Sjúkrasjóður BÍ

Sjúkrasjóður BÍ

Á stjórnarfundi Bændasamtaka Íslands sem haldinn var 9. júní 2004 voru samþykktar reglur fyrir Sjúkrasjóð Bændasamtaka Íslands. Tekjur sjóðsins eru sérstakar fjárveitingar samkvæmt ákvörðun Búnaðarþings hverju sinni. Stofnfjárveiting, sem veitt var á Búnaðarþingi 2004, voru 10 milljónir króna. Einnig er sjóðnum heimilt að taka við gjöfum og framlögum.

Markmið sjóðsins er að styrkja sjóðfélaga vegna langvarandi veikinda og tekjutaps vegna þeirra. Æðsta vald sjóðsins er stjórn Bændasamtaka Íslands. Framkvæmdastjórn hans skipa Gylfi Þór Orrason skrifstofustjóri, Erna Bjarnadóttir forstöðumaður félagssviðs og Ásdís Kristinsdóttir fulltrúi. Réttindi til greiðslna úr sjóðnum hafa þeir félagar í Bændasamtökum Íslands og makar þeirra sem stunda búrekstur á lögbýlum.

Greitt skal úr sjóðnum vegna langvarandi veikinda og meðfylgjandi tekjutaps og/eða kostnaðar af þeirra völdum. Skal miðað við að veikindin hafi staðið yfir í a.m.k. tvo mánuði. Langvarandi veikindi barna félagsmanna, sem sannanlega hafa tekjutap og/eða kostnað í för með sér, geta skapað sömu réttindi. Aldrei skal greiða úr sjóðnum lægri styrk en sem nemur einum mánuði eða hærri styrk en sem nemur 3 mánuðum samfleytt. Mánaðargreiðslur vegna tekjutaps skulu vera að hámarki kr. 143.000,- á mánuði fyrir hvern heilan mánuð eða hlutfall þar af. Heimilt er að greiða úr sjóðnum vegna útlagðs kostnaðar enda sé framvísað reikningum eða öðrum fullnægjandi gögnum. Þá er og heimilt í einstökum tilfellum að taka tillit til sérstakra erfiðra aðstæðna umsækjenda.

Reglur sjúkrasjóðs Bændasamtaka Íslands

Umsóknareyðublað fyrir sjúkrasjóð BÍ



Tungumál


Leturstærðir


Leit og innskráning

  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi