Fagráð í hagfræði
Stjórn BÍ skipar fulltrúa í Fagráð í hagfræði. Fagráð í hagfræði starfar á grundvelli búnaðarlaga nr. 70/1998 og Búnaðarlagasamningur 6. mars 2002
4. gr. Fagráð
Fagráð skulu starfa fyrir hverja búgrein og á einstökum fagsviðum. Fagráð móta stefnu í kynbótum og þróunarstarfi viðkomandi búgreinar, skilagreina ræktunarmarkmið og setja reglur um framkvæmd meginþátta ræktunarstarfsins. Enn fremur móta þau tillögur um stefnu í fræðslumálum og rannsóknum búgreinarinnar og fjalla um önnur mál sem vísað er þangað til umsagnar og afgreiðslu. Í fagráðum skulu sitja menn úr hópi starfandi bænda og einn ráðunautur í hlutaðeigandi búgrein eða fagsviði. Jafnframt skulu sitja í fagráðum eða starfa með þeim sérfróðir aðilar. Fagráð skulu hljóta staðfestingu landbúnaðarráðherra að fenginni umsögn Bændasamtaka Íslands.
Fagráð í hagfræði frá 2011
Gunnar Guðmundsson, sviðsstjóri ráðgjafarsviðs BÍ
Gunnar Ríkharðsson, Búnaðarsambandi Húnaþings og Stranda
Haraldur Benediktsson, formaður stjórnar BÍ
Jóhannes Jónsson, Espihóli
Runólfur Sigursveinsson, Búnaðarsambandi Suðurlands
Til stuðnings:
Jóhanna Lind Elíasdóttir, ráðunautur, BÍ, ritari fagráðs
Daði Már Kristófersson, BÍ
Guðbjörg H. Jóhannsdóttir, BÍ
Jónas Bjarnason, Hagþjónustu landbúnaðarins
Frá héraðaþjónustu:
Rekstrarráðgjafar búnaðarsambandanna, eftir því er henta þykir hverju sinni.
Fundargerðir:
15. mars 2011
8. desember 2009 28. október 2009 12. janúar 2009 23. janúar 2008