Áætlanir & rekstrargreining
Áætlanir & rekstrargreining
Áætlanir & rekstrargreining
Bændasamtök Íslands og búnaðarsamböndin vinna saman að átaksverkefni um áætlanagerð í landbúnaði. Verkefnið sem hefur vinnuheitið "markmiðstengdar búrekstraráætlanir" hefur staðið yfir um nokkurt skeið og nýtur fjárstuðnings úr ríkissjóði samkvæmt búnaðarlagasamningi.
Fagráði í hagfræði var með þeim samningi falið að setja lágmarkskröfur um áætlanagerðina. Hér er hægt að skoða lágmarkskröfur til áætlanagerðarinnar. Einnig er hér að neðan hægt að skoða tillögu að verklagi við gerð markmiðstengdra búrekstraráætlana og sækja þau hjálpartæki sem notuð eru við áætlanagerðina.
Meginmarkmið verkefnisins er að bæta afkomu í landbúnaði með aðstoð rekstrargreiningar og áætlanagerðar. Verkefnið hefur fengið mismunandi heiti milli búnaðarsambandssvæða og kallast þau m.a.: Betri bú, Ráðhildur, Sunna og Sómi.
Almennt felur verkefnið í sér einstaklingsráðgjöf sem búnaðarsamböndin sinna og lýtur að ýmsum rekstrarþáttum búsins. Gerð er rekstrargreining þar sem leitað er að veikum og sterkum hliðum í rekstrinum, svo kölluð SVÓT-greining (styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri). Við slíka skoðun kemur oft í ljós ýmislegt sem betur mætti fara í rekstrinum eins og t.d. við áburðar- og kjarnfóðurnotkun. Út frá greiningunni fær bóndinn ráðgjöf um bættan rekstur og fær gerða búrekstraráætlun fyrir sig. Sjálf áætlunin getur verið mjög gott tæki fyrir bóndann til að hafa yfirsýn og um leið aðhald á rekstrinum. Rekstraráætlunin sýnir líka hve vel bóndinn er í stakk búinn til að greiða af núverandi skuldum og standa í hugsanlegum fjárfestingum í framtíðinni.
Greinargerð. Til að nota við gerð markmiðstengdra búrekstraráætlana.
Rekstrargreiningarlíkön og búhagur eru komin í eitt og sama excel-skjalið skjalið. Best er að vista þessi líkön niður í eigin tölvu áður en hafist er handa við samanburðinn.
Rekstrargreining og búhagur 2008: Í byrjun árs 2008 var samykkt á ráðunautafundi og í Fagráði í hagfræði að breyta framreikningi viðmiðunarbús og reikna gjaldahlið í samræmi við verðlagsgrundvöll búvöru og tekjuhlið sem næst raunverulegri breytingu afurðastöðva, í stað neysluverðsvísitölu eins og gert hefur verið.
Framreikningur kúabús fyrir raunbú 2006 úr gagnagrunni Hagþjónustu landbúnaðarins til ársins 2007 miðað við verðlagsgrundvöll búvöru frá desember 2006 til desember 2007, sem hækkaði um tæp 6,8%. Tekjuhlið búsins er framreiknuð miðað við áætlaðar breytingar á meðalverði afurðastöðva til bænda milli áranna, mjólk, 4,4% hækkun og nautakjöt um 4% hækkun, en aðrir tekjuliðir samkvæmt breytingum á neysluverðsvísitölu sem er ríflega 5% hækkun.
Rekstrargreiningarlíkan fyrir kúabú
Verlagsgrundvöllur sauðfjárafurða hefur ekki verið reiknaður eða gefinn út síðan 2005 og er sá framreikningur unninn af ráðunaut BÍ á grundvelli gagna frá Hagstofu Íslands og á sama formi og síðasti útgefni sauðfjárgrundvöllur. Hækkun sauðfjárgrundvallar frá desember 2006 til desember 2007 er skv. ofangreindu um 7,6%. Áætlað er að afurðastöðvaverð kindakjöts hafi hækkað um 6% að meðaltali milli áranna og aðrir tekjuliðir samkvæmt breytingum á neysluverðsvísitölu sem er ríflega 5% hækkun.
Rekstrargreiningarlíkan fyrir sauðfjárbú
Rekstrargreining og búhagur fyrir kúabú bókhaldsárið 2006. Samanburðargrunnur er byggður á tölum ársins 2005, framreiknað miðað við neysluverðsvísitölu til verðlags 2006. Búhagur fyrir kúabú.
Rekstrargreining og búhagur fyrir sauðfárbú bókhaldsárið 2006. Samanburðargrunnur er byggður á tölum ársins 2005, framreiknað miðað við neysluverðsvísitölu til verðlags 2006. Búhagur fyriri sauðfjárbú.
Leiðbeiningar fyrir Búhag. Word skjal sem inniheldur leiðbeiningar um samskipti milli búhagslíkansins og dkBúbót.
Allar ábendingar um frekari efnistök og leiðbeiningar sem setja mætti hér inn eru vel þegnar og óskast sendar til Jóhönnu Lind Elíasdóttur á netfangið jle@bondi.is