Reglur um verðlaunastig

Reglur um verðlaunastig

Reglur um verðlaunastig afkvæmahrossa

Ákvarðanir um verðlaunaveitingar til afkvæmahrossa eru byggðar á niðurstöðum kynbótamats. Verðlaunastigin eru tvö, annars vegar 1. verðlaun og hins vegar heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Nákvæm útlistun á kröfum sem gerðar eru fylgja hér en kröfurnar byggja á kynbótamati aðaleinkunnar og fjölda dæmdra afkvæma:

1. verðlaun fyrir afkvæmi
Stóðhestar:
Stóðhesturinn þarf að ná a.m.k 118 stigum eigi hann 15 til 29 dæmd afkvæmi en séu afkvæmin 30 eða fleiri þá duga 113 stig.
Hryssur:
Hryssan þarf að ná 111 stigum og eiga a.m.k. 5 dæmd afkvæmi.

Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi
Stóðhestar:
Stóðhesturinn þarf að ná 118 stigum hið minnsta og eiga 50 eða fleiri dæmd afkvæmi.
Hryssur:
Hryssan þarf að ná 116 stigum og eiga a.m.k. 5 dæmd afkvæmi.


Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi