Selveiði

Selveiði

Selveiði


Aðeins tvær tegundir sela kæpa hér við land, landselur (vorselur) og útselur (haustselur). Aðrar tegundir koma hér aðeins sem flækingar. Landselurinn kæpir á vorin (maí-júlí) og hefst kæpingin nokkru fyrr á Suðurlandi heldur en við norðurströndina. Útselurinn kæpir á haustin (aðallega í október - nóvember). Veiðar á sel hafa lengst af verið bundnar við veiðar á kópum og þá aðallega vegna skinnsins. Þótt nýting á kjöti, spiki og hreifum hafi verið mikilvæg fyrr á tímum, hefur á síðustu áratugum dregið úr mikilvægi þess. Kópurinn er veiddur nokkra vikna gamall eða u.þ.b. þegar kæpan hefur lokið mjólkurskeiðinu og fer að venja undan. Fullorðinn landselur er ekki veiddur, en dálítið af fullorðnum útsel.

 

Vegna þess að verð á kópaskinnum er nú lægra heldur en áður var, þá er mun minna veitt nú. Vorkópaskinnin eru sútuð í pels eða seld spýtt til útlanda. Haustkópaskinnin eru sútuð í leður, sem er eitt sterkasta leður sem þekkist. Selskinn njóta vaxandi vinsælda í flíkur og hvers konar handverk. Kjöt, spik og hreifar njóta nú vaxandi vinsælda sem matvæli.

 

Nýjasta aðferðin við að hagnýta sel er sk. selskoðun, sem tengist ferðaþjónustu í vaxandi mæli.

 

Árið 1986 stofnuðu áhugasamir selveiðibændur félag, Samtök selabænda, sem starfað hefur síðan og beitt sér fyrir því að verja þessi fornu hlunnindi og koma þeim til vegs og virðingar á ný. Félagsmenn eru 150. Formaður Samtaka selabænda er Pétur Guðmundsson, Ófeigsfirði.

 

Fréttabréf um haustsel - okt. 2003
Fréttabréf Samtaka selabænda - 12. maí 2003



Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi