Prenta síðu

Lesa frétt

4. október 2010

Nýir hrútar: Jökull

Mynd með frétt

Jökull er fenginn frá Bjarnastöðum í Öxafirði þar sem hann er fæddur vorið 2007. Faðir hans Sunni 05-043 á Gunnarsstöðum skildi eftir sig feikilega öflugan hrútahóp sem fæddur var 2007, þar sem Jökull er toppurinn á ísjakanum. Sunni var að öllu ættaður frá Snartastöðum úr þeirri öflugu ræktun sem þar er en Lækur 97-843 er þar mikið að baki. Móðurættin er ekki síður traust ræktun, þar sem Gári 02-904 er móðurfaðir og Fengur 02-151, sem var úrvalshrútur undan Lóða 00-871 kemur þar næst.

Jökull vakti strax athygli haustið 2008, ásamt stalllara sínum Frosta, fyrir ákaflega glæsilegan lambahóp; bæði gríðarlega vöðvafyllingu og fremur litla fitu. Þroski lamba undan Jökli hefur verið aðeins minni en lamba undan Frosta. Vegna aldurs er BLUP mat um afurðaeiginleika enn að mestum hluta ætternismat en það er 100 fyrir mjólkurlagni og 108 um frjósemi, en dætur hans vorið 2010 sýndu frjósemi nálægt meðaltali jafnaldra sinna á búinu.

Jökull er hyrndur og hvítur að lit. Hann er feikilega þéttvaxinn og þróttlegur einstaklingur og vöðvar ákaflega þykkir og vel lagaðir og sérstaklega eru lærahold einstök.

Ættarskrá.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi