Fréttir

Fréttir

22-des.-11

Um greiðslur á geymslugjaldi samkvæmt sauðfjársamningi

Mynd með fréttVart hefur orðið misskilnings þess efnis að von sé á geymslugjaldsgreiðslu nú fyrir áramótin til sauðfjárbænda. Svo er þó ekki.
Áfram


21-des.-11

Hrúturinn Grábotni gaf flesta sæðisskammta í ár

Mynd með fréttNú er vertíðinni lokið á sauðfjársæðingastöðvunum en síðasti sæðistökudagurinn var í dag á báðum stöðvunum. Undanfarin ár hafa um 800 bændur nýtt sér sauðfjársæðingar að einhverju leyti. Fyrir ári síðan voru sæddar tæplega 30.000 ær eða rétt innan við 10% af öllu ásettu fé í landinu.
Áfram


15-des.-11

Uppgjör sauðfjárræktarinnar árið 2011

Mynd með fréttUppgjör á skýrslum fjárræktarfélaganna fyrir árið 2011 er þegar hafið og gengur vel þessa dagana. Listar yfir efstu búin í kílóum eftir kind og svo yfir þá sem eru yfir 8 í gerð eru þegar aðgengilegir á vefnum. Við þá bætist síðan jafnt og þétt eftir því sem uppgjörinu miðar áfram.
Áfram


08-des.-11

MS-fyrirlestur um rafrænt kjötmat

Mynd með fréttEyþór Einarsson heldur opinn fyrirlestur um meistaraverkefni sitt við Auðlindadeild Lbhí, miðvikudaginn 14. desember kl. 15 í Ásgarði á Hvanneyri.
Áfram


14-nóv.-11

Hrútaskrá 2011-2012 er komin á vefinn

Mynd með fréttHrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna er nú aðgengileg á Netinu. Prentútgáfan verður tilbúin í lok vikunnar og fer þá í póst til bænda. Einnig er hægt að skoða hrútana á vef Búnaðarsambands Suðurlands ...
Áfram


12-nóv.-11

Afkvæmarannsóknir fyrir sauðfjársæðingastöðvarnar haustið 2011

Mynd með fréttBúið er að taka saman yfirlit um niðurstöður afkvæmarannsókna sem unnar voru vegna sauðfjársæðingastöðvanna haustið 2011. Hægt er að kynna sér þær niðurstöður ...
Áfram


11-okt.-11

Tjón vegna álfta og gæsa

Mynd með fréttÁlft og gæs valda miklu tjóni á ræktarlöndum ár hvert. Til þess að afla frekari gagna um tjón vilja Bændasamtökin beina því til bænda að fylla út meðfylgjandi eyðublað og senda til samtakanna á netfangið bpb@bondi.is.
Áfram


07-okt.-11

Námskeið í gæðastýrðri sauðfjárrækt

Mynd með fréttDagana 7. - 11. nóvember verða haldin 1-3 námskeið í gæðastýrðri sauðfjárrækt. Staðsetning og fjöldi námskeiða fer eftir því hvaðan þátttakendur eru og fjölda þeirra.
Áfram


26-sep.-11

Frjósemi hjá dætrum sæðingastövarhrútanna vorið 2011

Eins og á undanförnum árum hafa rauntölur um frjósemi hjá þrem yngstu árgöngum dætra stöðvarhrútanna verið teknar saman í töflu sem má skoða hér. Skil í skýrsluhaldinu eru meiri en nokkru sinni og því er þarna ákaflega mikið magn upplýsinga.
Áfram


29-ágú.-11

Fjár- og stóðréttir haustið 2011

Mynd með fréttEins og undanfarin ár hafa Bændasamtökin tekið saman lista yfir helstu fjárréttir og stóðréttir á landinu á komandi hausti. Samkvæmt upplýsingum Bændasamtakanna verða fyrstu fjárréttir haustsins laugardaginn 3. september nk. en þá verður réttað á sex stöðum norðanlands, í Eyjafirði, Skagafirði og Húnavatnssýslum. Fyrsta stóðrétt haustsins verður einnig sama dag, Miðfjarðarrétt í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu.
Áfram


17-ágú.-11

Haustfundir Landssamtaka sauðfjárbænda

Mynd með fréttLandssamtök sauðfjárbænda gangast fyrir opnum haustfundum þessa dagana. Fundirnir verða haldnir á sjö stöðum á landinu dagana 16.-18. ágúst. Formaður, framkvæmdastjóri og stjórnarmenn í í LS munu þar fjalla um stöðu og horfur innan greinarinnar.
Áfram


15-júl.-11

Viðmiðunarverð kindakjöts 2011 hækkar um 25%

Mynd með fréttLandssamtök sauðfjárbænda hafa gefið út viðmiðunarverð á lamba- og kindakjöti til bænda fyrir árið 2011. Að þessu sinni hækkar verðskráin um 25% frá fyrra ári. Að baki því liggur að markaðsaðstæður hafa verið góðar fyrir sauðfjárafurðir undanfarin misseri.
Áfram


09-jún.-11

BLUP kynbótamatið í sauðfjárrækt 2011

Mynd með fréttFyrir nokkru er lokið vinnslu á BLUP kynbótamatinu í sauðfé árið 2011. Niðurstöður hafa verið aðgengilegar einstökum fjáreigendum á FJARVIS.IS í nokkurn tíma fyrir eigin bú. Töflur um hæstu hrúta úr kynbótamatinu yfir allt landið fyrir einstaka eiginleika ásamt umfjöllun um þær eru nú komnar á vefinn.
Áfram


01-jún.-11

Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt

Mynd með fréttNámskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt standa fyrir dyrum næstu daga. Eitt af grunnskilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýringunni er að hafa sótt undirbúningsnámskeið en þau verða haldin á eftirfarandi þremur stöðum:
Áfram


20-apr.-11

Niðurstöður afkvæmarannsókna á hrútum hjá búnaðarsamböndunum haustið 2010

Mynd með fréttNú er búið að safna saman niðurstöðum úr öllum afkvæmarannsóknum á hrútum sem unnar voru á vegum búnaðarsambandanna haustið 2010. Umfang rannsóknanna var meira en nokkru sinni.
Áfram


08-apr.-11

Bændatorgið komið í notkun

Mynd með fréttBændatorg, upplýsingagátt fyrir bændur og ráðunauta, er ný vefþjónusta frá BÍ sem er komin í notkun. Í hægra horninu uppi á bondi.is er hnappur sem heitir "Bændatorg". Þegar smellt er á hann birtist innskráningargluggi inn á Bændatorgið þar sem notendur geta náð í margvíslegar upplýsingar úr sínum búrekstri.
Áfram


08-apr.-11

Hæstu hrútar í afkvæmarannsóknum hjá búnaðarsamböndunum haustið 2010

Mynd með fréttAfkvæmarannsóknir á hrútum fyrir kjötgæði hjá búnaðarsamböndunum haustið 2010 voru meiri að umfangi en nokkru sinni áður og samtals yfir 2500 afkvæmahópar sem þar fengu sinn dóm.
Áfram


07-apr.-11

Bein útsending frá aðalfundi LS

Mynd með fréttAðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda hefst í dag, fimmtudag, kl. 13:00 í Bændahöllinni í Reykjavík. Fundurinn stendur fram undir helgi en árshátíð LS verður haldin á föstudagskvöldinu.
Áfram


18-mar.-11

Umsóknir um leyfi til að selja líflömb 2011

Mynd með fréttSauðfjárbændur sem ætla að sækja um nýtt leyfi til að selja líflömb skulu senda skriflega umsókn til Matvælastofnunar eigi síðar en 1. apríl 2011 á eyðublöðum sem finna má á www.mast.is eða með því að hafa samband í síma 530-4800 og fá þau send.
Áfram


29-des.-10

Breytingar á lögum er varða gjaldfærslu við kaup á greiðslumarki

Mynd með fréttÁ Alþingi voru samþykkt lög um breytingar á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld þann 18. desember sl. og þar með breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum. Þar var felld niður heimild til að færa niður stofnkostnað við kaup á framleiðslurétti í landbúnaði.
Áfram


20-des.-10

Metmagn af sæði hjá Grábotna

Mynd með fréttVið sæðistöku í gærmorgun á Sauðfjársæðingastöð Suðurlands brá svo við að hrúturinn Grábotni 06-833, sem kom nýr inn á sæðingastöðina haustið 2009, setti nýtt met í sæðismagni sem gefið hefur verið á einum degi. Samtals gaf hann 280 sæðisskammta, en gott þykir ef hrútur skilar 100 skömmtum.
Áfram


16-nóv.-10

Hrútaskráin kemur út - kynningarfundir

Mynd með fréttPrentaða útgáfa Hrútaskrárinnar fer í dreifingu 18. nóvember nk. Hefur þeirrar útgáfu að venju verið beðið með mikilli eftirvæntingu meðal sauðfjárbænda, en henni verður fylgt eftir með fundum um allt land, þar sem hrútakostur sæðingastöðvanna er kynntur. Á kynningarfundunum verður að vanda komið á framfæri ýmsum viðbótarupplýsingum um hrútakostinn, framkvæmd sæðingastarfsins á viðkomandi svæði auk almennrar umfjöllunar um ræktunarstarfið í sauðfjárrækt.
Áfram


11-nóv.-10

Vefútgáfur Hrútaskránna komnar út

Mynd með fréttHrútaskrárnar fyrir veturinn 2010-2011 eru komnar á vefinn og má finna undir Fræðsluefni í sauðfjárræktarhluta vefsins. Að venju eru gefnar út tvær skrá; fyrir Suðurland og Vesturland. Áætlað er að prentaða útgáfa hrútaskráarinnar komi út þann 17. nóvember nk. og verður þeirri útgáfu fylgt eftir með kynningu í sveitum líkt og venja er.
Áfram


10-nóv.-10

Uppgjör sauðfjárræktarinnar árið 2010 – aldrei betri niðurstöður

Mynd með fréttUppgjör á skýrslum fjárræktarfélaganna fyrir árið 2010 er þegar hafið. Það er fyrr á ferðinni en nokkru sinni áður. Afrekslistarnir eru þegar aðgengilegir á vefnum. Við þá bætist síðan jafnt og þétt eftir því sem uppgjörinu miðar áfram. Af þessum fyrstu tölum er hins vegar strax ljóst að afurðir eru meiri og kjötmatsniðurstöður betri haustið 2010 en áður hefur sést.
Áfram


09-nóv.-10

Samið um ullarverð

Mynd með fréttGengið hefur verið frá samningi milli LS, BÍ og Ístex um ullarverð til bænda næstu 12 mánuði. Verðið hækkar um 8,92% að meðaltali frá fyrra ári, en að þessu sinni hækka bestu flokkarnir meira en þeir lakari svo verðmunur milli flokka eykst.
Áfram


05-nóv.-10

Niðurstöður liggja fyrir úr skoðun lambhrútanna haustið 2010 sem eru úr sæðingum

Mynd með fréttBúið er að taka saman niðurstöðurnar fyrir allt landið úr skoðun sona sæðingastöðvahrútanna haustið 2010. Þær niðurstöður má allar sjá með því að smella hér. Í heilda hefur glæsileiki lambahópanna aldrei verið eins mikill áður og hann var síðasta haust eins og tölurnar tala sínu máli um.
Áfram


05-nóv.-10

Nýir hrútar: Sómi

Mynd með fréttSómi er fæddur á Heydalsá vorið 2007, en hann var seldur sem lamb um haustið að Þorpum í sömu sveit. Hann er hvítur og kollóttur. Faðir hans er Bogi 04-814, en móðurfaðir hans Púki 03-022 var frá Broddanesi I.
Áfram


05-nóv.-10

Nýir hrútar: Máni

Mynd með fréttMáni er fæddur á Hesti vorið 2009 og er hann hvítur og hyrndur. Hann er fæddur gemlingslamb og var faðir hans Náttar 08-221, en rekja þarf nokkra ættliði þar til kemur að sæðingahrútum og birtist Fróði 04-963 þar fyrstur sem sýnir hve ættliðabil er stutt í fyrstu kynslóðum.
Áfram


03-nóv.-10

Nýir hrútar: Kostur

Mynd með fréttKostur er fæddur í Ytri-Skógum vorið 2009 og er hann hvítur og hyrndur. Faðir hans Steri 08-349 er samfeðra Kjarki 08-840 og atti kappi við hann í rannsókninni haustið 2009. Kostur er þannig sonarsonur Kveiks 05-965.
Áfram


02-nóv.-10

Nýir hrútar: Gosi

Mynd með fréttGosi er fæddur í Ytri-Skógum vorið 2009 og er faðir hans Lundi 03-945 en móðurfaðir hans er Alki 06-297, sem einnig er faðir Fannars 07-808. Gosi er hvítur og hyrndur og hann er stórglæsilegur einstaklingur að gerð.
Áfram


01-nóv.-10

Nýir hrútar: Geysir

Mynd með fréttGeysir er fæddur á Hofi í Öræfum vorið 2007 en var seldur um haustið að Svínafelli I í sömu sveit. Hann kemur á stöð eftir afkvæmarannsókn á Hofi haustið 2010 vegna stöðvanna, þar sem öttu kappi nokkrir úrvalshrútar undan Rafti 05-966 úr sveitinni ásamt fleiri hrútum.
Áfram


01-nóv.-10

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar eftir afkvæmarannsóknirnar haustið 2010

Mynd með fréttÁ næstu dögum mun birtast á sauðfjárræktarsvæðinu stutt kynning á þeim fimm nýju hrútum sem komnir eru inn á sæðingastöðvarnar haustið 2010, eftir að sérstökum afkvæmarannsóknum vegna stöðvanna er lokið. Fyrsti hrúturinn í þeirri kynningu er Geysir frá Svínafelli I.
Áfram


25-okt.-10

Afkvæmarannsóknir fyrir sauðfjársæðingastöðvarnar haustið 2010

Mynd með fréttBúið er að taka saman yfirlit um niðurstöður afkvæmarannsóknanna sem unnar voru vegna sauðfjársæðingastöðvanna haustið 2010. Hægt er að kynna sér þær niðurstöður hér.
Áfram


12-okt.-10

Námskeið í ullarflokkun haustið 2010

Mynd með fréttUllarmatsnefnd og Landssamtök sauðfjárbænda í samvinnu við Endurmenntun LbhÍ standa fyrir námskeiðum í ullarflokkun víðsvegar um land, sem haldin verða í byrjun nóvember. Námskeiðin verða haldin í fjárhúsum hjá bændum þar sem rúið verður og ullin flokkuð jafnóðum. Auk þess verður farið yfir reglur um ullarflokkun og sýndar myndir til skýringar.
Áfram


07-okt.-10

Nýir hrútar: Valur

Mynd með fréttValur er fæddur vorið 2006 á Melum 2 í Árneshreppi en seldur sem lamb að Tröllatungu í Steingrímsfirði þaðan sem stöðvarnar keyptu hann vorið 2010. Hann er sonur Mána 03-975 en móðurfaðir hans Styggur 99-877 og þegar móðurliðurinn er rakinn frekar koma þar í röðum þekktir kappar frá Melum; Toppur 00-897 og Bassi 95-821. Náskyldir gripir úr móðurætt hans hafa nokkrir farið til kynbóta í önnur héruð og reynst afbragðsvel.
Áfram


06-okt.-10

Nýir hrútar: Laufi

Mynd með fréttLaufi er fæddur á Bergsstöðum á Vatnsnesi vorið 2008 og er hann sonur Púka 06-807 en móðurfaðir hans er Lási 02-944 sem reynst hefur einhver öflugasti ærfaðir sem á stöðvunum hefur nokkru sinni verið. Lengra að baki í móðurætt eru fjölmargir sterkir stofnar úr ræktuninni á Bergsstöðum.
Áfram


05-okt.-10

Nýir hrútar: Lagður

Mynd með fréttLagður er fæddur vorið 2007 á Brún í Reykjadal. Faðir hans er Lundi 03-945 en móðurfaðir hans Trantur 01-196 var sonur Túla 98-858. Þegar móðurætt er skoðuð lengra aftur er hann úr langri og traustri ræktun á búin þar sem lengra aftur gæti mikið þekktra stöðvarhrúta frá þeim tíma. Lagður vakti strax haustið 2008 athygli fyrir mjög athyglisverð sláturlömb en þau voru mjög þroskamikil með mjög gott vöðvamat og litla fitu.
Áfram


04-okt.-10

Nýir hrútar: Jökull

Mynd með fréttJökull er fenginn frá Bjarnastöðum í Öxafirði þar sem hann er fæddur vorið 2007. Faðir hans Sunni 05-043 á Gunnarsstöðum skildi eftir sig feikilega öflugan hrútahóp sem fæddur var 2007, þar sem Jökull er toppurinn á ísjakanum. Sunni var að öllu ættaður frá Snartastöðum úr þeirri öflugu ræktun sem þar er en Lækur 97-843 er þar mikið að baki. Móðurættin er ekki síður traust ræktun, þar sem Gári 02-904 er móðurfaðir og Fengur 02-151, sem var úrvalshrútur undan Lóða 00-871 kemur þar næst.
Áfram


01-okt.-10

Nýir hrútar: Hukki

Mynd með fréttHukki er fæddur á Kjarláksvöllum í Saurbæ vorið 2006 og er hann sonur Lunda 03-945 en í móðurætt er hann úr öflugri heimaræktun þar sem Moli 93-986 stendur næstur sæðingastöðvahrúta.
Áfram


30-sep.-10

Nýir hrútar: Gangur

Mynd með fréttGandur er fæddur vorið 2007 að Garðsá í Eyjafjarðarsveit. Þegar var farið að leita meðal sona Grána 03-957 að verðugum arftaka hans beindist athyglin strax að Gandi. Móðurfaðir hans er hins vegar Spakur 00-909 og nokkuð lengra að baki á móðurhliðina kemur Mjölnir 94-833.
Áfram


29-sep.-10

Nýir hrútar: Frosti

Mynd með fréttFrosti er fæddur á Bjarnastöðum í Öxafirði vorið 2007. Þegar farið var að velja þá hrúta sem teknir yrðu á stöðvarnar vorið 2010 var ákveðið að aðeins einn sonur Rafts 05-966 yrði tekinn og það að Frosti varð fyrir valinu segir mikið um hann. Í móðurætt er hann úr hinni sterku ræktun á Bjarnastöðum þar sem þekktir afkomendur þeirra Lækjar 97-843 og Mola 93-986 koma næstir á þá hliðina.
Áfram


28-sep.-10

Nýir hrútar: Bokki

Mynd með fréttBokki er fæddur vorið 2006 á Dunki í Hörðudal og er faðir hans Þokki 01-878 en móðurfaðir hans Glæsir 98-876 og þegar ættir hans eru raktar nokkuð lengra aftur birtast þar á móðurhliðina hyrndir eldri hrutar af stöðvunum frá Hesti sem sköpuðu sér þar frægð á fyrri árum.
Áfram


27-sep.-10

Nýir hrútar: Bátur

Mynd með fréttÁ næstu dögum mun birtast hér á vefnum kynning á nýjum hrútum á sæðingastöðvunum sumarið 2010. Á síðustu árum haf slíkar kynningar verið viðhafðar til að gefa forsmekk að hrútaskrá haustsins. Fyrsti hrúturinn sem hér verður kynntur til leiks er Bátur. Hópur nýju hrútanna frá sumrinu telur níu gripi (Því miður drapst einn hrútur eftir að þeir voru komnir í einangrunargirðingarnar). Þessir hrútar eru sóttir vítt og breitt um landið af þeim svæðum sem stöðvarnar hafa leyfi til að sækja slíka gripi, en nær helmingur landsins er bannsvæði í þeim efnum.
Áfram


06-sep.-10

Frjósemi hjá dætrum sæðingastöðvarhrúta vorið 2010

Mynd með fréttEnginn eiginleiki er þýðingarmeiri en frjósemi ánna til að tryggja hagkvæmni í sauðfjárframleiðslunni. Búið er að safna saman upplýsingum um frjósemi dætra sæðingastöðvarhrútanna, sem komnar eru með slíkar upplýsingar frá vorinu 2010, í skýrsluhaldi fjárræktarfélaganna. Niðurstöðurnar hafa verið dregnar saman í töflu á hliðstæðan hátt og gert hefur verið síðustu árin.
Áfram


24-ágú.-10

Fjár- og stóðréttir haustið 2010

Mynd með fréttEins og undanfarin ár hafa Bændasamtökin tekið saman lista yfir helstu fjárréttir og stóðréttir á landinu á komandi hausti. Nokkrar breytingar hafa orðið á tímasetningum fjárrétta haustsins Þær eru helstar að breytingar hafa orðið á dagsetningum þriggja rétta á Langanesi. Þær eru Hallgilsstaðarétt sem verður 10. september, Ósrétt sem verður 9. september og Tunguselsrétt sem verður 14. september. Þá hefur Grafarrétt í Skaftártungu verið frestað um viku og verður hún 18. september.
Áfram


20-ágú.-10

Við upphaf á leitum og göngum

Mynd með fréttÞorsteinn Ólafsson dýralæknir nautgripa- og sauðfjársjúkdóma hjá Matvælastofnun hefur tekið saman stuttar leiðbeiningar um hvað helst ber að varast og hvernig best er að bera sig að til að allir, dýr og menn, komi heilir heim.
Áfram


11-ágú.-10

LS gefur út viðmiðunarverð kindakjöts fyrir komandi sláturtíð

Mynd með fréttStjórn Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) hefur gefið út viðmiðunarverðskrá á kindakjöti fyrir komandi sláturtíð. Verðskráin hækkar um 5 prósent frá fyrra ári en sú hækkun er nánast á pari við hækkun vísitölu neysluverðs frá síðasta ári.
Áfram


08-júl.-10

BLUP-kynbótamatið í sauðfé árið 2010

Mynd með fréttNú er búið að vinna BLUP-kynbótamatið í sauðfjárræktinni fyrir árið 2010. Hluti niðurstaðna hafa verið birtar hér á vefnum en textaskýringar við töflur verða settar inn jafnóðum og þær eru tilbúnar. Töfluyfirlit vegna ársins 2010 má...
Áfram


04-jún.-10

Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt - 14. júní

Mynd með fréttFyrirhugað er að halda námskeið vegna gæðastýringar í sauðfjárrækt á Stóra Ármóti, mánudaginn 14. júní, Hvanneyri þriðjudaginn 15. júní og einhvers staðar á Norðurlandi/Austurlandi, föstudaginn 18. júní. Nánar auglýst síðar.
Áfram


21-maí-10

Leiðbeiningarit um mat á sauðfjárhögum

Mynd með fréttLandgræðslan gaf nýlega út leiðbeiningarit sem nefnist „Sauðfjárhagar – Leiðbeiningar við mat á ástandi beitilanda“. Eins og nafnið bendir til er því ætlað að gefa einfaldar leiðbeiningar um mat á ástandi beitilanda með sérstaka áherslu á sauðfjárbeit. Ritið er ætlað bændum, búfjáreftirlitsmönnum, gróðurverndarnefndum og öðrum þeim sem bera hag lands og sauðfjár fyrir brjósti.
Áfram


17-maí-10

Ábendingar vegna langrar innistöðu sauðfjár

Mynd með fréttBændum er ráðlagt að hafa samráð við sína dýralækna um fyrirbyggjandi aðgerðir vegna langrar innistöðu, þröngra beitarhólfa og hey- og kjarnfóðurgjafar.
Áfram


10-maí-10

Afkvæmarannsóknir á hrútum fyrir kjötgæðaeiginleika haustið 2009

Mynd með fréttHaustið 2009 var umfang afkvæmarannsókna á hrútum sem unnar voru á vegum búnaðarsambandanna um allt land meira en nokkru sinni. Rannsóknir voru gerðar á samtals 269 búum og voru yfir 2.400 afkvæmahópar sem þar fengu sinn dóm. Allar niðurstöður úr einstökum rannsóknum hafa nú verið settar á vefinn og má sjá...
Áfram


10-maí-10

Leyfi til að flytja líflömb á milli svæða

Mynd með fréttÞeir sem sækja um leyfi til að flytja líflömb milli varnarhólfa skulu sækja um það til Matvælastofnunar fyrir 1. júlí á sérstökum eyðublöðum, sem eru að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Matvælastofnun veitir leyfi fyrir 1. ágúst eða hafnar umsókninni ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði reglugerðarinnar.
Áfram


16-apr.-10

Toppar úr afkvæmarannsóknum hrúta haustið 2009

Mynd með fréttHaustið 2009 var umfang afkvæmarannsókna á hrútum meira en nokkru sinni. Nokkuð á þriðja þúsund afkvæmahópar voru dæmdir þannig. Á vefnum hefur nú birst árlegur listi um hæstu hrútana sem skoða má hér. Efstur allra hrútanna er Gellir 07-306 í Leirhöfn á Sléttu.
Áfram


16-apr.-10

Mikilvægt að allir bændur fylgist með áhrifum eldgossins

Mynd með fréttBændur á Suðurlandi og austur í Skaftafellssýslum standa nú í ströngu vegna gossins í Eyjafjallajökli og afleiðinga þess. Bændasamtökin hafa komið á fót viðbragðshópi sem í eru starfsmenn og stjórnarmenn og fundaði hann í gær. Ýmsar spurningar vakna eðlilega við hamfarir sem þessar, m.a. um áhrif öskufalls, mögulega flutninga á bústofni, tryggingamál, fóðurbirgðir og flutninga.
Áfram


12-apr.-10

Verðlaun fyrir bestu hrútana

Mynd með fréttViðurkenning fyrir bestu hrúta sæðingastöðvanna var veitt á afmælisráðstefnu Landsamtaka sauðfjárbænda 9. apríl. Á síðasta ári hófu stöðvarnar að veita þessa viðurkenningu sem eru farandgripir og mikil listaverk eftir Sigríði Kristjánsdóttur á Grund, styttur af hrúti.
Áfram


16-mar.-10

Umsóknir um leyfi til að selja líflömb 2010

Mynd með fréttSauðfjárbændur sem ætla að sækja um nýtt leyfi til að selja líflömb skulu senda skriflega umsókn til Matvælastofnunar eigi síðar en 1. apríl 2010 á eyðublöðum sem finna má á www.mast.is eða með því að hafa samband í síma 530-4800 og fá þau send.
Áfram


21-des.-09

Raftur 05-966 slær öll eldri met

Mynd með fréttNú er lokið útsendingu sauðfjársæðingastöðvanna á hrútasæði þetta árið. Starfsemin hefur gengið ákaflega vel og þátttaka í starfinu er meiri en áður. Nánar má lesa um það á heimasíðum stöðvanna (www.buvest.is og www.bssl.is).
Áfram


11-des.-09

Ný útgáfa af Sauðfjárbókinni komin út

Mynd með fréttNý útgáfa af Sauðfjárbókinni er komin út og fæst hún hjá Bændasamtökunum. Sauðfjárbókin hefur verið gefin út frá árinu 1951 en þrátt fyrir að nú séu bændur í æ ríkari mæli að taka tölvutæknina í sína þjónustu gegnir bókin enn mikilvægu hlutverki í sauðfjárskýrsluhaldi.
Áfram


07-des.-09

Niðurstöður sauðfjársæðinganna í desember 2008

Mynd með fréttSæðingar sauðfjár eiga sér lengri sögu hér á landi en í flestum öðrum löndum. Þær hafa orðið sífellt veigameiri þáttur við dreifingu á besta erfðaefninu í stofninum á hverjum tíma. Ræktunarárangur vegna þessa starfs er mikill og augljós flestum fjárbændum.
Áfram


13-nóv.-09

Fundir um sauðfjársæðingar

Mynd með fréttBúnaðarsamböndin um allt land gangast fyrir kynningarfundum á sauðfjársæðingastarfseminni í desember 2009. Fundirnir verða með líku sniði og undanfarin ár. Skipulag starfsins í desember verður kynnt auk hrútakosts stöðvanna. Hrútaskránni verður jafnframt dreift á fundunum.
Áfram


10-nóv.-09

Glæsilegar niðurstöður úr lambaskoðunum haustið 2009

Mynd með fréttNýlega er lokið uppgjöri á lambaskoðunum fyrir þau hrútlömb sem komu til skoðunar vítt um land haustið 2009 undan sæðingahrútum. Vegna þess hve gagnagrunnur sauðfjárræktarinnar er umfangsmikill er mögulegt orðið að sjá hve stór hluti þeirra lamba af þessum uppruna kemur til skoðunar.
Áfram


03-nóv.-09

Neisti

Mynd með fréttNeisti er fæddur hjá Ragnari á Heydalsá vorið 2006 Hann er sonur Boga 04-814 en móðurfaðir hans Kútur 03-937, sem því miður notaðist aðeins eitt ár á sæðingastöð, en er að verða með meiri ættfeðrun hjá kollótta fénu í landinu í dag.
Áfram


02-nóv.-09

Logi

Mynd með fréttLogi er fæddur á Melum 1 í Árneshreppi vorið 2007 og er faðir hans Þór 06-400, sem reynst hefur góður kynbótahrútur, en rekja þarf föðurlínuna frá Loga í fjóra liði áður en komið er að Mána 03-975. Móðurfaðir Loga er hins vegar Partur 99-914. Logi vakti athygli veturgamall í afkvæmarannsókn hrútanna á Melum þar sem fram komu nokkur úrtökugóð hrútlömb undan honum.
Áfram


30-okt.-09

Kjarkur

Mynd með fréttKjarkur var fenginn til notkunar á stöð á grunni niðurstaðna úr afkvæmarannsókn veturgömlu hrútanna í Ytri-Skógum haustið 2008. Kjarkur er fæddur þar á bæ vorið 2008 og er faðir hans Kveikur 05-965 en móðurfaðir hans er Lómur 02-923.
Áfram


29-okt.-09

Afurðauppgjör í sauðfjárræktinni 2009

Mynd með fréttFyrstu uppgjörunum í afurðaskýrsluhaldi sauðfjárræktarinnar árið 2009 er lokið. Þetta er nær mánuði fyrr en áður hefur verið. Yfirlit um niðurstöður er hægt að skoða hér eins og áður hefur verið. Þessi yfirlit um hæstu bú samkvæmt mismunandi skilyrðum eru síðan uppfærð jafnskjótt og nýir aðilar koma til uppgjörs. Samkvæmt venju mun stór hluti búanna varla hafa lokið sínu uppgjöri fyrr en um áramót, þannig að heildarmynd um niðurstöður ársins 2009 liggi fyrir.
Áfram


29-okt.-09

Hólmi

Mynd með fréttHólmi er annar tveggja hrúta sem komu úr afkvæmarannsókninni á Hesti haustið 2009 og er hann fæddur þar vorið 2008. Í tveim fyrstu ættliðum er ekki að finna stöðvarhrúta en eins og sjá má í ætternisupplýsingum koma þeir að fullum þunga í þriðja ættlið, þar sem Hylur 01-883 er föðurföðurfaðir, Lækur 97-843 er móðurföðurfaðir og Askur 97-835 er móðurmóðurfaðir og hann kemur einnig inn á föðurhlið í fjórða ættlið.
Áfram


28-okt.-09

Broddi

Mynd með fréttBroddi er fæddur í Broddanesi I vorið 2007 og faðir hans er Bogi 06-776 á Heydalsá I sem er hyrndur hrútur sem hefur skilað frábærum sláturlömbum, en mjólkurlagni dætra hans hins vegar reynst ákaflega breytileg. Móðurfaðir Brodda er Glæsir 98-876. Heima í Broddanesi bar hrúturinn nafnið Hvellur, en þurfti af augljósum ástæðum að breyta því þegar kom á stöð.
Áfram


27-okt.-09

Borði

Mynd með fréttBorði er annar þeirra tveggja hrúta sem fengnir voru úr afkvæmarannsókninni á Hesti haustið 2009. Hann er fæddur þar á búinu vorið 2008. Sá sæðingastöðvarhrúta sem stendur honum næst er Kveikur 05-965 sem er föðurföðurfaðir hans. Afkvæmi hans sýndu mjög jákvæða mynd við mælingu lífandi lambanna og gimbrarnar enn meira en hrútlömbin.
Áfram


26-okt.-09

Bolli

Mynd með fréttBolli er fæddur í Miðdalsgröf vorið 2006. Faðir hans Kollur 01-721 var fenginn frá Steinadal og var sonur Parts 99-914 og var notaður lengst af í Heiðarbæ en síðustu árin í Miðdalsgröf og Heydalsá II, en í ljós hefur komið að hann var kraftaverkakind um fituleysi.
Áfram


23-okt.-09

Blossi

Mynd með fréttBlossi er sá fyrsti, sem er kynntur af fimm kollóttum hrútum sem fengnir voru á stöðvarnar í haust á grunni feikilega umfangsmikillar afkvæmarannsóknar á báðum búunum á Heydalsá, sem fjallað er um hér á öðrum stað á vefnum. Rétt er að vekja athygli á því að vegna þess hve sala á líflömbum var feikilega mikil frá þessum búum haustið 2009 var ekki mögulegt að vinna marktækt kjötmatsuppgjör fyrir hrútana en þær niðurstöður sem þar fengust að sjálfsögðu notaðar við endanlegt val þeirra.
Áfram


22-okt.-09

Nýir stöðvarhrútar úr afkvæmarannsóknum haustið 2008

Mynd með frétt Afkvæmarannsóknir vegna sæðingastöðvanna voru á nokkrum stöðum á landinu haustið 2009. Umfjöllun um niðurstöður þeirra rannsókna hefur verið birt og má skoða hana hér. Til viðbótar þessum rannsóknum var einnig hin hefðbundna rannsókn veturgömlu hrútanna á fjárræktarbúinu á Hesti
Áfram


12-okt.-09

Vöðvi

Mynd með fréttVöðvi er fæddur vorið 2008 í Hafnardal við Djúp. Hann var seldur sem lamb að Bæ1 í Hrútafirði þar sem hann hefur verið notaður og þaðan fenginn á stöð. Vöðvi kemur úr hinni sterku fjárrækt í Hafnardal sem þar var meðan fjárbúskapur stóð þar en faðir hans Vöðvi 04-506 var fenginn frá Bassastöðum, dóttursonur Stúfs 97-854.
Áfram


08-okt.-09

Tyr

Mynd með fréttTýr er fæddur á Melum1 í Árneshreppi vorið 2006. Faðir hans Kútur 03-937 var því miður aldrei nema eitt ár í notkun á stöð en skildi eftir sig ótrúlega mikið af athyglisverðum afkvæmum. Móðir hans er Þilja 01-513 sem er dóttir Nagla 98-064 en hann hefur reynst hvað öflugastur móðurfaðir úrvalshrúta frá Melum síðustu árin.
Áfram


07-okt.-09

Tengill

Mynd með frétt Tengill er fæddur vorið 2005 á Brekku í Núpasveit. Faðir hans er Lómur 02-923 sem var um nokkur ár einn öflugasti kynbótahrútur á stöðvunum. Móðir hans, 03-372 er hins vegar undan Múla 02-241, sem Bogi notaði feikilega mikið í nokkur ár og gaf ákaflega vel gerð sláturlömb og prýðisgóðar mjólkurær, en hann var undan Vini 99-867.
Áfram


06-okt.-09

Stáli

Mynd með fréttStáli er fæddur vorið 2006 á Teigi 1 í Fljótshlíð. Faðir hans er Tvistur 05-438, sem reynst hefur afbragðsgóður faðir sláturlamba en hann er sonur Kulda 03-924. Móðir Stála, Edda 02-243, er hins vegar ein sárafárra dætra Bjargvættar 97-869, sem til voru á Suðurlandi og Hörvi 92-972 kemur fyrst í ættir hans sem móðurmóðurfaðir.
Áfram


05-okt.-09

Sokki

Mynd með fréttSokki er fæddur vorið 2007 á Brúnastöðum í Fljótum. Faðir hans er Kækur 03-961, sem var því miður lítið notaður meðan hann var á stöð, en reynsla af afkvæmum hans bendir til að hann hafi verið mjög öflugur kynbótahrútur.
Áfram


01-okt.-09

Skrauti

Mynd með fréttSkrauti er fæddur vorið 2007 á Hjarðarfelli á Snæfellsnesi en keyptur hjá Eiríki Helgasyni í Stykkishólmi, sem átti hrútinn frá haustinu 2007. Faðir hans Magni 06-730 hefur síðustu árin verið aðal kynbótahrútur í kollótta fénu á Hjarðarfelli og verið að skila afburða gerð til afkvæma sinna en hann er sonur Orms 02-933 og dætur Magna hafa tæpast reynst nógu frjósmar. Móðir Skrauta, 05-523, er dóttir Spaða 04-718, sem er sonur Parts 99-914 og síðan er Boli 99-874 móðurmóðurfaðir og ættlið lengra á móðurhliðina kemur Styrmir 98-852.
Áfram


30-sep.-09

Mundi

Mynd með fréttMundi er fæddur á Brúnastöðum í Fljótum vorið 2006. Hann er sá af kynbótahrútum undan Lunda 03-945 sem fékkst til notkunar á stöð að þessu sinni en líklegt að hálfbræður hans fylgi í kjölfar hans á næsta ári. Móðir hans Dugga 04-405 var dóttir Úða 01-912 og geta má þess að móðurmóðurföðurfaðir er Ljóri 95-828 þannig að ættbogi Munda er sterkur. Ástæða er til að nefna að hann kemur af svæði sem til þessa hefur verið stöðvunum lokað.
Áfram


29-sep.-09

Kóngur

Mynd með fréttKóngur er fæddur á Sauðá á Vatnsnesi vorið 2004. Hann er sonur Lóða 00-871 en móðir hans 98-872 var dóttir Bjálfa 95-802, en afkomendur hans hafa víða reynst með afbrigðum vel á búum á Vatnsnesi. Þá er Goði 89-928, móðurmóðurfaðir Kóngs. Þarna standa því að baki sterkar ættir, að miklu leyti frá Hesti.
Áfram


28-sep.-09

Hrói

Mynd með fréttHrói er fæddur vorið 2007 á Geirmundarstöðum á Skarðsströnd. Hann er sonur Kveiks 05-965 en móðir hans 02-307 er dóttir Túla 98-858 og síðan er móðurmóðurfaðir Hróa, Moli 93-986 þannig að baki honum stendur feikilega öflug ræktun.
Áfram


25-sep.-09

Hriflon

Mynd með fréttHriflon er fæddur vorið 2007 í Hriflu í Þingeyjarsveit. Meðan hann dvaldi þar á bæ hafði hann nafnið Bogi en þurfti af eðlilegum ástæðum að gefa það eftir við stöðvarvegg. Hann er einn hinna fjölmörgu topphrúta sem strax haustið 2008 birtust á sjónarsviðinu undan Rafti 05-966 en móðir hans 03-426 er dóttir Hyls 01-883 og móðurmóðurfaðir hans er Askur 97-835, þannig að baki standa sterkir stofnar og mikið Hestsblóð.
Áfram


24-sep.-09

Grábotni

Mynd með fréttGrábotni er fæddur í Vogum í Mývatnssveit en fenginn frá Geiteyjarströnd í sömu sveit þar sem hann hafði verið notaður. Grábotni er undan Grími 01-928, sem í nokkur ár var notaður á stöðvunum og skildi eftri sig stóran hóp kostamikilla afkvæma. Móðir hans Grábotna 04-364 í Vogum er hins vegar undan Spaki 02-725, sonur Áls, 00-868 sem var mikill kynbótahrútur á því búi.
Áfram


23-sep.-09

Fálki

Mynd með fréttFálki er fæddur vorið 2006 í Borgarfelli í Skaftártungu. Hann er sonur Mímis 04-951, sem var mikið notaður hrútur á stöðvunum og skilaði miklum kjötgæðum til afkvæma sinna. Móðir hans Sjöstjarna 03-362 er dóttir Áls 00-868 en móðurfaðir hennar Röðull 96-512 var um árabil einn öflugasti kynbótahrúturinn í Borgarfelli.
Áfram


22-sep.-09

Karl Philip

Mynd með fréttÞetta konunglega nafn ber þessi forystuhrútur sem fæddur er í Sandfellshaga 2 í Öxafirði árið 2005. Faðir hans Móri 04-255 er úr hinni landþekktu forystufjárrækt Gríms Jónssonar í Klifshaga og föðurlínan rekur sig um veturgamla hrúta á hverju ári í Skúm 01-885.
Áfram


21-sep.-09

Póstur

Mynd með fréttPósturinn verður að vera ratvís og það efast enginn um það fyrir Póst. Þessi hrútur er fæddur árið 2007 í Tunguseli á Langanesi, sem er ein af þekktustu hjörðum landsins fyrir ræktun á forystufé.
Áfram


18-sep.-09

Nýir hrútar á sæðingarstöðvunum

Mynd með fréttAllstór hópur hrúta var í vor valinn til notkunar á stöðvunum frá haustinu 2009. Þessir hrútar hafa í sumar dvalið á grænum grundum í einangrunargirðingum stöðvanna. Í hópinn mun síðan bætast á næstu dögum nokkrir hrútar sem koma úr sértökum afkvæmarannsóknum fyrir stöðvarnar á nokkrum stöðum sem dreift er um landið.
Áfram


17-sep.-09

Frjósemi hjá dætrum sæðingastöðvarhrúta vorið 2009

Mynd með fréttFrjósemi ánna er sá eiginleiki sem mestu ræður um afkomu sauðfjárbúanna. Nú eru tölur úr skýrsluhaldi sauðfjárræktarinnar frá vorinu 2009, að mestu komnar í hús. Tekin hefur verið saman tafla um frjósemi dætra sæðingastöðvarhrútanna vorið 2009 á sama hátt og á síðasta ári. Þetta yfirlit er um þrjá yngstu árganga ánna.
Áfram


05-sep.-09

Rafrænt skil skýrsluhaldarar í sauðfjárrækt aukast

Skýrsluhaldarar í sauðfjárrækt eru farnir að nota FJARVIS.IS í auknum mæli enda býður kerfið upp á rafræn skil á skýrsluahaldinu með auðveldum hætti. Gamli Fjárvís verður ekki þróaður frekar enda er uppbygging á háhraðanettengingum í sveitum landsins í fullum gangi á vegum Fjarskiptasjóðs.
Áfram


21-ágú.-09

Réttir haustið 2009 - uppfært og leiðrétt

Mynd með fréttÓlafur R. Dýrmundsson, ráðunautur Bændasamtaka Íslands, hefur tekið saman eftirfarandi lista um fjár- og stóðréttir haustið 2009. Almennt má segja að réttir séu á svipuðum tíma og í fyrra. Þá fylgir þessum lista yfirlit yfir helstu réttir í landnámi Ingólfs Arnarsonar haustið 2009.
Áfram


19-ágú.-09

Fjölbreyttar niðurstöður úr BLUP kynbótamatinu í sauðfjárrækt árið 2009 – nú aðgengilegar á vefnum

Mynd með fréttÚrvinnslu á BLUP kynbótamatinu í sauðfjárrækt fyrir árið 2009 lauk í júli. Áður en sumarleyfi hófust var komið á framfæri fyrstu niðurstöðum þess hér á vefnum.
Áfram


14-júl.-09

BLUP-kynbótamatið í sauðfé árið 2009

Mynd með fréttNú er búið að vinna BLUP kynbótamatið í sauðfjárræktinni árið 2009. Á næstunni munu þessar niðurstöður verða fluttar inn á FJARVIS.IS og þar getur hver og einn fjáreigandi sem hefur aðgang að því kerfi skoðað niðurstöður fyrir sitt eigin bú.
Áfram


10-jún.-09

Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt

Mynd með fréttNýir þátttakendur í gæðastýringu í sauðfjárrækt þurfa að sækja um það til Matvælastofnunar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember ef framleiðandi óskar eftir álagsgreiðslum fyrir næsta almanaksár. Athygli er vakin á því að þeir bændur sem hófu gæðastýrða sauðfjárframleiðslu á árinu 2009 verða að skila vorbók/vorupplýsingum skýrsluhaldsins fyrir 20. júní nk.
Áfram


02-jún.-09

Afkvæmarannsóknir hrúta hjá búnaðarsamböndunum haustið 2008

Mynd með fréttHaustið 2008 voru afkvæmarannsóknir á hrútum vegna kjötgæða umfangsmeiri en nokkru sinni áður á vegum búnaðarsambandanna í landinu. Þessar rannsóknir eru byggðar upp á tvískiptum grunni. Í öðrum hlutanum er byggt á ómsjármælingum og stigun á lifandi lömbum undan hrútunum. Hinn hlutinn er aftur á móti niðurstöður úr kjötmati sláturlambanna undan sömu hrútum.
Áfram


15-maí-09

Nokkur ráð á sauðburði frá Sigurði Sigurðarsyni dýralækni

Mynd með fréttNýlega hafa verið gerðar athuganir með krufningum á lömbum, sem fæddust fullburða en lífvana og hafa þá annað hvort dáið rétt áður en fæðingin hófst eða í fæðingunni sjálfri. Einnig voru athuguð lömb, sem fæddust líflítil en dóu nýfædd. Þessar athuganir benda til þess að hægt sé að draga úr tjóni með breyttum aðferðum við fæðingarhjálp, vöktun og lífgunartilraunir.
Áfram


28-apr.-09

Hrútaskrá send til notenda gamla Fjárvísar fyrir helgi

Verið er að undirbúa útsendingu á nýrri hrútaskrá fyrir notendur gamla Fjárvísar. Skráin verður send með tölvupósti til bænda.
Áfram


07-apr.-09

Stofnfundur Smalahundadeildar Árnessýslu - 7. apríl

Mynd með fréttNæstkomandi þriðjudag verður haldinn stofnfundur Smalahundadeildar Árnessýslu. Verður fundurinn haldinn á Hestakránni á Skeiðum og hefst hann klukkan 20:30. Er allt áhugafólk um smalahunda hvatt til að mæta.
Áfram


04-apr.-09

Opið hús í kennslu- og rannsóknafjárhúsum LbhÍ á Hesti í Borgarfirði - 4. apríl

Mynd með fréttLandbúnaðarháskóli Íslands verður með opið hús í kennslu- og rannsóknafjárhúsunum að Hesti í Borgarfirði laugardaginn 4. apríl. Nú eru liðin tvö ár frá opnu húsi á Hesti og rétt eins og þá verða m.a. kynnt rannsóknaverkefni í sauðfjárrækt og jarðrækt á vegum LbhÍ og samstarfsaðila, auk fyrirhugaðra verkefna á komandi misserum. Nám við LbhÍ verður kynnt auk þess sem lambhrútar verða til sýnis og annað fé.
Áfram


03-apr.-09

Opið hús í kennslu- og rannsóknafjárhúsum LbhÍ á Hesti í Borgarfirði laugardag 4. apríl

Mynd með fréttLandbúnaðarháskóli Íslands verður með opið hús í kennslu- og rannsóknafjárhúsunum að Hesti í Borgarfirði laugardaginn 4. apríl. Nú eru liðin tvö ár frá opnu húsi á Hesti og rétt eins og þá verða m.a. kynnt rannsóknaverkefni í sauðfjárrækt og jarðrækt á vegum LbhÍ og samstarfsaðila, auk fyrirhugaðra verkefna á komandi misserum.
Áfram


30-mar.-09

Hrútar með hæstu einkunnir úr afkvæmarannsóknunum haustið 2008

Mynd með fréttVerið er að vinna endanlegan frágang á niðurstöðum afkvæmarannsóknanna haustið 2008 til birtingar á vefnum með umsögnum um hverja rannsókn. Vonir standa til að mögulegt verði að birta það fljótt eftir páska. Á meðan þess er beðið er hér birtur listi yfir þá um það bil 220...
Áfram


24-mar.-09

Mikið svigrúm til úrbóta og aukinna sátta um fjallskil

Mynd með fréttÍ kjölfar Búnaðarþings árið 2008 var skipaður starfshópur sem hafði það hlutverk að skoða stjórnvaldsfyrirmæli um fjallskil, dóma og annað sem varðar framkvæmd fjallskila. Hópnum var falið að skilgreina helstu vandamál sem tengjast lögum um afréttarmálefni og fjallskil og framkvæmd þeirra laga.
Áfram


13-mar.-09

Áframhald á aðalfundum sauðfjárbænda á næstunni - 16.-19. mars

Mynd með fréttÁ næstunni verða aðalfundir sauðfjárbænda haldnir í Rangárvallasýslu, Dalasýslu og Þingeyjarsýslu. Hér að neðan eru fundarboð félaganna. Einnig er vert að minna á aðalfund Landssamtaka sauðfjárbænda 2.3. apríl nk.
Áfram


12-mar.-09

Umsóknir um leyfi til að selja líflömb 2009

Mynd með fréttSauðfjárbændur sem ætla að sækja um leyfi til að selja líflömb skulu senda skriflega umsókn til Matvælastofnunar eigi síðar en 1. apríl 2009 á eyðublöðum sem finna má á www.mast.is eða með því að hafa samband í síma 530-4800 og fá þau send með pósti.
Áfram


22-jan.-09

Endurskoðaðar nýliðunarreglur í sauðfjárrækt staðfestar

Mynd með fréttSjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur staðfest endurskoðaðar reglur um bústofnskaupastyrki til frumbýlinga í sauðfjárrækt. Reglurnar voru fyrst settar í janúar 2008 og auglýst eftir umsóknum þá. Á árinu 2008 sóttu alls 42 um bústofnskaupastyrk og alls fengu 24 slíkan styrk en 18 umsóknum var hafnað
Áfram


12-jan.-09

Minnt á skil á sauðfjárskýrsluhaldi

Mynd með fréttSkil á skýrslum í sauðfjárræktinni hafa verið góð, en samt er mikið enn ókomið. Rétt er að minna á að með reglugerðarbreytingu á síðasta ári var skiladeginum breytt þannig að nú þarf að skila öllum skýrslum fyrir 1. febrúar til að uppfylla skilyrði gæðastýringar.
Áfram


22-des.-08

Sauðfjársæðingunum árið 2008 lokið

Mynd með fréttNú er lokið útsendingu hrútasæðis frá sauðfjársæðingastöðvunum þetta árið. Tölur benda til að þátttaka í þessu starfi hafi verið meiri en nokkru sinni, en samtals voru sendir út um 41.200 skammtar af fersku sæði. Auk þess voru sæddar rúmlega 1500 ær með djúpfrystu sæði.
Áfram


15-des.-08

Ekki verður staðið við búvörusamninga

Mynd með fréttSamkomulag er orðið milli ríkisstjórnarflokkanna um að fella niður vísistölutengingu sem bundin er í búvörusamningum. Í stað þess að búvörusamningar verði vísitölutengdir að fullu verður miðað við þá krónutölu sem lagt var upp með þegar fjárlagafrumvarpið var fyrst...
Áfram


10-des.-08

Niðurstöður sauðfjárskýrsluhaldsins árið 2008

Mynd með fréttUppgjör á skýrslum fjárræktarfélaganna frá haustinu 2008 er nú í fullum gangi. Í dag er lokið uppgjöri fyrir um 86 þúsund ær frá haustinu og bætist við á hverjum degi. Ljóst er að afurðir haustið 2008 eru meiri en dæmi eru um áður. Líkt og áður þá eru ýmsar niðurstöðutölur úr uppgjörinu birtar jafnskjótt og þær liggja fyrir.
Áfram


20-nóv.-08

Kynningarfundir vegna sauðfjársæðinga - 19.-27. nóvember

Mynd með fréttBúnaðarsambönd um allt land og Bændasamtök Íslands boða til almennra kynningarfunda þar sem hrútakostur sæðingastöðvanna er kynntur, farið yfir fram­kvæmd sæðinganna og almenn umræða um ræktunarstarf í sauðfjárrækt.
Áfram


14-nóv.-08

Hrútaskráin 2008-2009 er komin á vefinn

Mynd með fréttHrútaskráin 2008-2009 hefur verið gefin út á vefnum. Prentaða útgáfan mun vera væntanleg í byrjun næstu viku. Í Hrútaskránni er glæsilegur hrútakostur stöðvanna fyrir tímabilið 2008-2009 kynntur. Ritstjóri Hrútaskrárinnar er Guðmundur Jóhannesson.
Áfram


04-nóv.-08

Skoðun á lambhrútum undan stöðvahrútunum haustið 2008.

Mynd með fréttBúið er að taka saman niðurstöðurnar fyrir syni hrúta á sæðingastöðvunum sem skoðaðir voru haustið 2008. Þessar niðurstöður má skoða í tveim töflum sem hér má sjá.
Áfram


27-okt.-08

Góð sala á kjöti í september

Mynd með fréttGóð sala var á kjöti í september síðastliðnum. Samanborið við saman tíma í fyrra er aukningin 13,5%. Mest munar um 40% meiri sölu á svínakjöti en á sama tíma í fyrra. Þetta virðist mega skýra í ljósi þess að framleiðsla og sala svínakjöts í september 2007 var mun minni en í ágúst og október sama ár.
Áfram


23-okt.-08

Ullarverð til bænda hækkar um 24%

Mynd með fréttÁkveðið hefur verið að ullaverð til bænda hækki um 24 %. frá því í fyrra. Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssambands sauðfjárbænda, segir bændur séu nokkuð ánægðir með þetta verð. Hækkunin sé alla vega meiri en á dilkakjöti og eins og nú árar geta menn ekki annað en verið ánægðir með þessa hækkun.
Áfram


23-okt.-08

Sumarálag 2009 og geymslugjald til bænda

Mynd með fréttMarkaðsráð kindakjöts samþykkti á fundi sínum 3. október sl. að gera eftirfarandi tillögu að sumarálagsgreiðslum fyrir slátrun utan álagstíma árið 2009.
Áfram


22-okt.-08

Prjónn frá Hesti

Mynd með fréttNú er búið að velja síðustu hrútana sem koma nýir til notkunar á sauðfjársæðingastöðvunum haustið 2007. Þetta eru þeir hrútar sem komu úr afkvæmarannsókninni á fjárræktarbúinu á Hesti í Borgarfirði.
Áfram


21-okt.-08

Mjöður frá Hesti

Mynd með fréttNú er búið að velja síðustu hrútana sem koma nýir til notkunar á sauðfjársæðingastöðvunum haustið 2007. Þetta eru þeir hrútar sem komu úr afkvæmarannsókninni á fjárræktarbúinu á Hesti í Borgarfirði.
Áfram


20-okt.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar - Freyðir frá Hesti

Mynd með fréttNú er búið að velja síðustu hrútana sem koma nýir til notkunar á sauðfjársæðingastöðvunum haustið 2007. Þetta eru þeir hrútar sem komu úr afkvæmarannsókninni á fjárræktarbúinu á Hesti í Borgarfirði.
Áfram


17-okt.-08

Viðbætur um nýja hrúta á sæðingastöðvarnar - Dökkvi frá Hesti

Mynd með fréttNú er búið að velja síðustu hrútana sem koma nýir til notkunar á sauðfjársæðingastöðvunum haustið 2007. Þetta eru þeir hrútar sem komu úr afkvæmarannsókninni á fjárræktarbúinu á Hesti í Borgarfirði.
Áfram


10-okt.-08

Bólusetningar gegn garnaveiki

Mynd með fréttÁ vef Matvælastofnunar birtist fyrir skemmstu frétt um bólusetningar gegn garnaveiki. Matvælastofnun er þetta haustið með sérstakt átak í gangi við skipulagningu á bólusetningum á garnaveikisvæðum og markmiðið er að hvert einasta ásetningslamb og kið verði bólusett sem allra fyrst á haustinu og eigi síðar en 31. desember
Áfram


10-okt.-08

Gæðastýringarnámskeið

Mynd með fréttGæðastýringarnámskeið verður haldið á Hvanneyri, föstudaginn 17. október. Námskeiðið hefst kl 10:00 og því lýkur kl. 18:00.
Áfram


02-okt.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Fannar frá Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú hinn fimmtándi kynntur en það Fannar frá Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum.
Áfram


30-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Ylur frá Hjarðarfelli

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá fjórtándi í stafrófsröðinni kynntur en það er Ylur frá Hjarðarfelli.
Áfram


29-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Undri frá Heydalsá

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá þrettándi í stafrófsröðinni kynntur en það er Undri frá Heydalsá.
Áfram


26-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Smyrill frá Smyrlabjörgum

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá tólfti í stafrófsröðinni kynntur en það er Smyrill frá Smyrlabjörgum.
Áfram


25-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Shrek frá Kollsá í Hrútafirði

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá ellefti í stafrófsröðinni kynntur en það er Shrek frá Kollsá í Hrútafirði.
Áfram


24-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Púki frá Bergsstöðum

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá tíundi í stafrófsröðinni kynntur en það er Púki frá Bergsstöðum.
Áfram


23-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Krókur frá Staðarbakka í Hörgárdal

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá níundi í stafrófsröðinni kynntur en það er Krókur frá Staðarbakka í Hörgárdal.
Áfram


22-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Kjói frá Sauðadalsá

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá áttundi í stafrófsröðinni kynntur en það er Kjói frá Sauðadalsá.
Áfram


22-sep.-08

Frjósemi dætra sæðingahrúta vorið 2008

Mynd með fréttTeknar hafa verið saman tölur um frjósemi dætra sæðingastöðvarhrútanna sem koma fram í þeim skýrslum sem borist hafa frá vorinu 2008. Þetta yfirlit er bundið við veturgamlar ær, tvævetlur og þriggja vetra ær. Þetta eru miklar upplýsingar eða samtals fyrir rúmlega 23 þúsund ær.
Áfram


19-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Gotti frá Bergsstöðum á Vatnsnesi

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá sjöundi í stafrófsröðinni kynntur en það er Gotti frá Bergsstöðum á Vatnsnesi.
Áfram


18-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Garpur frá Smáhömrum

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá sjötti í stafrófsröðinni kynntur en það er Garpur frá Smáhömrum.
Áfram


17-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Garður frá Staðarbakka í Hörgárdal

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá fimmti í stafrófsröðinni kynntur en það er Garður frá Staðarbakka í Hörgárdal.
Áfram


16-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Foss frá Smáhömrum

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá fjórði í stafrófsröðinni kynntur en það er Foss frá Smáhömrum.
Áfram


15-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - Bogi frá Heydalsá

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum næstu daga og nú verður sá þriðji í stafrófsröðinni kynntur en það er Bogi frá Heydalsá.
Áfram


13-sep.-08

BLUP mat fyrir móðureiginleika

Mynd með fréttFyrir um ári var byrjað að reikna BLUP kynbótamat um móðureiginleika ánna, frjósemi og mjólkurlagni. Nú er í fyrsta skiptið birtir listar yfir gripi sem efstir standa í þessum útreikningum og ættu því að vera forvitnilegir til skoðunar fyrir áhugasama sauðfjárræktendur.
Áfram


12-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008 - At frá Hafrafellstungu

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum á næstunni og nú verður annar hrúturinn kynntur, At frá Hafrafellstungu í Öxarfirði.
Áfram


11-sep.-08

Nýir hrútar á sæðingastöðvarnar haustið 2008

Mynd með fréttBúið er að fá flesta þá hrúta sem koma nýir til nota á sæðingastöðvunum í desember í vetur. Ætlunin er að gefa örstutta kynningu á þessum hrútum á næstunni. Verður henni hagað þannig að á hverjum degi verður kynntur til leiks einn nýr hrútur.
Áfram


10-sep.-08

BLUP mat fyrir gerð og kjötgæði

Mynd með fréttFyrir nokkru er búið að vinna nýtt BLUP kynbótamat í sauðfjárræktinni árið 2008. Þá eru komnar með í útreikninga allar skýrsluhaldsniðurstöður frá árinu 2007. Nú er búið að birta töflur og umfjöllun um efstu hrútana fyrir gerð og kjötgæði.
Áfram


26-ágú.-08

Réttardagarnir haustið 2008 - leiðréttur listi

Mynd með fréttListi yfir fjár- og stóðréttir fyrir haustið 2008 hefur verið gefinn út. Það er Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands sem hefur tekið listann saman. Hefur listinn nú verið leiðréttur miðað við nýjustu upplýsingar.
Áfram


25-ágú.-08

Opinn fundur um málefni sauðfjárræktar og afurðaverð

Mynd með fréttFélag sauðfjárbænda í Dalasýslu boðar til opins fundar í Félagsheimilinu Dalabúð, Búðardal, miðvikudaginn 27. ágúst kl. 20:30. Efni fundarins er hækkun aðfanga til sauðfjárbænda og verðskrár fyrir dilkakjöt haustið 2008.
Áfram


20-ágú.-08

BLUP kynbótamat í sauðfjárræktinni árið 2008

Mynd með fréttFyrir nokkru er búið að vinna nýtt BLUP kynbótamat í sauðfjárræktinni árið 2008. Þá eru komnar með í útreikninga allar skýrsluhaldsniðurstöður frá árinu 2007. Hér á vefnum undir "Afkvæmarannsóknir" munu á næstu dögum verða birtar töflur um þá hrúta sem eru hæstir í þessu mati á landinu fyrir einstaka eiginleika.
Áfram


15-ágú.-08

Útflutningsskylda dilkakjöts verður 28%

Mynd með fréttSjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur, að fengnum tillögum Bændasamtaka Íslands, ákveðið að útflutningshlutfall kindakjöts af fé sem slátrað verður árin 2008-2009, verði 28% á dilkakjöti.
Áfram


14-ágú.-08

Landsyfirlit um hrúta sem efstir stóðu í afkvæmarannsóknum haustið 2007 hjá búnaðarsamböndunum

Mynd með fréttUmfang afkvæmarannsókna á hrútum fyrir kjötgæði var haustið 2007 lík að umfangi og árin á undan. Rúmlega 1800 afkvæmahópar fengu á þennan hátt sinn dóm. Í töflu sem hér fylgir með gefur að líta einkunnir þeirra hrúta sem fengu 120 eða meira í heildareinkunn fyrir sinn afkvæmahóp. Þetta eru samtals 159 hrútar á landinu öllu.
Áfram


13-ágú.-08

Verðlisti Norðlenska er langt undir væntingum bænda segir formaður BÍ

Mynd með fréttNorðlenska matborðið birti í dag, fyrst afurðasölufyrirtækja, verðskrá fyrir sauðfjárafurðir haustið 2008. Í megindráttum eru breytingarnar fólgnar í 15% hækkun á alla kjötflokka og greiðslur fyrir kjöt til útflutnings hækka um tæp 29%.
Áfram


07-ágú.-08

Orðsending til notenda Fjárvísar

Mynd með fréttBúið er að senda út skrá um sæðishrúta til notenda Fjárvísar BÚ í tölvupósti. Í framhaldi af innlestri þeirrar skráar, geta notendur klárað að ganga frá vorbók og senda til Bændasamtakanna. Ef umrædd skrá er ekki að skila sér skal hafa samband hið fyrsta við
Áfram


18-júl.-08

Haustbækurnar koma um miðjan ágúst

Mynd með fréttUppgjöri sauðfjárskýrsluhalds fyrir árið 2007 lauk ekki endanlega fyrr en um miðjan júní. Þá fyrst var hægt að fá gögn til nýrrar vinnslu á BLUP-kynbótamatinu. Því náðist ekki að ljúka þeim úrvinnslum að full fyrir sumarleyfi þeirra sem þá útreikninga annast fyrir BÍ.
Áfram


16-jún.-08

Reglugerð um flutning líflamba milli landsvæða

Mynd með fréttGefin hefur verið út reglugerð um flutning líflamba milli landsvæða. Hún fjallar um alla flutninga á líflömbum og kiðum yfir varnarlínur, vegna endurnýjunar bústofns vegna niðurskurðar af völdum sjúkdóma, búháttabreytinga og/eða kynbóta á fjárstofni bús.
Áfram


05-jún.-08

Skýrsluhaldarar greiða fyrir skráningar á vorbókum

Frá og með skýrsluárinu 2007 var skýrsluhald sauðfjárræktarinnar flutt yfir í nýtt veflægt tölvukerfi FJARVIS.IS sem byggir á miðlægum skýrsluhaldsgrunni. Með nýja kerfinu bauðst þeim sem hafa viðunandi nettengingar að færa skýrsluhald sitt með rafrænum hætti. Það hefur verið í umræðu í nokkur ár líkt og margir þekkja að til þess kæmi að innheimta yrði skráningagjald fyrir skýrslubækur. Nú hefur verið ákveðið að eftirleiðis verði tekið gjald fyrir skráningu á fjárbókum.
Áfram


05-jún.-08

Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt

Mynd með fréttOrðsending til nýrra þátttakenda í gæðastýringu: Nýir þátttakendur í gæðastýringu í sauðfjárrækt þurfa að sækja um það til Matvælastofnunar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember...
Áfram


04-jún.-08

Riða greinist í Hrútafirði

Mynd með fréttÍ síðustu viku var staðfest af Tilraunastöð Háskólans í meinafræði á Keldum að riða hefði greinst í einu sýni frá kind sem drapst á bæ í Hrútafirði í Vestur-Húnavatnssýslu. Á bænum eru um 300 vetrarfóðraðar kindur og óskaði bóndinn eftir að héraðsdýralæknir kæmi og rannsakaði kindina...
Áfram


22-maí-08

Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt

Mynd með fréttNýir þátttakendur í gæðastýringu: Nýir þátttakendur í gæðastýringu í sauðfjárrækt þurfa að sækja um það til Matvælastofnunar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember ef framleiðandi óskar eftir álagsgreiðslum fyrir næsta almanaksár.
Áfram


25-apr.-08

Þróunarfé sauðfjárræktar

Mynd með fréttBændasamtök Íslands auglýsa eftir umsóknum um styrki af þróunarfé sauðfjárræktar. Árlega á gildistíma samningsins skal veita 30 milljónum króna til að styðja kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í greininni t.d. vegna gæðastýringar og lífrænnar framleiðslu.
Áfram


11-apr.-08

Sauðfjárbændur vilja að lágmarki 98 króna hækkun á kg

Mynd með fréttAðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda hefur afgreitt tillögu um útgáfu viðmiðunarverðs á dilkakjöti fyrir árið 2008. Aðalfundurinn fól stjórn samtakanna að gefa sem fyrst út viðmiðunarverð, eins og henni er heimilt skv. lögum.
Áfram


10-apr.-08

Sauðfjárbændur þinga í Bændahöll

Mynd með fréttAðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda var settur um hádegisbil í dag og mun hann standa fram að helgi. Jóhannes Sigfússon formaður samtakanna sagði í setningarræðu að nú væru meiri umbrotatímar í íslensku efnahagslífi en verið hefðu um langt árabil og hækkanir á innfluttum rekstrarvörum til landbúnaðar stórfelldari en menn hefðu áður séð.
Áfram


02-apr.-08

Einkunnir sæðingastöðvahrúta fyrir fallþunga sláturlamba og afurðasemi dætra

Mynd með fréttBúið er að reikna einkunnir sæðingastöðvarhrúta úr uppgjöri fjárræktarfélaganna haustið 2007 og er hægt að nálgast tengla á niðurstöðurnar hér neðst á síðunni. Um er að ræða annars vegar einkunn fyrir vænleika lamba undan hrútunum og hins vegar eru reiknaðar tvær einkunnir fyrir afurðarsemi dætra hrútanna.
Áfram


18-mar.-08

Sauðfjárbændur funda

Mynd með fréttAðalfundir hjá félögum sauðfjárbænda standa yfir þessa dagana um allt land. Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu heldur sinn aðalfund að kvöldi þriðudagsins 18. mars og miðvikudaginn 19. mars funda sauðfjárbændur í Strandasýslu.
Áfram


30-jan.-08

Starfsmenn sauðfjárræktarráðgjafar BÍ

Landsráðunautur í sauðfjárrækt er Jón Viðar Jónmundsson. Hann hefur umsjón með og ber ábyrgð á uppgjöri skýrsluhalds í sauðfjárrækt, afkvæmarannsóknum, mati á kynbótagildi gripa og veitir almenna ráðgjöf um fjárrækt og kynbætur.
Áfram




Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi