Landssamtök vistforeldra í sveitum

Landssamtök vistforeldra í sveitum

Landssamtökin vistforeldrar í sveit eru samtök fólks sem tekur að sér börn eða einstaklinga til vistunar gegn gjaldi. Er þá um að ræða sumardvalir, fóstur til lengri eða skemmri tíma, helgardvalir o.fl.

Vistforeldrar búa víða um land. Þau hafa sótt námskeið Landssamtaka vistforeldra í sveitum (LVS), og Endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Félagsmenn eru tilbúnir til að vista börn allt frá einni viku og upp í þrjá mánuði í sumardvöl. Mörg heimilin taka börn í skammtímafóstur.

Vistforeldrar taka við börnum frá einstaklingum jafnt sem félagsmálastofnunum. Ekki er tekið við fleiri börnum en fjórum í senn á hvert heimili. Vistforeldrar bjóða einnig upp á vistun fyrir fatlaða í lengri eða skemmri tíma.


Stjórn


Formaður:

Eva Dögg Þorsteinsdóttir (kosin 2007)
Garðakoti
871 Vík í Mýrdal.
Sími: 4871441, e-mail: fusipall@mi.is


Gjaldkeri:

Kristbjörn Steinarsson (kosin 2005)
Hraunsmúla
311 Borgarnesi
Sími: 4356641, 8626232, e-mail: hraunsmuli@simnet.is


Ritari:

Stefanía Hjördís Leifsdóttir (kosin 2006)
Brúnastöðum
570 Fljótum
Sími: 4671020, fax.4671024, e-mail: brunst@krokur.is


Varastjórn
Sigurður I. Sigurðsson (kosin 2005), Ásta Ólafsdóttir (kosin 2006), Þorsteinn Hafsteinsson (kosin 2007).

Búnaðarþingsfulltrúi: Eva Dögg Þorsteinsdóttir, formaður.

Þeim sem vilja fá nánari upplýsingar er bent á að snúa sér til Halldóru Ólafsdóttur, sími 563 0300.


Bæir sem taka börn til sumardvalar:


Ártún, 861 Hvolsvöllur

Húsráðandi er Halla Bjarnadóttir og á bænum eru þrjú börn á aldrinum 7-13 ára. Um 17 kílómetrar eru á Hvolsvöll en næsti flugvöllur er á Hellu. Á bænum eru 30 kýr, 160 ær, 40 hross, tveir hundar og einn köttur. Símanúmer hjá húsráðanda er 487-5191.


Baugsstaðir 3, 801 Selfoss

Húsráðendur eru Ólafía Guðmundsdóttir og Þórarinn Siggeirsson sem eiga þrjú börn en eitt þeirra, Sjöfn, 21 árs, býr á bænum. Frá bænum eru 20 kílómetrar inn á Selfoss og sex kílómetrar inn á Stokkseyri. Á Baugsstöðum 3 eru fimm kanínur, 1 hundur, sex hestar, heimalingar og vonandi hænuungar. Símanúmer hjá húsráðendum eru 565-5353 og 862-5253.


Brúarholt, 531 Hvammstangi

Húsráðendur eru Jón Guðbjörnsson og Oddný Jónsdóttir sem eiga tvær dætur, eina sjö ára og aðra tíu ára gamla. Bærinn er mitt á milli Staðarskála og Hvammstanga um tvo kílómetra frá þjóðveginum. Á bænum eru 300 kindur, fjórir hestar, tveir hundar og tvær kisur. Símanúmer hjá húsráðendum eru 451-2446 og 849-0168.


Miðkot, 861 Hvolsvöllur


Húsráðendur eru Ásdís Kristinsdóttir og Þórir Ólafsson sem eiga uppkomin börn. Miðkot er í Landeyjum um 18 kílómetra frá Hvolsvelli. Á bænum eru kindur, heimalingar, hestar, hundur og kisur. Símanúmer hjá húsráðendum er 487-8542.

Arnbjargarlækur, 311 Borgarnes

Húsráðendur eru Guðrún Jónsdóttir og Davíð Aðalsteinsson sem eiga uppkomin börn. Ekið er um Borgarnes og farið yfir Norðurárbrúnna hjá Baulu. Ekin Borgarfjarðarbrautin þangað til komið er að vegi númer 522. Á Arnbjargarlæk eru rúmlega þrjú hundruð kindur og margir hestar en þar af eru tveir barnahestar. Símanúmer hjá húsráðendum er 435-1275 og 435-1575.


Fréttabréf LVS:

1.tbl. 2007
1.tbl. 2008
2.tbl. 2008

 

Samþykktir Landssamtaka vistforeldra í sveitum


Fundargerðir 2009

Stjórnarfundur 11. janúar

Stjórnarstarf LVS 15. janúar

Stjórnarfundur 12. febrúar

Fundargerð aðalfundar 20. febrúar


Fundargerðir 2008

Aðalfundur Landsamtaka vistforeldra í sveitum 16. febrúar

Stjórnarfundur 8. janúar 2008

Stjórnarfundur 16. janúar 2008

Stjórnarfundur/símafundur 6. febrúar 2008

Stjórnarfundur LVS og formanns félags Fósturforeldra þann 16. febrúar 2009

Stjórnarfundur LVS 17. mars 2008

Stjórnarfundur LVS 3. apríl 2008

Stjórnarfundur LVS 10. apríl 2008

Fundur stjórnar LVS með fulltrúum Bændasamtaka Íslands


Fundargerðir 2007

Símafundur stjórnar 27. janúar 2007

Símafundur stjórnar 29. janúar 2007

Símafundur stjórnar 28. febrúar 2007

Símafundur stjórnar 14. mars 2007

Símafundur stjórnar 18. apríl 2007

Símafundur stjórnar 9. nóvember 2007





 



Tungumál


Leturstærðir


Leit og innskráning

  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi