Prenta síðu

Lesa frétt

6. september 2010

Frjósemi hjá dætrum sæðingastöðvarhrúta vorið 2010

Mynd með frétt

Enginn eiginleiki er þýðingarmeiri en frjósemi ánna til að tryggja hagkvæmni í sauðfjárframleiðslunni. Búið er að safna saman upplýsingum um frjósemi dætra sæðingastöðvarhrútanna, sem komnar eru með slíkar upplýsingar frá vorinu 2010, í skýrsluhaldi fjárræktarfélaganna. Niðurstöðurnar hafa verið dregnar saman í töflu á hliðstæðan hátt og gert hefur verið síðustu árin. Þessa töflu er hægt að skoða hér.

Rétt er að leggja á það áherslu að þessar tölur eru aðeins hreinar meðaltalstölur. Þess vegna geta mjög margir ytri þættir haft áhrif á niðurstöðurnar. Einnig er minnt á að margar af þessum tölum eru aðeins tölur frá heimabúi fyrir dætur sem þar voru fæddar áður en hrúturinn flutti á stöð. Þær niðurstöður verur að sjálfsögðu að lesa af enn meiri varkárni vegna þess að þar koma búsáhrifin með í niðurstöðurnar af fullum þunga. Með hliðsjón af hrútaskránum má sjá hvaða árgangar eru heimahópar og hvað eru dætur tilorðnar við sæðingar.

Hér verður ekki nein umfjöllun um niðurstöður fyrir dætur einstakra hrúta en taflan sýnir strax mikinn mun á milli hrútanna sem full ástæða er til að taka tillit til þegar verið er að meta efnileg afkvæmi þeirra til ásetnings núna í haust.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi