Nautgriparæktarráðstefna - nóv. 2011
Ráðstefna um nautgriparækt – kynbætur og aðbúnaður
Fagráð í nautgriparækt stóð fyrir ráðstefnu 30. nóvember 2011 þar sem tekin voru fyrir málefni er tengdust kynbótastarfi í nautgriparækt. Á ráðstefnunni sem haldin var í Bændahöllinni var m.a. rætt um árangur kynbótastarfsins, breytingar á áherslum í ræktunarstarfinu á undanförnum árum, nýjungar í kynbótum og nýjar leiðir, kynbætur á grundvelli upplýsinga um erfðamengi, árangur skipulagðrar blendingsræktar, ræktunarstarf í nálægum löndum o.fl.
Hér eru aðgengilegar glærur og annað fylgiefni frá ráðstefnunni:
Ræktunarárangur síðustu 30 ára - yfirlit Ágúst Sigurðsson og Jón Viðar Jónmundsson.
Ræktunarmarkmið íslenska kúakynsins Guðný Helga Björnsdóttir
Blendingsrækt í nautakjötsframleiðslu Þóroddur Sveinsson.
Erfðafjölbreytileiki í íslenska kúastofninum Margrét Guðrún Ásbjarnardóttir
Þróun skyldleikaræktar í íslenska kúastofninum Þorvaldur Kristjánsson
Nýungar á sviði frjósemis- og sæðingamála Baldur Helgi Benjamínsson
Kynbætur fyrir frjósemi -staða og framtíðarmöguleikar (glærur) Texti. Magnús B. Jónsson, Gunnfríður E. Hreiðarsdóttir, Jóna B. Hlöðversdóttir og Jóna Þ. Ragnarsdóttir.
Velferð kúa í lausagöngufjósum Grétar Hrafn Harðarson
Hagkvæmni ræktunarstarfs - samspil erfða og umhverfis Daði Már Kristófersson.
Kynbætur með stuðningi erfðamarka / arfgerðargreininga Gunnfríður E. Hreiðarsdóttir
Framtíðarræktunarmarkmið í íslenskri nautgriparækt Gunnfríður E. Hreiðarsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Ending íslenskra mjólkurkúa - helstu áhrifaþættir Baldur Helgi Benjamínsson