Upplýsingar fyrir bændur

Upplýsingar fyrir bændur

Upplýsingar fyrir bændur
Markmiðið með Opnum landbúnaði er að leggja stóraukna áherslu á að byggja upp tengslanet bænda sem taka á móti gestum á sín býli eða sinna á einhvern hátt kynningarstörfum fyrir bændur. Með því að opna bændabýli landsins fyrir almenningi er stuðlað að auknum skilningi á málefnum landbúnaðarins. Um þessar mundir er unnið með skipulögðum hætti að fá bændur um allt land til þess að taka þátt í verkefninu svo hægt sé að veita þéttbýlisbúum sem besta þjónustu. Kostir þess að sameina krafta bænda í þessum efnum felast m.a. í sameiginlegu útgefnu efni og markaðssetningu, leiðbeiningum um sveitaheimsóknir og að deila þekkingu á milli bænda.

Innan verkefnisins rúmast ýmsar útgáfur af þjónustu. Ein tegundin er vorheimsóknir leik- og grunnskólabarna, önnur móttaka eldri borgara og sú þriðja felst í að bjóða ferðamönnum í heimsókn svo dæmi séu tekin.

Þeir bændur sem hafa áhuga á að gerast þátttakendur í Opnum landbúnaði vinsl. hafið samband við Berglindi Hilmarsdóttur verkefnisstjóra í netfangið dmb@bondi.is

Sértilboð til bænda
Borð / bekkur frá BYKO. BYKO býður upp á sambyggð borð og bekki af stærðinni 154 X 177 X 71 cm og eru úr gagnvarinni furu. Afhendist ósamsett.
Síminn hjá BYKO til þess að panta gripinn (Heiti: Garðborð/bekkur úr gagnvarinni furu, vörunúmer 0291450):
515-4000 (Reykjavík), 460-4860 (Akureyri) og 480-4600 (Selfoss).

Fánastangir: Ellingsen veitir bændum 10% afslátt af fánastöngum. Uppl. veitir Kristján verslunarstjóri, Fiskislóð 1, 101 Reykjavík, s. 580-8500. Einnig afgreiðsla á Tryggvabraut 1-3 á Akureyri, sími 460-3630.

Fánastangir frá BROS: Samskonar stangir og Ellingsen býður nema ekki með sökkli og íslenska fánanum. 6 metra há, fellanleg, glassfíber og gullhúnn. Litur hvítur. Sendið tölvupóst á sturlaugur@bros.is eða hringið í síma 569-9000 og biðjið um Sturlaug

Fáni Opins landbúnaðar: Til afgreiðslu endurgjaldslaust á skrifstofu BÍ. Pöntun sendist dmb@bondi.is

Gjafaefni fyrir yngstu kynslóðina: Órói með mynum af íslenskum húsdýrum. Þrjú litaspjöld í setti.Til afgreiðslu endurgjaldslaust á skrifstofu BÍ. Pöntun sendist dmb@bondi.is 

Hagtölur landbúnaðarins á íslensku: Bæklingur um helstu hagtölur landbúnaðarins. Einnig aðgengilegur á Netinu. Til afgreiðslu endurgjaldslaust á skrifstofu BÍ. Pöntun sendist dmb@bondi.is 

Hlífðarklæðnaður fyrir gesti: Þægilegir og rúmir tausloppar sem merktir eru Opnum landbúnaði. Til afgreiðslu endurgjaldslaust á skrifstofu BÍ. Pöntun sendist dmb@bondi.is Ath. að takmarkað magn er fyrir hendi. Bændum býðst einnig að fá einnota plastsloppa.

Léttur hlífðarklæðnaður fyrir bændur: Bændum bjóðast Regatta-hlífðarflíkur endurgjaldslaust, sérmerktar bænum og Opnum landbúnaði. Til afgreiðslu í júní. Nánari uppl. veitir Berglind: dmb@bondi.is

Skóhlífar: Skóhlífar úr plasti til að vernda skófatnað gesta en einnig vegna smitvarna. Til afgreiðslu endurgjaldslaust á skrifstofu BÍ. Pöntun sendist dmb@bondi.is 

Bolir: Svartir bolir merktir Opnum landbúnaði. Stærðir S-M-L-XL og XXL.  Til afgreiðslu endurgjaldslaust á skrifstofu BÍ. Pöntun sendist dmb@bondi.is Ath. að takmarkað magn er fyrir hendi.



Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi