Um tölvudeild

Um tölvudeild

Tölvudeild Bændasamtaka Íslands

Forstöðumaður: Jón Baldur Lorange, netfang: jbl@bondi.is

Netfang þjónustuborðs tölvudeildar: tolvudeild@bondi.is

Tölvudeild Bændasamtaka Íslands sér um rekstur á tölvukerfi Bændasamtakanna, þróun og þjónustu á forritum fyrir bændur og búnaðarsambönd og almenna ráðgjöf í tölvumálum. Bændasamtök Íslands (BÍ) smíða og þróa forrit eða flytja inn og aðlaga fyrir íslenskar aðstæður. Bændur og búnaðarsambönd nýta sér tölvutækni í auknu mæli og í dag eru hundruðir bænda um allt land skráðir notendur að þeim forritum sem tölvudeild BÍ býður upp á. Umfangsmikil hugbúnaðarþróun fer fram í tölvudeild í öllum búgreinum og í innri tölvukerfum Bændasamtakanna.

BÍ hafa einnig umsjón með skráningu og úrvinnslu á skýrsluhaldi í öllum búgreinum og jafnframt sér tölvudeildin um skráningu og vistun á forðagæsluupplýsingum. Tölvudeildin sér um útgáfu af hestavegabréfum við útflutning á hrossum en þau eru unnin í gegnum WorldFeng.

Tölvukerfi BÍ samanstendur af staðarneti (Novell neti), fjölnotendatölvu (AS/400), Oracle miðlara og Linux vefþjóna. Notendur staðarnets eru um 60 í Bændahöllinni. Á staðarnetinu eru starfsfólk BÍ, Lífeyrisjóðs bænda og búgreinasambanda.

Tölvudeildin tók þátt í fundarherferðinni "Samtal við bændur" með Símanum og Upplýsingatækni í dreifbýli fyrir nokkrum árum síðan. Um 200 bændur mættu á 14 fundi sem haldnir voru hringinn í kringum landið. Einar H. Reynis tók saman myndasyrpu af hluta ferðarinnar.



Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi