Upplýsingar
Um fjármál Bændasamtaka Íslands
Bændasamtökin eru frjáls félagasamtök og í bókhaldi þeirra er skilið á milli þeirra fjármuna sem koma frá ríkinu vegna búnaðarlagasamnings og fjármuna sem fara í að reka hagsmunabaráttu bænda. Verkefni í gegnum búnaðarlagasamning eru ...
Áfram
Landsráðunautur í alifugla- og svínarækt
Bændasamtök Íslands óska eftir að ráða starfsmann − landsráðunaut − til að veita alhliða fagráðgjöf í alifugla- og svínarækt. Markmið starfsins er að stuðla að aukinni framleiðni, hagkvæmni og eflingu þessara greina landbúnaðarins. Um tímabundið starf er að ræða, til eins árs með möguleika á framlengingu.
Áfram
Stuðningur við nýliðun í kúabúskap
Bændasamtök Íslands, Landssamband kúabænda og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafa gert samkomulag sín á milli um að stofna starfshóp sem hefur það hlutverk að útfæra reglur um stuðning vegna nýliðunar í stétt kúabænda.
Áfram
Opnunartímar skrifstofu BÍ yfir hátíðarnar
Skrifstofur Bændasamtaka Íslands verða opnar sem hér segir yfir hátíðarnar:
- fimmtudagur 22. desember: Lokað
- föstudagur 23. desember, Þorláksmessa: Lokað
- mán. 26. desember: Lokað
Áfram
Fundargerðir stjórnar Bændasamtaka Íslands aðgengilegar
Vakin er athygli á því að fundargerðir stjórnar Bændasamtaka Íslands, frá árinu 2008, eru aðgengilegar hér á vefnum. Yfirlit yfir fundargerðirnar er að finna ...
Áfram
Vegna umræðu um stjórnsýsluverkefni
Fréttastofa Ríkisútvarpsins flutti 26. október sl. frétt um stjórnsýsluverkefni sem Bændasamtök Íslands sinna. Þar kom fram að ekki væri sjáanlegt á framlögðu fjárlagafrumvarpi að flytja ætti verkefni frá BÍ til Matvælastofnunar þrátt fyrir ábendingar þar um frá Ríkisendurskoðun. Í fréttinni er því haldið fram að ríkisvaldið greiði ...
Áfram
BÍ óskar eftir að ráða forritara
Upplýsingatæknisvið Bændasamtaka Íslands óskar eftir að ráða forritara til að vinna að hönnun og smíði næstu kynslóðar vefkerfa. Hjá upplýsingatæknisviði BÍ er unnið að þróun vefkerfa fyrir landbúnað.
Áfram
Julian Cribb: Upptökur og fréttaumfjöllun
Húsfyllir var á fyrirlestri Julian Cribb sem haldinn var í vikunni í höfuðstöðvum Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýri. Hér á vefnum er hægt að nálgast upptökur af fundinum ásamt ýmsum viðtölum og annarri umfjöllun í tengslum við fundinn:
Áfram
"Upp í sveit 2011" dreift í 30 þúsund eintökum
Bæklingurinn „Upp í sveit 2011“ kom út í síðustu viku en í honum eru nákvæmar upplýsingar um bæi sem starfa undir merkjum Ferðaþjónustu bænda, Beint frá býli og Opins landbúnaðar. Upp í sveit er prentaður í 30 þúsund eintökum og er dreift um allt land á helstu ferðamannastöðum í sumar.
Áfram
Bændatorgið komið í notkun
Bændatorg, upplýsingagátt fyrir bændur og ráðunauta, er ný vefþjónusta frá BÍ sem er komin í notkun. Í hægra horninu uppi á bondi.is er hnappur sem heitir "Bændatorg". Þegar smellt er á hann birtist innskráningargluggi inn á Bændatorgið þar sem notendur geta náð í margvíslegar upplýsingar úr sínum búrekstri.
Áfram
Afstaða bænda til ESB-viðræðna kynnt í ríkisstjórn
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem greint er frá því að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi á föstudaginn var kynnt ríkisstjórn Íslands ályktun Búnaðarþings vegna aðildarviðræðna Íslands við ESB.
Áfram
Ráðherra tekur á móti ESB-ályktun
Forsvarsmenn Bændasamtakanna fóru á fund Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í dag og afhentu honum ályktanir Búnaðarþings 2011. Þar á meðal var ályktun um ESB-málin þar sem bændur setja fram varnarlínur...
Áfram
Aðild Íslands að ESB - afstaða BÍ
Búnaðarþingi var slitið á tíunda tímanum í kvöld en meðal síðustu mála kvöldsins var ályktun um ESB-málin og aðkomu bænda að umsóknarferli ríkisstjórnarinnar. Ályktunin hljóðar svo í heild sinni ásamt greinargerð:
Áfram
Matvælaframleiðsla á krossgötum - MYNDBAND
Á setningu Búnaðarþings 2011 var frumsýnt stutt myndband um matvælaframleiðslu í heiminum og þróun hennar. Ágúst Sigurðsson, rektor LbhÍ, og hagfræðingarnir Daði Már Kristófersson og Erna Bjarnadóttir fjalla þar öll um misjöfn áhrif fólksfjölgunar, skort á ræktunarlandi og breytt loftslags- og ræktunarskilyrði á matvælaframleiðslu.
Áfram
Fræðaþingið verður haldið 10.-11. mars
Fræðaþing landbúnaðarins 2011 verður haldið dagana 10. - 11. mars á Hótel Sögu. Þingið er samvinnuverkefni 9 stofnana sem tengjast landbúnaði með einum eða öðrum hætti. Að þessu sinni verður eldgosið í Eyjafjallajökli m.a. í brennidepli en í málstofu um það verður m.a. rætt um áhrif þess á samfélag, búskap, dýralíf og gróður. Viðamikil dagskrá verður um hrossarækt og hestamennsku og horft verður til framtíðar varðandi skógrækt hér á landi.
Áfram
Opnunartími skrifstofu BÍ yfir hátíðarnar
Skrifstofur Bændasamtaka Íslands verða opnar sem hér segir yfir hátíðarnar:
- fimmtudagur 23. desember, Þorláksmessa: Lokað
- föstudagur 24. desember, aðfangadagur: Lokað
- mán. 27. desember: Opið 10:00-16:00
Áfram
Bændafundir framundan
Almennir haustfundir Bændasamtakanna hófust mánudaginn 22. nóvember og standa þeir til 6. desember. Alls verða fundirnir 16 talsins og verða þeir haldnir um allt land. Á fundunum verða m.a. rædd þau tækifæri sem landbúnaðurinn hefur til þess að efla þjóðarhag og hvar sóknarfæri liggja.
Áfram
Bændasamtökin óska frekari skýringa á stöðu landbúnaðar í samningaferlinu við ESB
Bændasamtök Íslands sendu utanríkisráðherra Íslands og utanríkismálanefnd Alþingis bréf þann 22. sept. þar sem þess var krafist að staða landbúnaðarins í samningaferlinu við Evrópusambandið yrði skýrð. Að mati samtakanna hafa bæði stjórnvöld...
Áfram
Tekið verði á skuldavanda bænda á sama hátt og hjá einstaklingum og heimilum
Nauðsynlegt er að staða bænda sem tóku gengisbundin lán sé skýrð hið fyrsta. Eðlilegt sé að skuldamál bænda séu meðhöndluð á sama hátt og skuldamál einstaklinga. Þetta er mat Bændasamtaka Íslands í kjölfar dóms Hæstaréttar frá því í gær þar sem kveðið er á um vaxtakjör á ólöglegum gengisbundnum lánum.
Áfram
Orlofsstyrkir fyrir bændur á öskusvæðunum
Stjórn Orlofssjóðs bænda hefur ákveðið að styðja sérstaklega við bændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Með þessu vill sjóðurinn hvetja bændur og fjölskyldur þeirra á svæðinu til þess að taka sér orlof og hvíla sig fjarri rykmengun og erfiðum verkum.
Áfram
Norskir bændur sýna Íslendingum samstöðu - 7 milljónir íslenskra króna lagðar í styrktarsjóð vegna eldgossins
Norska bændahreyfingin og fleiri fyrirtæki í Noregi hafa ákveðið að styðja við bakið á íslenskum bændum sem hafa orðið fyrir neikvæðum áhrifum af gosinu í Eyjafjallajökli. Þeir hafa lagt 7 milljónir íslenskra króna í sjóð sem Bændasamtökum Íslands er ætlað að ráðstafa til þeirra bænda sem eiga í hlut.
Áfram
Landbúnaður á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli – staða, horfur og aðkallandi aðgerðir
Dagana 11. og 12. maí fóru rúmlega 20 héraðs- og landsráðunautar ásamt fleirum í heimsóknir á 120 bú á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Tilgangurinn var að ræða við bændur og m.a. meta með þeim aðstæður og þörf fyrir aðstoð vegna fóðuröflunar og beitar í vor og í sumar. Úrvinnslu gagna er ekki að fullu lokið úr ferðinni en niðurstöður ættu að liggja fyrir í byrjun næstu viku.
Áfram
Erlend bændasamtök senda íslenskum bændum kveðjur og hvatningarorð
Bændasamtökum Íslands hafa borist kveðjur og hvatningarorð til bænda á Íslandi vegna áhrifa eldgossins í Eyjafjallajökli. Norsku bændasamtökin, Norges bondelag, sendu í dag bréf til BÍ þar sem forsvarsmenn þeirra lýstu yfir stuðningi við þá bændur sem nú berjast við náttúruöflin og bjóða aðstoð sína ef þörf krefur. Þá sendi David King, aðalritari Alþjóðasamtaka búvöruframleiðenda, IFAP, íslenskum bændum góðar kveðjur og ítrekaði samstöðu IFAP með þeim. Kveðjur hafa borist víðar frá erlendum bændum og samtökum þeirra, m.a. frá Finnlandi og Svíþjóð.
Áfram
Aðildarumsókn að ESB - Yfirlýsing Búnaðarþings 2010
Á Búnaðarþingi 2010 var samþykkt yfirlýsing vegna umsóknar stjórnvalda að Evrópusambandinu. Yfirlýsingin er svohljóðandi: Búnaðarþing 2010 ítrekar andstöðu sína við aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þingið lýsir fullum stuðningi við áherslur Bændasamtakanna og felur stjórn BÍ að gæta áfram hagsmuna bænda í hvívetna, vera áfram leiðandi í umræðu um áhrif ESB aðildar á landbúnað og byggja áfram á faglegri þekkingaröflun.
Áfram
Ný stjórn Bændasamtakanna kjörin á Búnaðarþingi
Búið er að kjósa nýja stjórn Bændasamtakanna. Haraldur Benediktsson var kjörinn formaður með öllum greiddum atkvæðum eða 45. Að auki voru kosnir sex fulltrúar í stjórn samtakanna. Alls gáfu ellefu þingfulltrúar kost á sér til stjórnarsetu. Úrslit kosninganna voru þau að Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð fékk 45 atkvæði, Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum fékk 41 atkvæði, Sigurbjartur Pálsson á Skarði fékk 40...
Áfram
Hraun á Skaga og Grænhóll í Ölfusi hljóta landbúnaðarverðlaun
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti bændunum á Hrauni á Skaga og Grænhóli í Ölfusi landbúnaðarverðlauninin 2010. Verðlaunin eru sem áður gripir úr höndum Ívars Björnssonar gullsmiðs og leturgrafara. Ráðherra sagði að tilgangurinn verðlaunanna væri einkum að vekja athygli á því sem vel er gert í landbúnaði.
Áfram
Búnaðarþing 2010 - Aftur kemur vor í dal
Búnaðarþing var sett við hátíðlega athöfn í Bændahöllinni í dag. Þar héldu ávörp Haraldur Benediktsson formaður BÍ, Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Brita Skallerud annar tveggja varaformanna norsku bændasamtakanna Norges bondelag og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís.
Áfram
Búnaðarþing á næsta leiti
Árlegt Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands hefst sunnudaginn 28. febrúar og stendur til miðvikudagsins 3. mars. Búnaðarþing verður sett með viðhöfn á sunnudaginn en yfirskrift setningarathafnarinnar er „Aftur kemur vor í dal“. Í vikunni verða hefðbundin þingstörf þar sem m.a. verður fjallað um mál sem tengjast umsókn stjórnvalda að Evrópusambandinu, jarðalögum, fjármálum bænda og uppbyggingu félagskerfis þeirra.
Áfram
Sendiherrar funduðu um ESB og landbúnað í Bændahöllinni
Hópur sendiherra og starfsmanna sendiráða sem starfa á Íslandi komu til fundar við bændur í Bændahöllinni á dögunum. Það voru Bændasamtökin sem boðuðu til fundarins en tilgangurinn var að kynna íslenskan landbúnað fyrir sendifulltrúunum og afstöðu Bændasamtakanna í ESB-málunum.
Áfram
Alþjóðlegt ár líffræðilegrar fjölbreytni
Í dag er ýtt úr vör Alþjóðlegu ári líffræðilegrar fjölbreytni sem hefur kjörorðin Líffræðileg fjölbreytni er lífið - líffræðileg fjölbreytni er líf okkar. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir bændur um allan heim þar sem líffræðileg fjölbreytni og landbúnaður eru háð innbyrðis; hvort tveggja gegnir einnig lykilhlutverki í loftslags- og fæðuöryggismálum.
Áfram
Norrænir bændur funda í Reykjavík
Samtök norrænna bænda, NBC, halda aðalfund sinn í Reykjavík í þessari viku. Gestir fundarins eru allir helstu forvígismenn bænda á Norðurlöndunum auk þess sem Roger Johnson, formaður bandarísku bændasamtakanna (NFU), heiðrar samkomuna með nærveru sinni. Fundurinn er haldinn á Hótel Sögu og hefst miðvikudaginn 12. ágúst og lýkur föstudaginn 14. ágúst.
Áfram
Bændum er brugðið
Haraldur Benediktsson formaður BÍ ritar leiðara í nýtt Bændablað þar sem hann fjallar um þingsályktun ríkisstjórnarinnar um að sækja um aðild að ESB. Þar gagnrýnir hann harðlega Vinstri græna sem fyrir kosningar lofuðu á bændafundum að þeir myndu standa vörð um sjálfstæði Íslands og lýstu því yfir að ekki yrði sótt um aðild að Evrópusambandinu. Í seinni hluta leiðarans, sem er birtur hér í heild sinni undir, ræðir Haraldur um nýfallinn úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála.
Áfram
Bændafundir vegna breytinga á búvörusamningum
Kynningarfundir um breytingar á gildandi búvörusamningum um starfsskilyrði sauðfjárræktar og mjólkurframleiðslu verða haldnir um allt land á næstu dögum. Fundirnir eru öllum opnir en bændur sem starfa við mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt eru hvattir til að mæta á fundina og kynna...
Áfram
Mikið svigrúm til úrbóta og aukinna sátta um fjallskil
Í kjölfar Búnaðarþings árið 2008 var skipaður starfshópur sem hafði það hlutverk að skoða stjórnvaldsfyrirmæli um fjallskil, dóma og annað sem varðar framkvæmd fjallskila. Hópnum var falið að skilgreina helstu vandamál sem tengjast lögum um afréttarmálefni og fjallskil og framkvæmd þeirra laga.
Áfram
Afgreiðsla mála gengur vel á Búnaðarþingi
Á fundi Búnaðarþings eftir hádegi hófst afgreiðsla mála. Hér á vefnum eru upplýsingar birtar um leið og þær liggja fyrir en í dag voru m.a. afgreidd mál um jafnrétti til náms, aðild að ESB, nettengingar, fjallskil og dýralæknaþjónustu. Dagurinn hefur gengið vel að sögn starfsmanna þingsins. Allnokkrir gestir voru kallaðir fyrir nefndir en nefndafundir voru haldnir fyrir hádegi og seinni part dags.
Áfram
Myndir af opnun Nautastöðvar BÍ
Mikill fjöldi gesta var viðstaddur opnun Nautastöðvar BÍ í síðustu viku. Hér á vefnum eru nú aðgengilegar myndir sem teknar voru við það tilefni af þeim Áskeli Þórissyni, Erlu Hjördísi Gunnarsdóttur og Tjörva Bjarnasyni.
Áfram
Stuðningsyfirlýsing frá norrænum bændasamtökum
Bændasamtökum Íslands hefur borist stuðningsyfirlýsing frá norrænum systurhreyfingum þess. Í yfirlýsingunni lýsa bændasamtök Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands og Noregs sérstakri samstöðu með íslensku bændastéttinni í þeim erfiðu efnahagsaðstæðum sem nú eru uppi í íslensku þjóðfélagi.
Áfram
Bændasamtökin hafa skilað umsögn um matvælafrumvarpið
Bændasamtökin skiluðu umsögn til landbúnaðarnefndar Alþingis vegna matvælafrumvarpsins í vikunni. Sem kunnugt er var frumvarpið ekki afgreitt á hinu stutta septemberþingi heldur frestað til haustþings en það hefst 1. okt. næstkomandi. Það þýðir að matvælafrumvarpið verður endurflutt í þinginu og því erfitt að spá fyrir um lyktir málsins.
Áfram
Ræktun er menning - bás BÍ á Landbúnaðarsýningunni á Hellu
Starf bóndans á sér margar hliðar. En fyrst og fremst er hann ræktandi. Til þess að nýta landsins gæði, auðlindir okkar og landið er nauðsynlegt að kunna ábyrga nýtingu. Ræktun. Ræktun er nýting á fjölbreyttum möguleikum, hvort sem það er jörðin sjálf eða búféð. Samfélagið nýtur góðs af. Ræktun er menning…
Áfram
Opinn landbúnaður - heimsæktu sveitina í sumar!
Alls 32 bæir bjóða almenningi upp á heimsóknir í sveitina í tengslum við verkefnið "Opinn landbúnaður". Bæklingur með upplýsingum um bæina og ýmsum öðrum fróðleik um íslenskan landbúnað er kominn í dreifingu en hann verður m.a. aðgengilegur á þjónustumiðstöðvum...
Áfram
Bændasamtökin og Starfsgreinasambandið undirrita nýjan kjarasamning
Í dag náðist samkomulag um nýjan samning um kaup og kjör starfsmanna sem vinna almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Gildir hann frá 1. maí sl. til loka nóvember 2010. Ýmis nýmæli eru í þessum samningi...
Áfram
Þróunarfé sauðfjárræktar
Bændasamtök Íslands auglýsa eftir umsóknum um styrki af þróunarfé sauðfjárræktar. Árlega á gildistíma samningsins skal veita 30 milljónum króna til að styðja kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í greininni t.d. vegna gæðastýringar og lífrænnar framleiðslu.
Áfram
Hefur þú kynnt þér reglur Orlofssjóðs Bændasamtakanna?
Orlofssjóður BÍ styrkir bændur til orlofs innan lands sem utan. Umsóknum skal skila til sjóðsstjórnar fyrir 15. mars ár hvert á skrifstofu Bændasamtaka Íslands svo umsækjendur þurf að hafa snör handtök. Tilkynning um úthlutun berst umsækjendum fyrir lok apríl ár hvert.
Áfram
Búnaðarþing 2008
Búnaðarþing verður sett sunnudaginn 2. mars og stendur til fimmtudagsins 6. mars. Búnaðarþingsfulltrúar geta nálgast rafræn gögn vegna þingsins á vefslóðinni: www.skrar.bondi.is Notendanafn og lykilorð er fáanlegt á skrifstofu BÍ.
Áfram