MARK

MARK

Einstaklingsmerkingar búfjár

Tölvukerfið MARK hefur verið opnað á Netinu á slóðinni www.bufe.is. Tölvukerfið er unnið fyrir landbúnaðarráðuneytið og eftirlitsaðili þess er Yfirdýralæknisembættið. Tölvukerfið er þróað af tölvudeild Bændasamtaka Íslands og byggir á reglugerð um einstaklingsmerkingar nr. 289/2005

Allir bændur í sauðfjár-, nautgripa- og svínarækt geta fengið aðgang að MARK. Með aðgangi að MARK geta bændur pantað viðurkennd plötumerki af Embætti yfirdýralæknis. Nautgripabændur geta jafnframt nýskráð gripi, skráð burð og flutningssögu gripa.

Megin hlutverk einstaklingsmerkingar er að tryggja:
  • rekjanleiki búfjárafurða frá upprunahjörð og/eða fæðingu viðkomandi dýrs til sölu afurða
  • grundvöll að markvissu matvæla- og búfjáreftirliti, eftirliti með flutningum dýra, skráningu búfjársjúkdóma og meðhöndlun þeirra.

Tölvukerfið MARK gerir það að verkum að grunnupplýsingar um búfé verða aðgengilegar á einum stað. Þannig eru gagnagrunnar búfjárskýrsluhaldsins hluti af MARK.

Til að fá aðgang að MARK skal hafa samband við tölvudeild Bændasamtakanna. Einnig má senda tölvupóst á netfangið mark@bondi.is með upplýsingum um nafn, kennitölu, búsnúmer/bæjarnúmeri og bæjarheiti. Bændum er síðan sendur veflykill í pósti sem er notaður til að nýskrá sig inn í kerfið.

Einstaklingsmerkin eru í þeim lit sem varnarhólf segir til um og eftirfarandi upplýsingarnar eru á merkjunum:
 
YD táknar Yfirdýralækni,
IS táknar Ísland,
123A12 er dæmi um landsmarkanúmer ,
5015 merkir einstaklingsnúmer gripsins þar sem 5 stendur
fæðingarári gripsins og 015 fyrir hlaupandi númer innan hjarðar.

Nálgast má svæðaskiptingu litamerkinga búfjár hér.


Hjarðbækur í nautgriparækt (Til að opna þessi skjöl þarf Acrobat Reader)

Einstaklingsmerki fyrir nautgripi
Einstaklingsmerkin eru gul að lit og eftirfarandi upplýsingarnar eru á merkjunum:
YD táknar Yfirdýralækni,
IS táknar Ísland,
152326 er dæmi um landnúmer (sex stafa) ,
1 er býlisskott ,
0567 er dæmi um fjögurra stafa einstaklingsnúmer gripsins.

Ísetningartangir

Boðið er upp á eftirfarandi tangir:




Létt áltöng sem fer vel í hendi og er auðveld í notkun. Aukanál fylgir.
Mælt er með notkun þessarar tangar ef merkja á hyrnt sauðfé

Combi Junior EID
Létt áltöng sem fer vel í hendi og er auðveld í notkun. Aukanál fylgir.
Er fyrir lesanleg og rafræn. Mælt er með notkun þessarar tangar ef merkja á hyrnt sauðfé





Sérstaklega ætluð fyrir nautgripi, vegna stærðar tangarinnar er ekki mælt með notkun hennar á hyrnt sauðfé.

Létt plasttöng með sjálfvirkri opnun sem fer vel í hendi og auðveld í notkun. Þegar búið er að klemma merkið í eyrað opnast töngin sjálfkrafa og eyrað er laust.

Merkjaframleiðandi ábyrgist ekki skemmdir á merkjum ef notaðar eru tengur frá öðrum framleiðendum.

Vinsamlegast sendið allar frekari fyrirspurnir á netfangið mark@bondi.is


Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi