dkBúbót
dkBúbót
Bókhaldsforrit fyrir bændur
Bókhaldsforrit fyrir bændur
- dkBúbót er Windows kerfi til að aðstoða bændur við færslu bókhalds og framtalsgerð. dkBúbót var sett á markað í lok febrúar 2002. Kerfið tekur saman virðisaukaskattsskýrslur samkvæmt innfærðu bókhaldi búsins og býður upp á að útbúa skattskýrslu, hvort sem er landbúnaðarframtal (RSK 4.08) eða rekstrarframtal (RSK 1.04) fyrir árið.
dkBúbót byggist að grunni til á dk viðskiptahugbúnaðinum frá dkRetis ehf. í Kópavogi en hefur þó verið aðlagað að þörfum bænda. Kerfið nýtir sér alla kosti Windows kerfa og býður upp á góða yfirsýn og fjölbreytta valmöguleika. Greining á niðurstöðum bókhaldsins á hverjum tíma er leikur einn með kerfinu.
dkBúbót skiptist í 2 mismunandi kerfi eftir þörfum notandans.
| Grunnútgáfa: | Fjárhagskerfi (allar almennar vinnslur , eignir , framtal, framlegðargreining) Skuldunautakerfi (allar almennar vinnslur) Launakerfi ( allar almennar vinnslur) Lánadrottnakerfi (allar almennar vinnslur) Sölukerfi (allar almennar vinnslur) |
| Full útgáfa: | Allt það sama og grunnútgáfan að viðbættu Greiningavinnslur í fjárhag, skuldunautum og lánadrottnum Verkbókhald Birgðakerfi |