Prenta síðu

Lesa frétt

16. nóvember 2010

Hrútaskráin kemur út - kynningarfundir

Mynd með frétt

Prentaða útgáfa Hrútaskrárinnar fer í dreifingu 18. nóvember nk. Hefur þeirrar útgáfu að venju verið beðið með mikilli eftirvæntingu meðal sauðfjárbænda, en henni verður fylgt eftir með fundum um allt land, þar sem hrútakostur sæðingastöðvanna er kynntur. Á kynningarfundunum verður að vanda komið á framfæri ýmsum viðbótarupplýsingum um hrútakostinn, framkvæmd sæðingastarfsins á viðkomandi svæði auk almennrar umfjöllunar um ræktunarstarfið í sauðfjárrækt. Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur BÍ, mun mæta á fundina auk sauðfjárræktarráðunauta á hverju svæði.

Vefútgáfurnar eru fyrir nokkru komnar á vef Bændasamtaka Íslands og eru þær að finna á slóðinni /Pages/35, undir „Fræðsluefni“.










Tímasetningar fundanna eru eftirfarandi
:

Fimmtudaginn  18. nóvember    
Ásgarði, Hvanneyri, kl. 20.30.

Föstudaginn 19. nóvember        
Grunnaskólanum Reykhólum, kl. 10.00.

Föstudaginn 19. nóvember        
Dalabúð, Búðardal, kl 15.00.

Föstudaginn 19. nóvember        
Breiðabliki, Snæfellsnesi, kl.  20.30.

Sunnudaginn 21. nóvember       
Hlíðarbæ, Kræklingahlíð, kl. 20.30.

Mánudaginn 22. nóvember        
Svalbarðsskóla, Þistilfirði, kl. 13.30.

Mánudaginn 22. nóvember        
Breiðumýri, Reykjadal, kl. 20.30.

Þriðjudaginn 23. nóvember        
Reiðhöllinni Svaðastöðum, Sauðárkróki kl. 20.00.

Miðvikudaginn 24. nóvember    
Smyrlabjörgum, Suðursveit, kl.  14.00.

Miðvikudaginn 24. nóvember    
Hótel Klaustri, Kirkjubæjarklaustri, kl. 20.00.

Miðvikudaginn 24. nóvember    
Holti, Önundarfirði, kl. 20.00.

Fimmtudaginn 25. nóvember     
Heimalandi, Eyjafjöllum, kl. 14.00.

Fimmtudaginn 25. nóvember     
Þingborg, Flóa, kl. 20.00.

Föstudaginn 26. nóvember        
Sjálfstæðissalnum, Blönduósi, kl. 13.30.

Föstudaginn 26. nóvember        
Staðarflöt, Hrútafirði, kl. 20.30.

Mánudaginn 29. nóvember        
Hótel Bláfell, Breiðdalsvík, kl. 11.00.

Mánudaginn 29. nóvember        
Hótel Hérað, Egilsstöðum, kl. 15.00.

Mánudaginn 29. nóvember        
Miklagarði, Vopnafirði, kl. 20.30.

Allt áhugafólk um sauðfjárrækt er hvatt til að mæta á fundina.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi