6. desember. Alls verða fundirnir 16 talsins og verða þeir haldnir um allt land. Á fundunum verða m.a. rædd þau tækifæri sem landbúnaðurinn hefur til þess að efla þjóðarhag og hvar sóknarfæri liggja.

Nýgerður búnaðarlagasamningur verður til umfjöllunar og spurt verður hvernig unnt er að verja kjör bænda í erfiðu efnahagsástandi. Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, segir í leiðara í nýju Bændablaði að meginerindi á bændafundum sé að heyra hvernig félagsmenn BÍ vilji beita sínum samtökum. Hann hvetur jafnframt alla bændur til að mæta því á bændafundum gefist kostur á að láta í sér heyra og hlusta á aðra.

Bændafundirnir eru á eftirfarandi stöðum:

Vopnafjörður mán. 6. des. 14:00 Hótel Tangi - FRESTAÐ
Egilsstaðir mán. 6. des. 20:30 Hótel Hérað 
Hornafjörður mán. 6. des. 14:00 Smyrlabjörg 
Kirkjubæjarklaustur mán. 6. des. 20:30 Geirland


Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi