CFC Avlersystem
CFC Avlersystem
Forrit fyrir loðdýrabændur
CFC Avlersystem er frá dönsku loðdýraræktarsambandinu (DPA). IBM í Danmörku smíðaði forritið fyrir DPA og er forritið Windows forrit með tengingu við Internetið m.a. til að taka við nýjum uppfærslum. Bændasamtökin gerðu þjónustusamning fyrir nokkrum árum við DPA um sölu og þjónustu á forritinu fyrir íslenska loðdýrabændur. Forveri CFC Alversystem var DanMink, sem var Dos forrit, og var lagt af árið 1999. CFC Alversystem er hagnýtt hjálpartæki til flokkunar á lífdýrum þar sem einkunnir eru notaðar til úrvals. Í skýrsluhaldi BÍ voru 9 í CFC-Alversystem og 20 notendur á eigin tölvu.