Fjárvís

Fjárvís

Fjárvís

Forrit fyrir sauðfjárbændur



Fjárvís er forritið fyrir sauðfjárbændur, sem vilja hafa góða yfirsýn yfir fjárbúskapinn. Skýrsluhald búsins er fært beint í tölvuna og skilað til Bændasamtakanna á tölvutæku formi í stað handskrifaðra fjárbóka. Þetta eykur skilvirkni og öryggi gagnanna, sem sendar eru í landsuppgjörið. Margvíslegar skýrslur gefa bændum yfirgripsmiklar upplýsingar bæði fyrir hvert einstakt ár sem og öll árin sem færð hafa verið inn í tölvuna. Í stað þreytandi uppflettinga í mörgum fjárbókum nægir eitt lyklaborðsklikk til að fá heildaryfirlit svo sem um æviferil einstakra áa. Frá síðastliðnu hausti var unnt að fá upplýsingar um slátrun flestra slátursleyfishafa á tölvutæku formi og lesa inn í Fjárvísi. Hluti árgjalds fæst endurgreiddur ef notandi sendir inn haustbók á tölvutæku formi til BÍ, svo fremi að styrkur frá fjárræktarfélagi fáist. Fyrsta útgáfa Fjárvísar kom út árið 1993. Notendur Fjárvísar eru í dag um 500 talsins.


Nýtt!! Uppfærsla: Uppfærsla 5.6 fyrir Fjárvísi Upplýsingar um Fjárvís 5.6
Leiðbeiningar fyrir uppfærslu: Leiðbeiningar
Stuðingsvefur fyrir Fjárvís: Afurða- og ættbókhaldskerfi fyrir sauðfé



Fjárvís í netheimum (www.fjarvis.is)
Ný útgáfa af Fjárvísi á netinu var opnuð haustið 2006 - FJARVIS.IS. Þá fengu allir sauðfjárbændur sem þess óskuðu skoðandaaðgang að skýrsluhaldsgögnum sínum. Í febrúar 2007 var síðan opnaður skráningaraðgangur fyrir alla sauðfjárbændur sem höfðu skilað inn skýrsluhaldi vegna framleiðsluársins 2006. Þeir bændur sem eru komnir með aðgang að MARK (www.bufe.is) hafa einnig aðgang með sömu aðgangsorðum að www.fjarvis.is. Þar með eru bændur með aðgang að þremur netforritum með sömu aðgangsorðum því www.huppa.is hefur sömu aðgangsorð. Þetta er liður í þeirri áætlun tölvudeildar Bændasamtakanna að opna "bændatorg" á vefnum þar sem sami aðgangur veitir bændum allar upplýsingar úr miðlægum gagnagrunnum Bændasamtakanna á einum stað. Forsenda þess er að byggja upp miðlæga gagnagrunna að vefnum í samskonar umhverfi og að þessu hefur verið unnið á undanförnum árum.

Sauðfjárbændur geta þar með skilað skýrsluhaldi sínu rafrænt á vefnum með nýja Fjárvísi www.fjarvis.is. Dagsnámskeið á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands í FJARVIS.IS eru haldin í samvinnu við Bændasamtök Íslands og búnaðarsambanda öðru hverju víða um landið. Árið 2008 hafa verið haldin námskeið á Hellu og Hvanneyri. Næstu námskeið eru auglýst á www.bondi.is og á vef Landbúnaðarháskólans www.lbhi.is.  




Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi