Launakjör
Kauptaxtar á bændabýlum - Bændasamtök Íslands og Starfsgreinasamband Íslands
Nýr samningur um kaup og kjör starfsmanna sem vinna almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum var undirritaður vorið 2008. Gildir hann frá 1. maí sl. til loka nóvember 2010. Ýmis nýmæli eru í þessum samningi, svo sem að starfsmönnum eru nú tryggðar starfsaldurshækkanir, auk þess sem ný ákvæði eru um aðbúnað og vinnuvernd. Þá fá landbúnaðarverkamenn aðgang að fræðslusjóðum atvinnulífsins.
Samningur milli Starfsgreinasambands Íslands og Bændasamtaka Íslands um kaup og kjör starfsmanna sem vinna almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Gildistími 1. júní 2011 til 31. janúar 2014 - pdf
Samningur BÍ og Framsýnar, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Þórshafnar er samhljóða samningi við SGS. Hann er aðgengilegur hér.
Eldri samningar:
Bændasamningur - launatafla 1. nóvember 2009
Samningur milli Starfsgreinasambands Íslands og Bændasamtaka Íslands um kaup og kjör starfsmanna sem vinna almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Gildistími 1. maí 2008 til 30. nóvember 2010 - pdf