Fréttir
Kadmíummálið - staðreyndir í stað fréttafárs
Í síðastliðnum desember kom út eftirlitsskýrsla Matvælastofnunar með áburði fyrir árið 2011. Í ljós kom að stofnunin hafði mælt þungmálminn Kadmíum (Cd) yfir leyfðum mörkum í 13 sýnum, þar af 11 í áburðinum Spretti frá Skeljungi. Undanfarna daga hefur farið fram mikil og áköf umræða um málið í fjölmiðlum. Hér á eftir verður málið rakið í hnotskurn með vangaveltum um heilsufarslega hættu.
Áfram
Tjón vegna álfta og gæsa
Álft og gæs valda miklu tjóni á ræktarlöndum ár hvert. Til þess að afla frekari gagna um tjón vilja Bændasamtökin beina því til bænda að fylla út meðfylgjandi eyðublað og senda til samtakanna á netfangið bpb@bondi.is.
Áfram
Mun kornið ná þroska í ár?
Ef kornið hefur ekki verið skriðið um síðustu mánaðamót, þá eru litlar líkur á að það gefi nýtilega kornuppskeru. Þumalfingursreglan okkar segir að frá skriði þurfi kornið sex vikur í skurðarhæft korn, níu vikur í fullmatað korn og tíu vikur í sáðkorn.
Áfram
Umsóknir um styrki vegna jarðræktar
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til jarðræktar (korn-, gras- og grænfóðurrækt). Bent er á að lágmarksúttekt á samanlögðu ræktuðu landi er 2 ha og til að standast úttekt á ræktun þarf umsækjandi að leggja fram viðurkennt túnakort. Umsækjandi þarf að stunda búnaðargjaldsskylda framleiðslu.
Áfram
Yfirlit um jarðræktarrannsóknir 2009-2010
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur gefið út skýrslu um jarðræktarrannsóknir áranna 2009-2010. Ýmist eru niðurstöður tilrauna eða viðfangsefna birtar fyrir hvort ár um sig eða samandregnar fyrir bæði árin eftir eðli tilrauna. Meðal annars er í ritinu að finna upplýsingar um áburðartilraunir og yrkjaprófanir í korn- og túnrækt, ýmsar tilraunir með matjurtir ásamt upplýsingum um veðurfar og vöxt áranna 2009 og 2010.
Áfram
Þreföldun kornræktar gæti sparað 200 milljónir í gjaldeyri
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn skýrslu um eflingu kornræktar á Íslandi. Ráðherra lagði þar til að stuðningur hins opinbera við kornrækt hér á landi yrði sambærilegur því sem er í Danmörku.
Áfram
Ræktun á repju og nepju
Nýju Bændablaði fylgir að þessu sinni sérblað um jarðrækt og vorverk 2011. Í sérblaðinu er tekið á ýmsum þeim verkefnum sem ræktun fylgja. Meðal annars skrifar Jónatan Hermannson lektor við Landbúnaðarháskólann um ræktun á repju en sú ræktun hefur verið mikið í umræðunni síðustu misseri. Grein Jónatans fylgir hér á eftir.
Áfram
Bændatorgið komið í notkun
Bændatorg, upplýsingagátt fyrir bændur og ráðunauta, er ný vefþjónusta frá BÍ sem er komin í notkun. Í hægra horninu uppi á bondi.is er hnappur sem heitir "Bændatorg". Þegar smellt er á hann birtist innskráningargluggi inn á Bændatorgið þar sem notendur geta náð í margvíslegar upplýsingar úr sínum búrekstri.
Áfram
Styrkumsóknir vegna þróunar- og jarðabótaverkefna
Nú er rétt að huga að þróunar- og jarðabótaúttektum. Umsóknir eiga að berast til viðkomandi búnaðarsambands/leiðbeiningamiðstöðvar, annað hvort með umsóknareyðublaði eða með vefumsókn sem hvort tveggja er að finna hér á bondi.is.
Áfram
Alþjóðleg ráðstefna um nýtingu fóðurbelgjurta - 20.-22. júní
Fyrirhugað er að halda alþjóðlega ráðstefnu um nýtingu fóðurbelgjurta í landbúnaði á norðurslóð á Hvanneyri 20. -22. júní. Fjallað verður um efnið frá ýmsum sjónarhornum og má nefna kynbætur og aðlögun belgjurta að fjölbreyttu umhverfi, fjölbreytni í gróðurfari og áhrif hennar á uppskeru og stöðugleika, áhrif belgjurta á jarðvegsfrjósemi og jafnvægi niturs og loks þátt belgjurta í fóðurgæðum.
Áfram
Fræðslu- og umræðufundur um heyskap á gossvæðunum
Fræðslu- og umræðufundur um áhrif gosösku á heyskap og heyverkun á Suðurlandi í sumar verður haldinn að Hótel Hvolsvelli mánudaginn 14. júní kl 20:30.
Áfram
Heymiðlun vegna eldgossins
Á vegum samtaka bænda og sveitarfélaganna Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps hefur verið sett á fót heymiðlun með það að markmiði að tryggja þeim bændum sem ekki hafa aðstöðu til þess að afla þeirra viðbótarheyja sem þarf vegna tjónsins af völdum gossins aðgang að góðu heyi.
Áfram
Ert þú aflögufær um hey?
Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur skapast óvissa um fóðuröflun á öskufallssvæðinu í sumar. Fyrirsjáanlegt er að talsvert viðbótarhey þarf inn á svæðið og því er nauðsynlegt að tryggja nægar heybirgðir fyrir haustið. Sveitarstjórnir Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps hafa falið Bændasamtökum Íslands og Búnaðarsambandi Suðurlands að afla upplýsinga um þá bændur sem eru viljugir til þess að selja gæðahey inn á áhrifasvæði eldgossins.
Áfram
Umsóknir um styrk vegna áburðarkaupa og þróunar- og jarðabótaverkefna
Umsóknarfrestur um styrk úr Bjargráðasjóð vegna áburðarkaupa rennur út 20. ágúst (áður auglýst 10. ágúst) Umsóknirnar eiga að berast til viðkomandi búnaðarsambands, annað hvort með umsóknareyðublaði eða með vefumsókn.
Áfram
Styrkir til áburðarkaupa úr Bjargráðasjóði
Eins og kunnugt er tóku ný lög um Bjargráðasjóð gildi 23. apríl síðastliðinn. Með þeim breytingum sem þá voru gerðar á lögunum var aðkoma sveitarfélaga að sjóðnum afnumin og stendur nú yfir uppgjör á eignum sjóðsins sem stefnt er á að ljúki fyrir árslok 2009.
Áfram
Heyskapur um helgina?
Undanfarna þrjá mánudaga hafa ráðunautar tekið grassýni til að fá mat á orkugildi þess. Grassýnin eru tekin á sjö stöðum á landinu. Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar í samhengi við fyrri ár þá virðist fall á meltanleika túngrasanna vera svipað og árið 2007 en fall á meltanleika er að meðaltali um viku seinna en í fyrra.
Áfram
Verð á tilbúnum áburði lækkar á heimsmarkaði
Eftir umtalsverðar hækkanir og miklar sveiflur á heimsmarkaðsverði á tilbúnum áburði síðaðsliðin 2-3 ár eru nú teikn á lofti um að verðið fari lækkandi. Í Svíþjóð hefur áburðarverð þegar lækkað um 35 af hundraði, samkvæmt ,,Landbrukets Affärdstidning". Þessi lækkun hefur aftur leitt til þess að YARA í Noregi og Norsku Samkaupin (De norske Fælleskjöp) hafa samið um 30-40 % lækkun á áburðarverði til norskra bænda og tekur sú lækkun gildi frá og með 31. desember 2009.
Áfram
Jarðræktarforritið Jörð.is hefur verið opnað
Með Jörð.is geta bændur m.a. gert vandaðar áburðaráætlanir á grunni áburðarþarfar og ákveðnni skilyrða, og borið síðan saman áætlanir með tilliti til áburðarverðs.
Áfram
Skýrla um kornrækt: Rekstrarlegar forsendur jákvæðar
Ítarleg ný skýrsla um kornrækt á Íslandi var kynnt á Hótel Sögu í dag, fimmtudaginn 26. mars. Það var ráðgjafarfyrirtækið Intellecta sem vann skýrsluna fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. Var skýrslan unnin í samvinnu við aðila t.a.m. frá Landbúnaðarháskóla Íslands, Bændasamtökum Íslands og Félagi kornbænda.
Áfram
Fyrirlestur um byggsjúkdóma á Íslandi
Miðvikudaginn 28. janúar kl 14:30 mun Tryggvi Sturla Stefánsson segja frá MS verkefni sínu „Byggsjúkdómar á Íslandi: Tegundagreining, sýkingarhæfni og erfðafjölbreytileiki helstu sjúkdómsvalda“. Fyrirlesturinn verður haldinn í Ársal, 3. hæð í Ásgarði aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri.
Áfram
Úttektir á þróunar- og jarðabótum
Haustin eru annamesti tími margra ráðunauta. Þá fara m.a. fram lambamælingar og úttektarvinna vegna þróunar- og jarðabóta. Oft eru það sömu ráðunautarnir sem að sinna báðum verkefnunum. Úttektarvinnan er að þessu sinni óvenju mikil þar sem styrkur fæst bæði...
Áfram
Mikilvægi hirðingarsýna og heyefnagreininga
Nú er sláttur víða í hámari til sveita og mikilvægt fyrir bændur að huga að hirðingarsýnum. Heyefnagreiningar geta lagt grunninn að hagkvæmari búrekstri. Mikilvægasta hluta heyforðans á hverju búi er aflað í byrjun sláttar, - þ. e. þess rúmlega þriðjungs heyforðans sem skiptir sköpum um fóðrun...
Áfram
Þroski túngrasanna
Fyrstu tölur eru komnar um þroska túngrasanna þetta sumarið. Verkefnið hefur staðið yfir frá sumrinu 2003 og er tilgangurinn sá að auðvelda bændum að fylgjast með grasþroska og fóðurgildi og ákvarða þannig réttan sláttutíma.
Áfram
Rúlluplast hækkar um 25-30% á milli ára
Bændablaðið hefur fylgst með verði á rúlluplasti síðustu vikur og mánuði. Söluaðilar drógu það lengi að gefa út verð og kenndu um miklum gengissveiflum og verðbreytingum erlendis. Eins og kunnugt er lækkaði úrvinnslugjald á rúlluplasti um síðustu áramót úr 25 kr....
Áfram
Framlög til kornræktar
Í búnaðarlagasamningi Bændasamtaka Íslands og ríkisins er ákvæði um framlög til kornræktar. Framlag fæst greitt ef korn er ræktað til þroska á tveim hektörum hið minnsta. Framlag getur verið allt að 20.000 kr. á hvert bú sem ræktar...
Áfram
Jarðræktarstyrkir
Athygli bænda er vakin á því að ákveðnum fjármunum verður varið til gras- og grænfóðurræktar vegna þessa ræktunarárs. Fjármagnið kemur úr samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar og samningi um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu sem m.a. er ætlað til eflingar í jarðrækt. Til ráðstöfunar fyrir...
Áfram
Hægt að sjá efnagreiningarvottorð áburðar á Netinu
Á vef Áburðarverksmiðjunnar er skýrt frá því að fyrstu áburðarskipin séu að leggjast að landinu eitt af öðru. Með hverjum farmi fylgir efnagreiningarvottorð um innihald næringarefna í hverri tegund fyrir sig og hafa forsvarsmenn Áburðarverksmiðjunnar ákveðið að birta þær niðurstöður á heimasíðu sinni.
Áfram