Byggingarþjónusta BÍ
| Byggingarþjónusta Bændasamtaka Íslands ( BBÍ ) er ráðgjafar- og teiknistofa,sem sérhæfir sig í hönnun og gerð uppdrátta að landbúnaðarbyggingum. BBÍ var sett á fót árið 1990 þegar Búnaðarbanki Íslands, Stofnlánadeild, hætti rekstri Byggingarstofnunar landbúnaðarins (áður Teiknistofa landbúnaðarins). | |
| Hjá BBÍ geta bændur fengið alhliða ráðgjöf varðandi landbúnaðarbyggingar og innanhússtækni. Einnig bygginganefndarteikningar og burðarvirkisteikningar að hvers kyns landbúnaðarbyggingum. BBÍ annast þó ekki gerð raflagnateikninga. | |
|
Sérfræðingar BBÍ eru í nánum tengslum við landsráðunauta í hinum ýmsu búgreinum svo og héraðsráðunauta búnaðarsambandanna | |
| Sérfræðingar BBÍ heimsækja bændur sem óska eftir ráðgjöf / teikningum vegna fyrirhugaðra byggingaframkvæmda eftir því sem því verður við komið. Slíkar heimsóknir eru gjarnan skipulagðar í samráði við héraðsráðunaut á viðkomandi svæði. | |
| Hjá BBÍ er lögð áhersla á að safna upplýsingum og fylgjast með nýjungum varðandi landbúnaðarbyggingar, bæði innlendum og erlendum. | |
Starfsmenn
Magnús Sigsteinsson, ms@bondi.is, forstöðumaður (50 % starf) , bútæknifræðingur, almenn ráðgjöf um landbúnaðarbyggingar, loftræstingu og innanhússtækni. Gerð tillöguuppdrátta og aðaluppdrátta að landbúnaðarbyggingum bæði nýbyggingum og breytingu á eldri húsum. Gerð og frágangur bygginganefndarteikninga í AutoCAD tölvuteiknikerfi.
Unnsteinn Snorri Snorrasson, uss@bondi.is, bútækniráðunautur, meistarapróf í bútækni, almenn ráðgjöf um bygginga- og bútækni, skipulag nýbygginga og breytingar á eldri byggingum, byggingahönnun, hugmyndavinna og gerð tillöguteikninga. Veitir ráðgjöf og upplýsingar um véltækni í landbúnaðarbyggingum.
Sæmundur Óskarsson, so@bondi.is, byggingatæknifræðingur, alhliða ráðgjöf um byggingatækni, ráðgjöf um burðarþol í landbúnaðarbyggingum, útreikningar á burðarþoli og gerð burðarþolsuppdrátta. Fullvinnsla uppdrátta í AutoCAD tölvuteiknikerfi.