Almennt um hlunnindi
Hugtakið "hlunnindi" er afar víðtækt og nær til fjölda atriða sem verða ekki öll tilgreind hér. Eins er það breytilegt frá einum tíma til annars hvað teljast hlunnindi. Það sem er verðmæti í dag getur verið einskis nýtt á morgun. Eins geta ný eða breytileg viðhorf eða aðstæður í þjóðfélaginu gert hlunnindi úr því sem áður var ekki talið eða mælt sem verðmæti.
Um aldir var nýting hvers konar hlunninda stór þáttur í afkomu fólks í byggðum landsins, en með búseturöskun og breyttum lífsháttum síðari tíma breyttist þetta, sumt féll í gleymsku og annað hefur komið í staðinn.
Texti þessi er ekki tæmandi, t.d. er ekki rætt um laxveiði, útræði o.fl., en varðandi laxveiði þá vísast til Veiðimálastofnunar.
Öll hlunnindi ásamt landsréttindum, sem eru innan landamerkja lögbýla, tilheyra jörðunum, þ.e. eiganda eða ábúanda.