Um gæðastýringu í sauðfjárrækt
Drög voru lögð að gæðastýringu í sauðfjárrækt með samningi bænda og ríkisvaldsins árið 2000. Helstu markmiðin voru að bæta sauðfjárbúskap, renna styrkari stoðum undir afkomu sauðfjárbænda og tryggja markaðnum öruggari vörur.
Gæðastýringunni er m.a ætlað að taka til landnotkunar, einstaklingsmerkinga, skýrsluhalds, hirðingar, aðbúnaðar, fóðuröflunar og lyfjanotkunar.
Reglugerð nr. 175/2003 um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu tók síðan gildi 7. mars 2003 og gilti til 31. desember 2007. Þá tók við reglugerð nr. 10/2008 og gildir hún til 31. desember 2013.
Reglugerðin um gæðastýringu í sauðfjárrækt er sett með heimild í lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum.
Glærur
http://www.mediafire.com/?9r75qnbx9wnuguc,93f4mw2wach457s,oogo284ni238tat,gbfclv1td17tc0l,mf8l1nlwbmn4ebi