Bókhald & skattamál

Bókhald & skattamál

Skattframtal 2011 vegna ársins 2010

Nú er skattaframtalstíminn í hámarki. Vefframtal einstaklinga var opnað 7. mars 2011. Hér að neðan eru ýmsar upplýsingar fyrir skattframtal 2011 vegna rekstrarárs 2010:

 

Engar breytingar eru á landbúnaðarframtali milli áranna 2011 og 2010

Leiðbeiningar ríkisskattstjóra eru mjög ítarlegar og má nálgast hér

 

Gátlisti fyrir framtalsgerð og ársuppgjör. Gott að hafa við hendina við framtalgerðina, bæði fyrir þá sem nota bókhaldsforritið dkBúbót og þá sem nota ekki slík verkfæri.

Leiðbeiningar við framtalsgerð og uppgjör í dkBúbót

Á vef ríkisskattstjóra er að finna mjög góðar leiðbeiningar vegna framtalsgerðar og reksturs.

 

Leiðbeiningar ríkisskattsjóra fyrir landbúnaðarskýrslu 2011 og framtal einstaklinga má nálgast á þessum slóðum, svo og aðrar leiðbeiningar vegna rekstrarframtala.

 

Áramótavinnslur í dkBúbót og staðgreiðsla launagreiðenda 2011

Við áramót þurfa launagreiðendur að uppfæra fjárhæðir og mörk vegna staðgreiðslu og notendur dkBúbótar þurfa að færa þessar upplýsingar inn í launakerfið.

Helstu staðgreiðslutölur 2011

Skatthlutfall í staðgreiðslu 2011, þrjú þrep:

Árstekjur undir 2.512.800 kr.                                               37,31%

Árstekjur milli 2.512.800 og 8.166.600                                 40,21%

Árstekjur yfir 8.166.600                                                      46,21%

Skatthlutfall barna umfram frítekjumark                                                 6%

Persónuafsláttur ársins 2010 og 2011 er                                    530.466 kr.

            eða á mánuði                                                                 44.205 kr.

Sjómannaafsláttur lækkar 2011 og verður                               740 kr. á dag

            lækkar um fjórðung á 4 árum og fellur niður frá 1. janúar 2014

Frítekjumark barna er óbreytt                                                    100.745 kr.

Tryggingagjald verður                                                                    8,65%. 

 

Fyrirvari er gerðum um innsláttarvillur, nánari upplýsingar í orðsendingu RSK hér.

Frekari upplýsingar um skatta, gjöld og bætur hjá RSK. og fréttatilkynnning fjármálaráðuneytis um staðgreiðslu, persónuafslátt ofl.

 

Skil á launa- og verktaka miðum

Launa- og verktakamiðum vegna ársins 2010 skal skila eigi síðar en 30. janúar 2011 á pappír og 10. febrúar 2011 með rafrænum hætti. Sjá nánar orðsendingu RSK hér og eins orðsending um áritun launa og starfstengdra greiðslna. Uppfærsla á dkBúbót vegna launamiða er væntanleg í þriðju viku ársins og verður send notendum með tölvupósti. Þeir notendur sem vilja uppfærsluna á geisladisk eru beðnir um að panta það hjá tölvudeild BÍ á netfangið tolvudeild@bondi.is.

Áramótavinnslur í dkBúbót

Setja þarf inn í dkBúbót nýtt bókhaldsár og staðgreiðsluforsendur. Til að setja inn staðgreiðsluforsendur í dkBúbót er valið Laun – Uppsetning – Staðgreiðsluforsendur og ný færsla stofnuð. ATH að allir notendur launakerfisins þurfa sjálfir að setja inn þessar breytingar.

Eins þarf að huga að ýmsum atriðum í mismunandi kerfum dkBúbótar. Ítarlegar upplýsingar og leiðbeiningur um þessar vinnslur má finna í handbók frá DK, Áramótavinnslur í dk sem má sækja hér.

Ítarlegri upplýsingar

Nánari upplýsingar um skattskil er að finna á vef Ríkisskattstjóra rsk.is og eins eru gagnlegar upplýsingar í skattabæklingum endurskoðunarfyrirtækjanna. 

Skattabæklingur KPMG 2011

Skattamál Deloitte 2010/2011

Skattabæklingur PwC 2010/2011

 

 



Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi