WorldFengur

WorldFengur

WorldFengur - upprunaættbók íslenska hestsins
Forrit fyrir áhugafólk um íslenska hestinn um víða veröld

WorldFengur er alþjóðlegur gagnagrunnur um íslenska hestinn og er samstarfsverkefni Bændasamtaka Íslands og FEIF, alþjóðlegra samtaka eigenda íslenska hestsins. Gagnagrunnurinn var opnaður fyrir almenning í ágúst árið 2001 og var fjöldi áskrifenda orðin rúmlega eitt þúsund og þrjú hundruð í 16 löndum í október 2004. Með samningi Bændasamtaka Íslands við FEIF sem samþykktur var á aðalfundi samtakanna í Hamborg í febrúar 2009 var opnað fyrir alla félaga í FEIF að WorldFeng. Heildarfjöldi félaga er um 60.000 í 19 löndum. Allir félagar í Landssamtökum hestamannafélaga og Félagi hrossabænda eru með frían aðgang í gegnum félögum sín.

WorldFengur er heildarskýrsluhaldskerfi í hrossarækt á Íslandi og einnig hafa öll 19 aðildarlönd FEIF gerst aðilar að WorldFeng. WorldFengur er miðlægur gagnagrunnur á Internetinu og þannig er hann "lifandi upplýsingaveita" um íslenska hestinn. Samkvæmt ákvörðun íslenskra stjórnvalda og samþykkt FEIF þá er WorldFengur upprunaættbók íslenska hestsins.

Félög eiganda íslenska hestsins í Austurríki, Ástralíu, Bandaríkjunum, Belgíu, Bretlandi, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Hollandi, Kanada, Ítalíu, Lúxemborg, Noregi, Nýja-Sjálandi, Slóveníu, Sviss, Svíþjóð og Þýskalandi eru aðilar að samstarfinu um WorldFeng. Það þýðir að þau geta skráð inn upplýsingar með sama hætti og við hér á Íslandi og eru nokkur lönd búin að gera WorldFeng að ættbókarkerfi sínu svo sem Svíþjóð og Danmörk. Kynbótadómar m.a. í Austurríki, Bandaríkjunum, Danmörku, Finnlandi, Hollandi og Noregi eru skráðir beint í WorldFeng auk Íslands.

Hrossaræktendum um allan heim býðst að gerast áskrifendur að WorldFeng til uppflettinga. Sjá verðlista hér

  Leiðbeiningar
  Aðildalönd að FEIF




Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi