Glampi frá Vatnsleysu

Glampi frá Vatnsleysu

Landsmót 2006
IS1989158501 Glampi frá Vatnsleysu

Litur: Brúnblesóttur leistóttur
Tölulegar niðurstöður:
Fjöldi dæmdra afkvæma: 39
Öryggi kynbótamats: 96%
Ræktandi: Jón K. Friðriksson
Eigandi: Björn Friðrik Jónsson
Kynbótamat:
Tölt 113
Höfuð 94 Fet 103
Háls,herðar og bógar 102 Brokk 106
Bak og lend 106 Skeið 104
Samræmi 105 Stökk 113
Fótagerð 111 Vilji 111
Réttleiki 104 Hægt tölt 109
Hófar 105 Fegurð í reið 117
Prúðleiki 92 Hæð á herðar 0,5
Aðaleinkunn: 114
Dómsorð:
Glampi gefur meðal hross að stærð með langt og gróft höfuð en vel opin augu. Hálsinn er reistur með háum herðum, mjúkur en djúpur. Bakið er beint en lendin djúp og öflug og hrossin eru fótahá. Fætur eru all góðir með öflugar sinar og þurrir. Afturfætur eru nágengir en réttir í liðum, framfætur útskeifir, hófar djúpir og efnisþykkir en prúðleiki lítill. Afkvæmin eru áberandi hágeng á tölti og brokki, skeiðið gott sé það fyrir hendi og stökkið teygjugott og hátt. Viljinn er ásækinn en þjáll og hrossin fara vel.

Glampi gefur ekki fríð hross en reist og háfætt, jafnt alhliða geng sem klárhross, góður fótaburður er aðalsmerkið. Glampi hlýtur fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og sjötta sætið.


Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi