Fréttir
Aukinn innflutningur á búvörum yrði á hendi stóru verslunarfyrirtækjanna
Skýrsla Samkeppniseftirlitsins um verðþróun og samkeppni á matvörumarkaði sýnir fram á að ekki sé áberandi munur á innkaupsverði verslana á búvörum. Ef eitthvað er sé hann minni en í flestum öðrum vöruflokkum. Þetta er mat Ernu Bjarnadóttur, hagfræðings Bændasamtakanna, sem hélt erindi um nýútkomna skýrslu eftirlitisins á kynningarfundi í gær.
Áfram
Um fjármál Bændasamtaka Íslands
Bændasamtökin eru frjáls félagasamtök og í bókhaldi þeirra er skilið á milli þeirra fjármuna sem koma frá ríkinu vegna búnaðarlagasamnings og fjármuna sem fara í að reka hagsmunabaráttu bænda. Verkefni í gegnum búnaðarlagasamning eru ...
Áfram
Raforkuverð: Landsmönnum mismunað
Bændasamtök Íslands hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna hækkunar á dreifingarkostnaði raforku frá RARIK: Þann 30. desember sl. tilkynnti RARIK hækkun á verðskrá sinni fyrir dreifingu og flutning á raforku.
Áfram
Nýjar reglur vegna kynbótaverkefna í nautgriparækt
Nýjar reglur um greiðslur vegna kynbótaverkefna í nautgriparækt tóku gildi 1. janúar sl. og gilda út árið.
Áfram
Stuðningur við nýliðun í kúabúskap
Bændasamtök Íslands, Landssamband kúabænda og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafa gert samkomulag sín á milli um að stofna starfshóp sem hefur það hlutverk að útfæra reglur um stuðning vegna nýliðunar í stétt kúabænda.
Áfram
Vegna umræðu um stjórnsýsluverkefni
Fréttastofa Ríkisútvarpsins flutti 26. október sl. frétt um stjórnsýsluverkefni sem Bændasamtök Íslands sinna. Þar kom fram að ekki væri sjáanlegt á framlögðu fjárlagafrumvarpi að flytja ætti verkefni frá BÍ til Matvælastofnunar þrátt fyrir ábendingar þar um frá Ríkisendurskoðun. Í fréttinni er því haldið fram að ríkisvaldið greiði ...
Áfram
Námskeið í gæðastýrðri sauðfjárrækt
Dagana 7. - 11. nóvember verða haldin 1-3 námskeið í gæðastýrðri sauðfjárrækt. Staðsetning og fjöldi námskeiða fer eftir því hvaðan þátttakendur eru og fjölda þeirra.
Áfram
Nýr kjarasamningur fyrir landbúnaðarverkafólk
Bændasamtök Íslands hafa samið við Starfsgreinasamband Íslands annars vegar og hins vegar Framsýn stéttarfélag, Verkalýðsfélag Þórshafnar og verkalýðsfélag Akraness um nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk sem vinnur ...
Áfram
Rýniskýrsla ESB um íslenskan landbúnað – viðbrögð BÍ
Evrópusambandið hefur nú tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að Ísland sé ekki nægilega búið undir samninga um landbúnaðarmál í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Í bréfi ESB frá 1. september 2011 segir efnislega að ...
Áfram
Varnarlínum BÍ dreift með Bændablaðinu
Bændasamtökin gáfu nýlega út í miðopnu Bændablaðsins sk. varnarlínur samtakanna í aðildarviðræðum stjórnvalda við Evrópusambandið. Þær voru fyrst birtar í heild sinni sem viðauki í bók Stefáns Más Stefánssonar lagaprófessors um landbúnaðarlöggjöf ESB og Evrópska efnahagssvæðisins sem gefin var út fyrr í sumar.
Áfram
Kjarasamningur landbúnaðarverkafólks til Ríkissáttasemjara
Þann 30. nóvember 2010 rann út samningur milli Starfsgreinasambands Íslands og Bændasamtaka Íslands um kaup og kjör starfsmanna sem vinna almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Fundur hefur verið boðaður í kjaradeilunni hjá Ríkissáttasemjara fimmtudaginn 7. júlí.
Áfram
Greiðsla gæðastýringarálags í mjólkurframleiðslu hefur tafist
Greiðsla gæðastýringarálags í mjólkurframleiðslunni hefur tafist af tæknilegum orsökum. Nú hefur tekist að finna þær og lagfæra það sem olli töfunum. Vonast er til þess að í dag, 7. júní, takist að greiða öllum álagið.
Áfram
Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt
Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt standa fyrir dyrum næstu daga. Eitt af grunnskilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýringunni er að hafa sótt undirbúningsnámskeið en þau verða haldin á eftirfarandi þremur stöðum:
Áfram
Afstaða bænda til ESB-viðræðna kynnt í ríkisstjórn
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem greint er frá því að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi á föstudaginn var kynnt ríkisstjórn Íslands ályktun Búnaðarþings vegna aðildarviðræðna Íslands við ESB.
Áfram
Stuðningur við lífræna aðlögun í landbúnaði
Á liðnu sumri vann nefnd á vegum Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að úttekt á stöðu lífræns landbúnaðar hér á landi. Á grundvelli niðurstaðna nefndarinnar hefur í vetur verið unnið að samningu verklagsreglna...
Áfram
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um útvistun opinberra verkefna til BÍ
Ríkisendurskoðun kynnti í dag skýrsluna "Útvistun opinberra verkefna til Bændasamtaka Íslands". Í skýrslunni er fjallað um þau verkefni sem hið opinbera úthýsir til BÍ, sér í lagi á grundvelli búvörusamninga og búnaðarlagasamnings. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru þær að Ríkisendurskoðun telur að Bændasamtökunum hafi verið falið of víðtækt hlutverk við stjórnsýslu landbúnaðarmála og að endurskoða verði fyrirkomulagið.
Áfram
Ráðherra tekur á móti ESB-ályktun
Forsvarsmenn Bændasamtakanna fóru á fund Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í dag og afhentu honum ályktanir Búnaðarþings 2011. Þar á meðal var ályktun um ESB-málin þar sem bændur setja fram varnarlínur...
Áfram
Aðild Íslands að ESB - afstaða BÍ
Búnaðarþingi var slitið á tíunda tímanum í kvöld en meðal síðustu mála kvöldsins var ályktun um ESB-málin og aðkomu bænda að umsóknarferli ríkisstjórnarinnar. Ályktunin hljóðar svo í heild sinni ásamt greinargerð:
Áfram
Matvælaframleiðsla á krossgötum - MYNDBAND
Á setningu Búnaðarþings 2011 var frumsýnt stutt myndband um matvælaframleiðslu í heiminum og þróun hennar. Ágúst Sigurðsson, rektor LbhÍ, og hagfræðingarnir Daði Már Kristófersson og Erna Bjarnadóttir fjalla þar öll um misjöfn áhrif fólksfjölgunar, skort á ræktunarlandi og breytt loftslags- og ræktunarskilyrði á matvælaframleiðslu.
Áfram
Orðsending til garðyrkjubænda vegna beingreiðslna
Ný reglugerð nr. 4/2011 um beingreiðslur í garðyrkju fyrir árið 2011 hefur tekið gildi. Þeir sem hafa hug á að þiggja beingreiðslur á árinu 2011 þurfa að skila inn umsókn og/eða áætlun til Bændasamtaka Íslands fyrir 15. janúar 2011 þar sem fram kemur flatarmál gróðurhúsa, sem ætlað er til framleiðslu fyrir hverja tegund svo og áætluð framleiðsla af hverri tegund á árinu 2011.
Áfram
Breytingar á lögum er varða gjaldfærslu við kaup á greiðslumarki
Á Alþingi voru samþykkt lög um breytingar á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld þann 18. desember sl. og þar með breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum. Þar var felld niður heimild til að færa niður stofnkostnað við kaup á framleiðslurétti í landbúnaði.
Áfram
Opnunartími skrifstofu BÍ yfir hátíðarnar
Skrifstofur Bændasamtaka Íslands verða opnar sem hér segir yfir hátíðarnar:
- fimmtudagur 23. desember, Þorláksmessa: Lokað
- föstudagur 24. desember, aðfangadagur: Lokað
- mán. 27. desember: Opið 10:00-16:00
Áfram
Landbúnaðartrygging VÍS tekur breytingum
Vátryggingafélag Íslands hefur um árabil boðið bændum „Landbúnaðartryggingu“ sem er sérsniðin trygging fyrir búrekstur. Landbúnaðartryggingin er víðtæk og tekur til búfjár, heyja og annars fóðurs samkvæmt forðagæsluskýrslum ásamt áhöldum og tækjum sem tilheyra hefðbundinni búfjárrækt. Einnig er ábyrgðartrygging bænda innifalin í tryggingunni.
Áfram
Bændafundir framundan
Almennir haustfundir Bændasamtakanna hófust mánudaginn 22. nóvember og standa þeir til 6. desember. Alls verða fundirnir 16 talsins og verða þeir haldnir um allt land. Á fundunum verða m.a. rædd þau tækifæri sem landbúnaðurinn hefur til þess að efla þjóðarhag og hvar sóknarfæri liggja.
Áfram
Alþjóðasamtök búvöruframleiðenda, IFAP, úrskurðuð gjaldþrota
Þann 4. nóvember kvað hæstiréttur Frakklands upp þann dóm að Alþjóðasamtök búvöruframleiðenda, IFAP (International Federation of Agricultural Producers), skyldu tekin til gjaldþrotameðferðar. Þetta mál mun eiga sér allnokkurn aðdraganda og...
Áfram
SAM leggja til 116 milljóna lítra greiðslumark á næsta ári
Á fundi Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði sem haldinn var í síðustu viku, var ákveðið að gera tillögu að 116 milljón lítra greiðslumarki mjólkur árið 2011 en þá verður verðlagsárið jafnframt fært að almanaksári.
Áfram
Bændasamtökin óska frekari skýringa á stöðu landbúnaðar í samningaferlinu við ESB
Bændasamtök Íslands sendu utanríkisráðherra Íslands og utanríkismálanefnd Alþingis bréf þann 22. sept. þar sem þess var krafist að staða landbúnaðarins í samningaferlinu við Evrópusambandið yrði skýrð. Að mati samtakanna hafa bæði stjórnvöld...
Áfram
Tekið verði á skuldavanda bænda á sama hátt og hjá einstaklingum og heimilum
Nauðsynlegt er að staða bænda sem tóku gengisbundin lán sé skýrð hið fyrsta. Eðlilegt sé að skuldamál bænda séu meðhöndluð á sama hátt og skuldamál einstaklinga. Þetta er mat Bændasamtaka Íslands í kjölfar dóms Hæstaréttar frá því í gær þar sem kveðið er á um vaxtakjör á ólöglegum gengisbundnum lánum.
Áfram
Neytendur njóta góðs af stöðugu verði á búvörum
Hagstofa Íslands hefur birt vísitölu neysluverðs miðað við verðlag í ágúst. Athygli vekur að búvörur og grænmeti hafa haldið aftur af verðbólgu sl. 12 mánuði svo um munar.
Áfram
Matvælastofnun tekin við forðagæslunni
Þau tímamót urðu í lok júní að Matvælastofnun á Selfossi tók að fullu við búfjáreftirliti, söfnun forðagæsluskýrslna, úrvinnslu og afgreiðslu gagna um fjölda búfjár og fóðuröflun í landinu, af Bændasamtökum Íslands. Frá ársbyrjun 2006 höfðu Bændasamtökin sinnt þessu opinbera hlutverki í umboði og samkvæmt beiðni Matvælastofnunar eftir lagabreytingu, en fram að því höfðu samtök bænda á ýmsum tímum ætíð haft umsjón með forðagæslumálum, allt frá fyrstu lagsetningum um þessi efni seint á 19. öld og snemma á þeirri 20.
Áfram
Undrast fálmkennd og ómarkviss viðbrögð vegna dóms Hæstaréttar
Bændasamtök Íslands og Landssamband smábátaeigenda hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna ólögmætis gengistryggðu lánanna:
Áfram
Orlofsstyrkir fyrir bændur á öskusvæðunum
Stjórn Orlofssjóðs bænda hefur ákveðið að styðja sérstaklega við bændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Með þessu vill sjóðurinn hvetja bændur og fjölskyldur þeirra á svæðinu til þess að taka sér orlof og hvíla sig fjarri rykmengun og erfiðum verkum.
Áfram
Tilkynning til bænda á hamfarasvæðum um greiðslumark mjólkur
Þann 18. maí s.l. samþykkti Alþingi breytingu á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Tilgangur breytinganna var m.a. sá að veita heimild til að mjólkurbændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli geti notið stuðnings af beingreiðslum, þó framleiðsla þeirra hafi raskast eða lagst niður.
Áfram
Norskir bændur sýna Íslendingum samstöðu - 7 milljónir íslenskra króna lagðar í styrktarsjóð vegna eldgossins
Norska bændahreyfingin og fleiri fyrirtæki í Noregi hafa ákveðið að styðja við bakið á íslenskum bændum sem hafa orðið fyrir neikvæðum áhrifum af gosinu í Eyjafjallajökli. Þeir hafa lagt 7 milljónir íslenskra króna í sjóð sem Bændasamtökum Íslands er ætlað að ráðstafa til þeirra bænda sem eiga í hlut.
Áfram
Kvótamarkaði með greiðslumark komið á og viðskipti óheimil til 1. des.
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingar á aðilaskiptum á greiðslumarki í mjólk. Reglugerðarbreytingin hefur í för með sér að komið verður á kvótamarkaði sem Matvælastofnun (MAST) skal starfrækja.
Áfram
Ráðunautar heimsækja bændur á áhrifasvæði eldgossins
Teymi héraðsráðunauta alls staðar að af landinu munu á þriðjudag og miðvikudag fara á bæi á öskufallssvæðinu fyrir austan, ræða við bændur og meta með þeim aðstæður og þörf fyrir aðstoð vegna fóðuröflunar og beitar í vor og sumar. Það er Búnaðarsamband Suðurlands, Bændasamtökin og búnaðarsambönd um allt land sem standa að skipulagningu heimsókna ráðunauta auk sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
Áfram
Fulltrúar BÍ í Heimalandi undir Eyjafjöllum
Fulltrúar Bændasamtakanna, þau Erna Bjarnadóttir sviðsstjóri félagssviðs og Elías Blöndal Guðjónsson lögfræðingur, verða til viðtals í fjöldahjálparmiðstöðinni Heimalandi undir Eyjafjöllum í dag milli kl. 12:00 og 14:00. Bændur á svæðinu geta leitað til þeirra með ýmis lögfræðileg atriði og rætt um þau úrræði sem eru fyrir hendi vegna tjónsins sem eldgosið í Eyjafjallajökli hefur skapað bændum.
Áfram
Hagtölur landbúnaðarins 2010
Hagtölur landbúnaðarins 2010 eru komnar út. Eins og fyrri ár er útgáfan í bæklingsformi og er alls 30 síður. Í Hagtölum landbúnaðarins er m.a. hægt að finna tölfræði um landið og bóndann, bústofn og bústærð, landbúnaðarframleiðsluna, markaðsmál, verðlag og vísitölur o.m.fl. Bæklingurinn fer víða - hann er m.a. vinsæll á meðal ferðamanna, skólafólks og að sjálfsögðu á meðal þeirra sem starfa í landbúnaði.
Áfram
Aðildarumsókn að ESB - Yfirlýsing Búnaðarþings 2010
Á Búnaðarþingi 2010 var samþykkt yfirlýsing vegna umsóknar stjórnvalda að Evrópusambandinu. Yfirlýsingin er svohljóðandi: Búnaðarþing 2010 ítrekar andstöðu sína við aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þingið lýsir fullum stuðningi við áherslur Bændasamtakanna og felur stjórn BÍ að gæta áfram hagsmuna bænda í hvívetna, vera áfram leiðandi í umræðu um áhrif ESB aðildar á landbúnað og byggja áfram á faglegri þekkingaröflun.
Áfram
Ný stjórn Bændasamtakanna kjörin á Búnaðarþingi
Búið er að kjósa nýja stjórn Bændasamtakanna. Haraldur Benediktsson var kjörinn formaður með öllum greiddum atkvæðum eða 45. Að auki voru kosnir sex fulltrúar í stjórn samtakanna. Alls gáfu ellefu þingfulltrúar kost á sér til stjórnarsetu. Úrslit kosninganna voru þau að Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð fékk 45 atkvæði, Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum fékk 41 atkvæði, Sigurbjartur Pálsson á Skarði fékk 40...
Áfram
Búnaðarþing 2010 - Aftur kemur vor í dal
Búnaðarþing var sett við hátíðlega athöfn í Bændahöllinni í dag. Þar héldu ávörp Haraldur Benediktsson formaður BÍ, Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Brita Skallerud annar tveggja varaformanna norsku bændasamtakanna Norges bondelag og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís.
Áfram
Aðalfundi LVS frestað
Aðalfundur Landssamtaka vistforeldra í sveitum, sem halda átti föstudaginn 26. febrúar á bókasafni BÍ, frestast til föstudagsins 5. mars vegna veðurs.
/ Stjórn LVS
Áfram
Alþjóðlegt ár líffræðilegrar fjölbreytni
Í dag er ýtt úr vör Alþjóðlegu ári líffræðilegrar fjölbreytni sem hefur kjörorðin Líffræðileg fjölbreytni er lífið - líffræðileg fjölbreytni er líf okkar. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir bændur um allan heim þar sem líffræðileg fjölbreytni og landbúnaður eru háð innbyrðis; hvort tveggja gegnir einnig lykilhlutverki í loftslags- og fæðuöryggismálum.
Áfram
Framlög til ráðgjafarþjónustu bænda dragast mikið saman
Í fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í gær er niðurskurðarhnífnum beitt oft og víða. Meðal þess sem fyrir honum verður eru framlög ríkisins til bænda og samtaka þeirra. Framlög til þess að standa undir beingreiðslum til sauðfjár-, kúa- og garðyrkjubænda eru þó í samræmi við þá samninga sem gerðir voru um búvöruframleiðsluna í vor og sumar.
Áfram
Utanríkisráðuneytið hyggst ekki afhenda spurningalista ESB á íslensku
Utanríkisráðuneytið hefur sent Bændasamtökunum svar við fyrirspurn þeirra um að fá afhenta íslenska útgáfu spurningalista framkvæmdastjórnar ESB. Ráðuneytið segir í svarbréfi að það hafi ekki í hyggju að leggja í þýðingu spurningalistans og ber m.a. fyrir sig kostnaði sem ráðuneytið áætlar að sé um 10 milljónir króna og verkið taki 2-3 mánuði að vinna. Með opinberri birtingu spurninganna telur ráðuneytið sig hafa gert almenningi kleift að kynna sér innihald þeirra með aðgengilegum hætti.
Áfram
Svör við ESB-spurningalista verði tekin til umfjöllunar í utanríkismálanefnd
Bændasamtökin sendu utanríkisráðuneytinu erindi 11. september sl. þar sem farið var fram á að spurningalistar ESB, sem fjalla um landbúnað, yrðu þýddir á íslensku. Ekkert svar hefur borist frá ráðuneytinu en samtökin hafa nú ítrekað óskir sínar með öðru bréfi.
Áfram
Hagtölur landbúnaðarins 2009 á ensku
Vakin er athygli á því að Hagtölur landbúnaðarins 2009 eru komnar út á ensku. Íslenska útgáfan er í vinnslu og er væntanleg á næstunni. Hægt er að nálgast prentútgáfu á skrifstofu Bændasamtakanna við Hagatorg eða fá þær sendar endurgjaldslaust. Vefútgáfuna er hægt að sækja á pdf-formi, á vefnum.
Áfram
Norrænir bændur funda í Reykjavík
Samtök norrænna bænda, NBC, halda aðalfund sinn í Reykjavík í þessari viku. Gestir fundarins eru allir helstu forvígismenn bænda á Norðurlöndunum auk þess sem Roger Johnson, formaður bandarísku bændasamtakanna (NFU), heiðrar samkomuna með nærveru sinni. Fundurinn er haldinn á Hótel Sögu og hefst miðvikudaginn 12. ágúst og lýkur föstudaginn 14. ágúst.
Áfram
Landbúnaður ekki tryggður í ESB-tillögu
Í nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu er fjallað sérstaklega um meginhagsmuni Íslands ef til aðildarviðræðna kemur. Meðal þess sem fjallað er sérstaklega um eru landbúnaðar- og byggðamál. Þó lögð sé áhersla á mikilvægi íslensks landbúnaðar í umsögn nefndarinnar er vart hægt að segja að slegnir séu þeir varnaglar sem veitt gætu landbúnaðinum skjól ef til aðildar kæmi.
Áfram
Styrkir til áburðarkaupa úr Bjargráðasjóði
Eins og kunnugt er tóku ný lög um Bjargráðasjóð gildi 23. apríl síðastliðinn. Með þeim breytingum sem þá voru gerðar á lögunum var aðkoma sveitarfélaga að sjóðnum afnumin og stendur nú yfir uppgjör á eignum sjóðsins sem stefnt er á að ljúki fyrir árslok 2009.
Áfram
Lækkar verðið örugglega?
Fréttastofa Ríkissjónvarpsins hefur að undanförnu fjallað um ýmsar hliðar Evrópusambandsins og áhrif hugsanlegrar aðildar að því fyrir íslenskt samfélag. Á sunnudaginn var komið að neytendamálum og reynt að draga upp mynd af því hvaða áhrif aðild að ESB hefði á verðlag og vexti. Það var að mörgu leyti ágæt umfjöllun en fréttamaðurinn datt hins vegar í sama pytt og margir aðrir sem fjallað hafa um þetta mál að undanförnu.
Áfram
Bændum er brugðið
Haraldur Benediktsson formaður BÍ ritar leiðara í nýtt Bændablað þar sem hann fjallar um þingsályktun ríkisstjórnarinnar um að sækja um aðild að ESB. Þar gagnrýnir hann harðlega Vinstri græna sem fyrir kosningar lofuðu á bændafundum að þeir myndu standa vörð um sjálfstæði Íslands og lýstu því yfir að ekki yrði sótt um aðild að Evrópusambandinu. Í seinni hluta leiðarans, sem er birtur hér í heild sinni undir, ræðir Haraldur um nýfallinn úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Áfram
Bændafundir vegna breytinga á búvörusamningum
Kynningarfundir um breytingar á gildandi búvörusamningum um starfsskilyrði sauðfjárræktar og mjólkurframleiðslu verða haldnir um allt land á næstu dögum. Fundirnir eru öllum opnir en bændur sem starfa við mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt eru hvattir til að mæta á fundina og kynna...
Áfram
Upptökur frá framboðsfundinum í Hlégarði
Fimmtudaginn 16. apríl sl. voru haldnir fjórir fundir á vegum Bændasamtakanna með bændum og frambjóðendum til Alþingis. Þátttaka var mjög góð en um 350 manns mættu á fundina til samans. Nú liggja fyrir upptökur úr Hlégarði af framsögum Haraldar Benediktssonar, formanns Bændasamtaka Íslands, og frambjóðenda flokkanna.
Áfram
Samið um breytingar á búvörusamningum – mikilvægt skref til þjóðarsáttar segir landbúnaðarráðherra
Skrifað var undir breytingar á gildandi búvörusamningum um starfskilyrði sauðfjárræktar og starfskilyrði mjólkurframleiðslu í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Ekki verða gerðar breytingar á aðlögunarsamningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða eins og stefnt var því ekki náðist samkomulag um þær breytingar í þessari atrennu.
Áfram
Bændur kynna landbúnaðardag kosningabaráttunnar – 16. apríl
Bændur hafa boðað til opinna funda í tengslum við alþingiskosningarnar á fjórum stöðum á landinu fimmtudagskvöldið 16. apríl. Öllum framboðum er boðið að senda sína fulltrúa og ræða um landbúnaðarmál við bændur, starfsfólk í landbúnaðargeiranum og aðra áhugasama fundargesti. Fundirnir hefjast allir kl. 20:30 fimmtudagskvöldið 16. apríl og verða haldnir á Hótel Selfossi, Hlégarði í Mosfellsbæ, Hótel Borgarnesi og á Hótel KEA á Akureyri.
Áfram
Bændasamtökin telja sig ekki hafa brotið samkeppnislög
Samkeppniseftirlitið birti í dag úrskurð sinn vegna rannsóknar sem hófst fyrir ári síðan á starfsháttum Bændasamtaka Íslands vegna gruns um brot á samkeppnislögum. Vegna málsins hafa Bændasamtök Íslands sent frá sér yfirlýsingu sem er svohljóðandi: "Bændasamtök Íslands telja sig ekki hafa brotið samkeppnislög en svo telur Samkeppniseftirlitið sem úrskurðað...
Áfram
Einhugur á meðal bænda við lok Búnaðarþings 2009
Búnaðarþingi er lokið en því var slitið á áttunda tímanum í kvöld. Alls voru 34 mál afgreidd á þinginu og var áberandi einhugur meðal þingfulltrúa um afgreiðslu þeirra. Ber þar helst að nefna eindregna afstöðu gegn aðild...
Áfram
Búnaðarþing sett á sunnudag
Búnaðarþing verður sett sunnudaginn 1. mars næstkomandi klukkan 13.30 í Súlnasal á Hótels Sögu. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, flytur setningarávarp en yfirskrift setningarathafnarinnar að þessu sinni verður „Treystum á landbúnaðinn“. Emma Eyþórsdóttir dósent við Landbúnaðarháskóla...
Áfram
Kjötframleiðsla og sala minni en á sama tíma í fyrra
Framleiðsla á kjöti var 9,3% minni en í sama mánuði 2008. Mest munar um 22,5% samdrátt í alifuglakjöti og tilsvarandi 25% samdrátt í sölu þess. Framleiðsla og sala svínakjöts hefur aukist um 10,5% sl. ár þar af 13,5% síðustu 3 mánuði.
Áfram
Forystumaður evrópskra bænda í heimsókn á Íslandi
Pekka Pesonen, finnskur framkvæmdastjóri evrópsku bændasamtakanna COPA-Cogeca, heimsótti Ísland í gær og hélt erindi á fundi Samfylkingarinnar um Evrópusambandið og íslenskan landbúnað. Hann heimsótti einnig Bændasamtökin sem eiga aðild að COPA og átti fund með forsvarsmönnum þeirra.
Áfram
Landbúnaðarráðherra áhyggjufullur um stöðu bænda
Í viðtali í hádegisfréttum RÚV sagði Steingrímur J. Sigfússon, nýr landbúnaðarráðherra, að hann óttast að margir bændur þyrftu að bregða búi vegna fjárhagserfiðleika. Sagðist hann ætla að leita eftir viðræðum við bændaforystuna á næstunni um möguleg úrræði.
Áfram
Meginrök Bændasamtakanna gegn aðild að ESB
Bændasamtökin gáfu nýlega út kálf um íslenskan landbúnað og Evrópusambandið sem dreift var með síðasta Bændablaði. Þar er fjallað um skýra afstöðu Bændasamtakanna til aðildar að Evrópusambandinu og færð rök fyrir henni. Farið er yfir stefnu ESB í landbúnaðarmálum og sett fram möguleg áhrif hennar á búgreinar hér á landi.
Áfram
Enn lækkar meðalverð á greiðslumarki mjólkur
Þann 1. febrúar n.k. verða staðfest viðskipti með 174.435 lítra greiðslumarks. Alls eru viðskipti frá upphafi verðlagsársins þá orðin 1.252.455 lítrar sem er 60% af því sem selt hafði verið á sama tíma í fyrra. Meðalverð síðustu...
Áfram
Útgjöld til mat- og drykkjarvörukaupa hlutfallslega lægst í hálaunalöndum
Íslendingar verja 14,6% af útgjöldum heimilanna (án eigin húsnæðis) til matar- og drykkjarvörukaupa. Hlutfallið er lægra en í mörgum okkar nágrannalöndum og sem fyrr eru það ríki Austur-Evrópu sem eyða hlutfallslega mest af sínum tekjum í mat og drykkjarvörur.
Áfram
Ekki verður staðið við búvörusamninga
Samkomulag er orðið milli ríkisstjórnarflokkanna um að fella niður vísistölutengingu sem bundin er í búvörusamningum. Í stað þess að búvörusamningar verði vísitölutengdir að fullu verður miðað við þá krónutölu sem lagt var upp með þegar fjárlagafrumvarpið var fyrst...
Áfram
Húsfyllir á fundi um íslenskan landbúnað og ESB
Fjölmenni var á fundi Bændasamtaka Íslands um Evrópumál sem haldinn var í Sunnusal Hótels Sögu í gærkvöldi. Gestur fundarins var Christian Anton Smedshaug frá norsku bændasamtökunum en hann skýrði frá baráttu gegn aðild Noregs að Evrópusambandinu...
Áfram
Stuðningsyfirlýsing frá norrænum bændasamtökum
Bændasamtökum Íslands hefur borist stuðningsyfirlýsing frá norrænum systurhreyfingum þess. Í yfirlýsingunni lýsa bændasamtök Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands og Noregs sérstakri samstöðu með íslensku bændastéttinni í þeim erfiðu efnahagsaðstæðum sem nú eru uppi í íslensku þjóðfélagi.
Áfram
Bændafundir halda áfram
Mjög góð aðsókn hefur verið á bændafundi Bændasamtakanna sem haldnir hafa verið síðustu vikur. Yfirskrift fundanna er „Treystum á landbúnaðinn“ en frummælendur hverju sinni eru stjórnarmenn í Bændasamtökunum. Nú er búið að ákveða að halda fundi á Suður- og Vesturlandi í byrjun desember en þeir verða dagana 3. - 4. desember.
Áfram
Næsta námskeið í félagsmálafræðslu verður á Hvanneyri 26. - 27. nóvember
Ungmennafélag Íslands, Bændasamtökin og Kvenfélagasamband Íslands bjóða félagsmönnum sínum um allt land upp á félagsmálafræðslu í vetur undir yfirskriftinni "Sýndu hvað í þér býr". Hlutverk námskeiðsins er að sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum. Þátttakendur fá æfingu í ...
Áfram
Glitnir vill sinna landbúnaðinum vel til framtíðar
Síðastliðinn miðvikudag, 5. nóvember, áttu fulltrúar Bændasamtaka Íslands fund með Unu Steinsdóttur, framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Nýja Glitnis, og Birgi Runólfssyni frá lánaeftirliti bankans. Fundarefnið var sú staða sem nú er uppi í fjármálaheiminum og hvernig hún kemur við landbúnaðinn.
Áfram
Sýndu hvað í þér býr - félagsmálafræðsla í vetur
Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt í vetur undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Þessir aðilar skrifuðu í dag undir samstarfssamning þar að lútandi í höfuðstöðvum UMFÍ við Laugaveg 170 í Reykjavík.
Áfram
Fullur vilji hjá Nýja Landsbankanum að hjálpa viðskiptamönnum eins og kostur er
Í dag áttu formaður og framkvæmdastjóri Bændasamtakanna ásamt ráðuneytisstjóra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fund með Elínu Sigfúsdóttur bankastjóra Nýja Landsbankans. Farið var yfir það hvernig efnahagskreppan horfir við landbúnaði...
Áfram
Engin viðskipti með greiðslumark í mjólk
Engin viðskipti voru með greiðslumark í mjólk á tímabilinu 15. september til 15. október. Undanfarin ár hafa viðskipti með greiðslumark á þessum árstíma að jafnaði verið tvö til þrjúhundruð þúsund lítrar. Þessa breytingu má vafalítið rekja til fjármálakreppunar að mati Ernu Bjarnadóttur...
Áfram
Ríkisstjórnin hvetur banka til að frysta myntkörfulán
Í máli ráðunauta sem sinna fjármála- og rekstrarráðgjöf fyrir bændur hefur komið fram að mikilvægt sé að hafa þann möguleika að geta fryst lán. Með því móti ættu rekstraraðilar að hafa betra svigrúm til þess að mæta þeim erfiðleikum sem að steðja vegna efnahagslægðarinnar. Nú hefur ríksstjórn Íslands beint þeim tilmælum til hinna nýju ríkisbanka að þeir frysti afborganir og vexti af myntkörfulánum...
Áfram
Heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum breytist samkvæmt ákvörðun verðlagsnefndar 1. nóvember nk. Heildsöluverð mjólkur í lausu máli verður kr. 79,72 án vsk. á líter en í eins lítra fernum kostar hún 91,47.
Áfram
Afurðastöðvaverð til kúabænda hækkar um 7,13 kr. á lítra mjólkur
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið sameiginlega ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. nóvember nk. um 10,39%. Frá sama tíma hækkar afurðastöðvaverð til bænda um 7,13 kr. á lítra mjólkur. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um kr. 5,90 á hvern lítra.
Áfram
Verð á greiðslumarki mjólkur 2008/2009 - viðskipti með greiðslumark með minnsta móti
Miðað við viðskipti sem tóku gildi nú 1. október sl. og næstu viðskipti þar á undan, að 500.000 lítra lágmarki, er meðalverð á greiðslumarki kr. 297,52 á lítra.
Áfram
Kynning á ítarlegri umsögn BÍ um matvælafrumvarpið
Í nýju Bændablaði er gerð grein fyrir helstu áhersluatriðum í umsögn Bændasamtaka Íslands um svokallað matvælafrumvarp. Til stóð að afgreiða það sem lög frá Alþingi nú á haustþingi en því var frestað. Það hefur í för með sér að ríkisstjórnin verður að endurflytja málið eftir að þing kemur saman til reglulegra vetrarstarfa 1. október næstkomandi.
Áfram
Framleiðsla mjólkur verðlagsárið 2007/2008
Samkvæmt skýrslum um innvigtun mjólkurframleiðenda hjá MS og KS var framleiðsla mjólkur á nýloknu verðlagsári 125.805.155 lítrar. Ótalin er þá innvigtun hjá Mjólku fyrstu 6 mánuði verðlagsársins. Heildargreiðslumark verðlagsársins var hins vegar 117 milljónir lítra.
Áfram
Bændasamtökin hafa skilað umsögn um matvælafrumvarpið
Bændasamtökin skiluðu umsögn til landbúnaðarnefndar Alþingis vegna matvælafrumvarpsins í vikunni. Sem kunnugt er var frumvarpið ekki afgreitt á hinu stutta septemberþingi heldur frestað til haustþings en það hefst 1. okt. næstkomandi. Það þýðir að matvælafrumvarpið verður endurflutt í þinginu og því erfitt að spá fyrir um lyktir málsins.
Áfram
Opinn fundur um málefni sauðfjárræktar og afurðaverð
Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu boðar til opins fundar í Félagsheimilinu Dalabúð, Búðardal, miðvikudaginn 27. ágúst kl. 20:30. Efni fundarins er hækkun aðfanga til sauðfjárbænda og verðskrár fyrir dilkakjöt haustið 2008.
Áfram
Ræktun er menning - bás BÍ á Landbúnaðarsýningunni á Hellu
Starf bóndans á sér margar hliðar. En fyrst og fremst er hann ræktandi. Til þess að nýta landsins gæði, auðlindir okkar og landið er nauðsynlegt að kunna ábyrga nýtingu. Ræktun. Ræktun er nýting á fjölbreyttum möguleikum, hvort sem það er jörðin sjálf eða búféð. Samfélagið nýtur góðs af. Ræktun er menning…
Áfram
Útflutningsskylda dilkakjöts verður 28%
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur, að fengnum tillögum Bændasamtaka Íslands, ákveðið að útflutningshlutfall kindakjöts af fé sem slátrað verður árin 2008-2009, verði 28% á dilkakjöti.
Áfram
Sala á kindakjöti í júlí 21,3% meiri en á sama tíma í fyrra
Framleiðsla á kjöti í júlí var 1.557 tonn, nær óbreytt frá sama tíma í fyrra. Framleiðsla á nautakjöti jókst um 15,1% en framleiðsla á öðrum kjöttegundum dróst lítillega saman. Síðastliðna 12 mánuði hefur framleiðsla á kjöti aukist um 3,8%
Áfram
Fjármagnskostnaður að sliga búrekstur segir formaður BÍ
Í nýju Bændablaði kennir ýmissa grasa að venju en Haraldur Benediktsson formaður BÍ ritar leiðara um erfiða rekstrarstöðu bænda og aðgerðir Bændasamtakanna í þeim efnum. Einnig víkur hann að stöðu WTO-viðræðna og landbúnaði á alþjóðavísu. Blaðið má nálgast í heild sinni á pdf-formi með því að smella hér en leiðarinn er birtur hér á eftir:
Áfram
Innflutningur á kjöti - janúar til apríl 2008
Fyrstu fjóra mánuði ársins voru flutt inn rösklega 580 tonn af kjöti og unnum kjötvörum (2. og 16. kafli tollskrár). Af 158 tonnum af nautakjöti voru rúm 70 tonn af frystum nautalundum. Af frystum kjúklingabringum var búið að flytja inn 155 tonn og 35 tonn höfðu verið flutt inn...
Áfram
Framleiðsla og sala á kjöti í maí
Framleiðsla á kjöti í maí var 1.506 tonn eða 2,5% meiri en í sama mánuði í fyrra. Mest munaði um 4,6% aukningu á framleiðslu svínakjöts (23 tonn) en framleiðsla hrossakjöts var 15,3% meiri en í sama mánuði í fyrra. Síðastliðna 12 mánuði hefur kjötframleiðsla aukist um 5,6%...
Áfram
Lækkun á verði greiðslumarks
Þann 1. júní sl. var gengið frá flutningi á tæplega 180 þúsund lítrum af greiðslumarki milli lögbýla. Meðalverð síðustu 500 þúsund lítra, en að baki þeim eru viðskipti frá 16. febrúar sl., er kr 336,67/lítra...
Áfram
Kjarasamningur á Netinu
Greint var frá því á dögunum að Bændasamtökin og Starfsgreinasambandið hefðu undirritað nýjan kjarasamning um kaup og kjör starfsmanna sem vinna almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Hann er nú aðgengilegur á Netinu á pdf-formi en notendur geta nálgast hann með því að...
Áfram
Framleiðsla og sala á kjöti í apríl
Framleiðsla á kjöti í apríl nam 1.777 tonnum og var 33,4% meiri en í apríl 2007. Framleiðsla jókst á öllum kjöttegundum.
Sala á kjöti var 14,4% meiri en í sama mánuði í fyrra og nam 2.237 tonnum. Mest jókst sala á nautakjöti, um 40%, sem lætur nærri að svara til framleiðsluaukningar í mánuðinum. Næst mest jókst sala á svínakjöti...
Áfram
Bændasamtökin vilja fresta afgreiðslu frumvarps um matvælalög
Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtakanna segir ýmislegt vanta í frumvarp landbúnaðarráðherra um endurskoðun á undanþáguákvæðum Íslendinga vegna upptöku hluta af evrópsku matvælalöggjöfinni. BÍ geti ekki tekið afstöðu til frumvarpsins á grundvelli þeirra takmörkuðu upplýsinga sem liggi fyrir um ýmsa þætti þess.
Áfram
Forseti Alþjóðasamtaka búvöruframleiðenda biðlar til bænda og ríkisstjórna
Jack Wilkinson, forseti Alþjóðasamtaka búvöruframleiðenda (IFAP), skrifar grein í nýjasta tölublað Bændablaðsins þar sem að fram kemur að staðan á matvælabirgðum heimsins hafi ekki verið verri síðan 1974.
Áfram
Þróunarfé sauðfjárræktar
Bændasamtök Íslands auglýsa eftir umsóknum um styrki af þróunarfé sauðfjárræktar. Árlega á gildistíma samningsins skal veita 30 milljónum króna til að styðja kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í greininni t.d. vegna gæðastýringar og lífrænnar framleiðslu.
Áfram
Verð á greiðslumarki mjólkur lítið breytt frá fyrra mánuði
Þann 1. maí n.k. tekur gildi aðilaskipti að ríflega 300 þúsund lítrum af greiðslumarki. Meðalverð miðað við síðustu 525 þúsund lítra er 340,44 kr, lítið breytt frá fyrra mánuði...
Áfram
Framleiðsla og sala á kjöti í mars
Heildarframleiðsla á kjöti í mars var 1.438 tonn og var 5,2% minni en í sama mánuði í fyrra. Heildarkjötframleiðsla síðustu 12 mánuði var 26.989 tonn sem er 4,6% meira en næstu 12 mánuði á undan. Sala á kjöti nam 1.757 tonnum í mánuðinum sem er 9% minna en í sama mánuði í fyrra. Sala á nautkjöti jókst um 6,8% en sala á öðrum kjöttegundum dróst...
Áfram
Verðbólga mælist 8,7% en innlendar landbúnaðarvörur lækka á milli mánaða
Í nýrri vísitölu neysluverðs fyrir marsmánuð kemur fram hækkun um 1,47% sem þýðir að sl. 12 mánuði mælist verðbólga 8,7% í landinu. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað um 6,4% á sama tíma. Verðbólga hér á landi hefur ekki verið jafn mikil frá því í mars 2002 þegar hún mældist einnig 8,7%.
Áfram
Afurðastöðvaverð til bænda hækkar um 14 krónur á lítra
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. apríl n.k. um 14,6%. Frá sama tíma hækkar afurðastöðvaverð til bænda um rúmar 14 kr. á lítra mjólkur. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaðar mjólkur um kr. 2,20 á hvern lítra.
Áfram
Verð á greiðslumarki í mjólk hækkaði um 4,3% á milli mánaða
Verð á greiðslumarki í mjólk í viðskiptum með síðustu 507 þúsund lítra var 341,07 kr/lítra, miðað við viðskipti sem taka gildi 1. apríl nk. Þar með hefur verðið hækkað um 18% frá meðalverði í upphafi yfirstandandi verðlagsárs sem hófst 1. sept. sl.
Áfram
Beingreiðslur í garðyrkju árið 2008
Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur gert áætlun um beingreiðslur í garðyrkju á árinu 2008 á grundvelli áætlana framleiðenda um framleiðslu. Til ráðstöfunar eru 217 m. kr. sem skiptast milli afurða sbr. eftirfarandi:
Áfram
Framleiðsla og sala kjöts í febrúar
Framleiðsla á kjöti var 8% meiri í febrúar 2008 en í sama mánuði árið áður. Mest var framleitt af alifuglakjöti 635 tonn. Af svínakjöti voru framleidd 492 tonn og nautgripakjöti 312 tonn. Framleiðsla kjöts síðustu 12 mánuði var 5,7% meiri en næstu 12 mánuði á undan.
Áfram
Greiðsla á gæðastýringarálagi til sauðfjárbænda
Fyrirframgreiðsla gæðastýringarálags samkvæmt reglugerð nr. 10/2008 var greidd til bænda í dag. Greitt var sem svarar 35% af þeirri fjárhæð sem var heildarálagsgreiðsla framleiðenda á síðasta ári.
Áfram
Nauðasamningar Borgarness kjötvara ehf. - kröfubréf á vefnum
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Héraðsdómur Vesturlands heimilað Borgarness kjötvörum ehf. að ganga til nauðasamninga við sína lánardrottna. Samkvæmt frumvarpi er lánardrottnum boðin greiðsla 40% krafna sinna en þó þannig að lágmarksgreiðsla verður kr. 400 þúsund og kröfur undir þeirri fjárhæð greiðast að fullu.
Áfram