Lífræn búfjárrækt

Lífræn búfjárrækt


Lífræn ræktun er undirstaða lífrænnar búfjárræktar. Fiskeldi getur talist til hennar. (sjá Vottun og eftirlit ). Gerðar eru miklar kröfur til velferðar búfjár, t. d. ekki heimilt að hafa hænsni í búrum og gyltur bundnar, fyrirbyggjandi aðgerðum og smáskammtalyfjum er beitt gegn sjúkdómum í stað hefðbundinna lyfja, notkun hormóna er óheimil, stuðlað er að varðveislu lífræðilegrar fjölbreytni, þar með sérstæðra kynja og eiginleika, og m. a. er lögð áhersla á góða meðferð beitilanda svo og hreinleika og rekjanleika afurða. Allt búfé er einstaklingsmerkt og skýrslufært og allt fóður, þar með beit, þarf að vera lífrænt vottað. Hér á landi er, auk heyja að lífrænum túnum, heimilt að nota engjahey, og fjörubeit er viðurkennd. Íslenska búféð, þ.e. nautgripir, hross, sauðfé og geitfé (landnámskynin ) henta mjög vel því að í lífrænni búfjárrækt er lögð áhersla á nýtingu beitar og gróffóðurs.Þá er lögð áhersla á útivist þegar veður leyfir.
 

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi