5. nóvember 2010
Nýir hrútar: Sómi
Sómi er fæddur á Heydalsá vorið 2007, en hann var seldur sem lamb um haustið að Þorpum í sömu sveit. Hann er hvítur og kollóttur. Faðir hans er Bogi 04-814, en móðurfaðir hans Púki 03-022 var frá Broddanesi I.
Á grunni góðrar reynslu í Þorpum haustin 2008 og 2009 var hann falaður í afkvæmarannsókn kollóttu hrútanna af svæðinu, sem var í Stóra-Fjarðarhorni. Hann var eini hrúturinn sem fenginn var á stöðvarnar, þegar niðurstöður rannsóknarinnar lágu fyrir. Þar sannreyndi hann sig sem öflugan kynbótahrút með tilliti til kjötgæða, gefur prýðisgóða vöðvafyllingu hjá afkvæmum sínum, sem eru ákaflega fitulítil. Auk þess eru afkvæmi hans sérlega þroskamikil lömb.
Til baka