Prenta síðu

Lesa frétt

1. nóvember 2010

Nýir hrútar: Geysir

Mynd með frétt

Geysir er fæddur á Hofi í Öræfum vorið 2007 en var seldur um haustið að Svínafelli I í sömu sveit. Hann kemur á stöð eftir afkvæmarannsókn á Hofi haustið 2010 vegna stöðvanna, þar sem öttu kappi nokkrir úrvalshrútar undan Rafti 05-966 úr sveitinni ásamt fleiri hrútum.

Geysir er sonur Rafts en hann er hvítur og hyrndur eins og flestir hans synir. Árin tvö áður hafði Geysir verið að skila mjög vænum og feikilega vel gerðum lömbum á heimabúinu.

Lambahópurinn undan honum í rannsókninni samanstóð af feikilega vel gerðum lömbum, nánast öll hrútlömbin voru góð hrútsefni. Hann sýndi einnig afgerandi yfirburði í kjötmatinu þó að umtalsverður fjöldi lamba færi í ásetning vegna mikillar fjársölu frá búinu. Kynfesta í lambahópnum var feikilega mikil. Geysir sjálfur er fádæma vel gerður einstaklingur.

Ættarskrá.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi