Skaðvaldar

Skaðvaldar

Álftir og gæsir

Álft og gæs valda miklu tjóni á ræktarlöndum ár hvert. Ýmislegt má gera til að verjast slíku tjóni, en oft á tíðum er þó ekki við neitt ráðið.

  • Álftir og gæsir hræðast það að geta ekki tekið til flugs. Þannig má minnka líkur á að fuglinn setjist á tún/akur með því að strengja borða yfir túnin með nokkru millibili og þrengja þannig það svæði sem hann hefur til að taka sig á loft.

  • Skurðir umhverfis og girðingar hindra að álftir og gæsir fari inn í akra. Það skiptir líka miklu máli að vel takist til við vinnslu og sáningu þannig að ekki séu auðar geilar inn í ökrunum.

  • Menn hafa prófað að sá höfrum í rönd meðfram ökrum til að verja þá, en hafrarnir eru mun seinni í þroska en byggið.

  • Gasbyssur hafa verið notaðar en almennt er það reynsla bænda að fuglarnir læri fljótt á þær, einkum ef skotmynstri er ekki breytt og byssur færðar til.

  • Fuglahræður , flögg, gasblöðrur (helst með augum á), lúðrar (bílflautur) og hundar. Þá má nefna svokallað mylar band (málmlitað band sem glampar á)

  • Einnig er hægt að beita nýju áreiti daglega til þess að trufla fuglana. T.d. að stilla upp dráttarvél, kerru, bauju eða öðrum áberandi hlutum í námunda við svæðið sem fuglarnir sækja á.

Hér fyrir neðan má nálgast eyðublað sem bændur og ráðunautar geta fyllt inn í upplýsingar um tjón af völdum andfugla. Upplýsingarnar verða nýttar til að finna raunhæfar leiðir að úrbótum. Eyðublaðið geta bændur einnig notað til að meta hversu mikið fjárhagslega tjónið er.

Eyðublað 2011

Eyðublað 2012

 



Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi ;