Fjárhagur

Fjárhagur

Fjárhagur



Fjárhagskerfið er hjartað í dkBúbót.

Grunnur fjárhagsins hefur að geyma bókhaldslykla og dagbækur til að skrá og bóka hreyfingar. Öflugar uppflettivinnslur eru sem auðvelda allar fyrirspurnar- og leitaraðgerðir. Færslur má rekja þangað sem þær enda, í fjárhag, eða til upprunans í hvaða undirkerfi sem er.



Með dkBúbót koma uppsettir bókhaldslyklar og búgreinar. Búið er að endurbæta bókhaldslyklana sem notendur eldri Búbót þekkja. Búið er að bæta við ýmsum bókhaldslyklum er varðar hliðarbúgreinar eins og garðyrkju, ferðaþjónustu og ýmsa verktakastarfsemi.

Mikilvægur hluti fjárhagsins er innskráning á fylgiskjölum. Við hönnun á dkBúbót hefur mikil áhersla verið lögð á að gera þessa vinnslu sem þægilegasta til að auðvelda fyrir innslætti. Notandi stofnar sér dagbók (færslubók), gefur henni síðan heiti sem lýsir innihaldi dagbókarinnar. Dagbókinni má einnig gefa allt að 4 stafa auðkenni (getur t.d. verið B1 fyrir blað 1).



Við sjáum hér hreyfingar eins bókhaldslykils. Við höfum möguleika á því að skoða allar færslur sem eru á því fylgiskjali í þeirri færslu sem við erum stödd í með því að smella á Fylgiskjals hnappinn. Í F5 Valmynd höfum við möguleika á að skoða frekari upplýsingar um þá færslu sem við erum stödd í, skoða uppruna færslunnar, sía út einhverjar ákveðnar færslur og margt fleira.

Mjög auðvelt er einnig fyrir notandann að fylgjast með “stóru myndinni” og bora sig (e: Drill Down) sig síðan niður í gögnin niður á einstakar hreyfingar.

Kröfur til búnaðar: Tölva með a.m.k. 200 Mhz örgjörva, 64 Mb vinnsluminni og 300 Mb lausu diskaplássi. dkBúbót keyrir í eftirfarandi stýrikerfum: Windows 95, 98, 2000, ME, NT og XP.



Með því að smella á plús táknið fyrir framan einstaka liði má opna niður á neðra þrep og síðan má tvísmella á neðsta þrepi og sjá hreyfingar sem tilheyra því þrepi (bókhaldslykli).

Ýmsar fjárhagsskýrslur fyrir stjórnendur, eins og ársreikning, sundurliðun ársreiknings, sjóðstreymi og má prenta á prentara eða skjáinn. Möguleiki er að skoða þessar skýrslur með samanburði við önnur bókhaldstímabil nú eða fjárhagsáætlanir.

Í dkBúbót er haldin nákvæm skrá yfir allar eignir búsins og á grundvelli hennar eru reiknaðar út afskriftir og endurmat og það síðan bókað inn í fjárhaginn. Ýmsar skýrslur má prenta út, svo sem eignaskýrslu og fyrningarskýrslur (RSK 4.01).

Í dkBúbót er að finna mjög öfluga framlegaðargreiningu. Sjá má framlegð einstakra búgreina og framlegðarstig. Prenta má út ýmsar framlegðarskýrslur.





Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi