Fjármálaráðgjöf
Fjármálaráðgjöf fyrir bændur sem eru í verulegum fjárhagsvanda.
Undanfarin misseri hafa rekstrarskilyrði bænda verið að breytast mjög til verri vegar. Aðgangur og kjör á lánsfé hafa versnað til muna. Miklar hækkanir á aðföngum hafa átt sér stað á erlendum mörkuðum á undanförnum mánuðum. Sérstaklega á þetta við um áburð og kjarnfóður. Til að bæta gráu ofan á svart hefur gengi krónunnar fallið mikið með tilheyrandi hækkun innfluttra aðfanga sem síðan leiðir til almennra verðhækkana. Bændasamtök Íslands framkvæmdu skoðanakönnun um þörf bænda fyrir sérstaka fjármálaráðgjöf nú í vor vegna verulegra rekstrarerfiðleika. Niðurstöður hennar bentu til þess að umtalsverð þörf væri fyrir slíka þjónustu. Bændasamtökin hafa því ráðist í aðgerðir til að bregðast við ástandinu. Efla á rekstrarraðgjöf búnaðarsambanda með þéttari samvinnu milli þeirra sem starfa við rekstrarráðgjöf hjá búnaðarsamböndum og Bændasamtökunum. Jafnframt er unnið að frekari þróun greiningartækja til að bæta enn frekar gæði greininga á rekstri bænda.
Rekstrarráðgjöf búnaðarsambandanna hefur að markmiði að greina núvarandi búrekstur og leita leiða til að auka arðsemi til lengri og skemmri tíma. Henni hefur aldrei verið ætlað að mæta þörfum bænda sem eru í alvarlegum rekstarerfiðleikum. Nú er hins vegar þörf á slíkri ráðgjöf. Bændasamtökin hafa því gengið til samninga við Skrifstofuþjónustu Vesturlands ehf. um það verkefni að veita bændum sem eiga í verulegum fjárhagsvanda aðstoð við að lágmarka neikvæðar afleiðingar.
Þessi nýja þjónusta er hugsuð fyrir þá sem eru nærri því að komast í þrot með sín fjármál. Hvað er skilgreint sem verulegur fjárhagsvandi í þessu samhengi? Ef eftirfarandi fullyrðingar eiga við um þinn búrekstur átt þú í verulegum fjárhagsvanda:
Ø Skuldir búsins eru komnar í innheimtuferli hjá lánadrottnum
Ø Borist hafa ítrekaðar áminningar um vanskil
Ø Birgjar eru hættir að veita fyrirgreiðslu
Ø Tekjur búsins duga ekki fyrir útgjöldum
Markmið þjónustunnar er að draga úr þeim skaða sem verulegur fjárhagsvandi veldur og leggja mat á þær leiðir sem búinu eru færar í núverandi stöðu. Þetta krefst nákvæmrar skoðunar á tekjum og kostnaði við reksturinn og úttektar á öllum skuldum búsins, þar með talið greiðsludreifingu, raðgreiðslusamningum og einkaskuldum. Án fullkominna upplýsinga er ómögulegt að veita raunhæfa ráðgjöf. Þeir sem velja að nýta sér þjónustuna gera samning við Bændasamtökin þar sem kveðið er á um aðgang að upplýsingum, ábyrgð varðandi ráðleggingar og algeran trúnað hvað varðar þær upplýsingar sem bóndi lætur af hendi. Rétt er að undirstrika að sá samningur er gagnkvæmur. Ef bóndi verður uppvís að því að leyna upplýsingum sem skipta stöðu búsins máli munu Bændasamtökin áskilja sér rétt til að hætta við ráðgjöfina.
Þeim sem ekki eru í vanskilum með skuldir en telja brýnt að auka arðsemi búrekstrarins er bent á rekstararáðgjöf búnaðarsambandanna, sem rekin hefur verið um nokkurra ára skeið með góðum árangri. Bændum, sem öðrum stjórnendum fyrirtækja, er hollt að setjast yfir eigin rekstur með utanaðkomandi aðila og greina hvaða leiðir eru til að auka arðsemi rekstrarins til lengri og skemmri tíma. Þjónusta búnaðarsambandanna er þróuð með slíka greiningu að leiðarljósi. Fjármálaráðgjöf fyrir bændur í verulegum greiðsluerfiðleikum hefur hins vegar einungis það markmið að leita leiða til að lágmarka skaðann af stöðu búsins til skemmri tíma.
Ráðgjöf BÍ verður að kostnaðarlausu ef frá er talinn kostnaður vegna öflunar gagna, ef einhver er.
Búnaðarsamböndin framkvæma greiningu á búrekstrinum sem lögð verður til grundvallar við fjármálaráðgjöfina ásamt öðrum tilskyldum gögnum. Bændum sem vilja nýta sér þessa þjónustu er bent á að hafa samband við Gunnar Guðmundsson, gg@bondi.is eða Jóhönnu Lind Elíasdóttur, jle@bondi.is hjá BÍ eða snúa sér til síns búnaðarsambands til að fá frekari ráðgjöf og rekstrargreiningu.
Tengiliðir fjármálaráðgjafar hjá búnaðarsamböndunum eru:
Búnaðarsamtök Vesturlands: Sigríður Jóhannesdóttir, netfang: sjo@bondi.is
Ráðunautaþjónusta Húnaþings og Stranda: Gunnar Ríkharðsson, netfang: gr@bondi.is
Leiðbeiningamiðstöðin ehf. Sauðárkrók: Eiríkur Loftsson, netfang: el@bondi.is
Búgarður – Ráðgjafaþjónusta Norðurlands: Vignir Sigurðsson, netfang: vignir@bugardur.is
Búnaðarsamband Austurlands: Guðfinna Harpa Árnadóttir, netfang: gha@bondi.is
Búnaðarsamband Suðurlands: Runólfur Sigursveinsson, netfang rs@bssl.is
Hér að neðan eru hlekkir á helstu gögn:
Umsóknareyðublað fylla þarf út a.m.k. forsíðu og haka við fylgigögn á öftustu síðu.