Bjargráðasjóður
Bjargráðasjóður er sjálfstæð stofnun, að jöfnu í sameign ríkisins og Bændasamtaka Íslands. Sjóðurinn hefur aðsetur á skrifstofum Bændasamtaka Íslands.
Bjargráðasjóður byggir starfsemi sína á lögum um Bjargráðasjóð nr. 146/1995. Bjargráðasjóður skiptist í tvær deildir, almenna deild og búnaðardeild, og er hlutverk deildanna mismunandi.
Almenn deild
Samkvæmt 8. gr. laga um Bjargráðasjóðs er það hlutverk almennu deildar sjóðsins að veita einstaklingum, félögum og sveitarfélögum fjárhagsaðstoð til að bæta bein tiltekin tjón af völdum náttúruhamfara. Skilgreint er í lögunum hvaða tjón er um að ræða sem getur m.a. verið eftirfarandi:
• Tjón á gjaldskyldum fasteignum samkvæmt skilgreiningu laga um tekjustofna sveitarfélaga.
• Tjón á landsvæðum, götum og gangstéttum sveitarfélaga.
• Tjón á girðingum, túnum og rafmagnslínum er tengjast landbúnaði.
• Tjón á vélum, tækjum, heyi og áhöldum sem notuð eru við landbúnaðarframleiðslu og/eða við starfsemi sveitarfélaga.
• Tjón vegna grasbrests, óvenjulegra kulda, þurrka, óþurrka og kals.
Búnaðardeild
Samkvæmt 9. gr. laga um Bjargráðasjóð er það hlutverk búnaðardeildar sjóðsins að bæta eftirfarandi tjón:
• Tjón á búfé og afurðum búfjár.
• Uppskerutjón á garðávöxtum.
• Tjón af völdum sjúkdóma, óvenjulegs veðurfars og slysa þegar ásetningi eða gáleysi eiganda eða umsjónarmanns verður eigi um kennt eða eðlilegar varnir hafa verið við hafðar.
• Ennfremur er stjórn sjóðsins heimilt að styrkja úr búnaðardeildinni fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir tjón sem Bjargráðasjóði ber að bæta.
Umsóknir um styrki úr Bjargráðasjóði skal senda á þar til gerðum eyðublöðum, sem liggja frammi hjá búnaðarsamböndum og hjá oddvitum og ráðunautum, til skrifstofu sjóðsins í Bændahöllinni við Hagatorg í Reykjavík innan árs frá því að tjón átti sér stað.
Stjórnin er þannig skipuð:
Aðalmenn:
- Hildur Traustadóttir
- Eiríkur Blöndal
- Jóhannes Sigfússon
Varamenn:
- Ólafur Friðriksson
- Karl Kristjánsson
- Sveinn Ingvarsson
Framkvæmdastjóri Bjargráðasjóðs er Árni Snæbjörnsson, netfang bjargradasjodur@bondi.is, sími 563-0300
Reglur um aðstoð Bjargráðasjóðs vegna tjóns af völdum öskufalls og flóða vegna eldgoss - pdf
Eldri eyðublöð
Umsóknareyðublað - vegna búfjártjóna (pdf-skjal)
Umsóknareyðublað (bakhlið) - pdf-skjal
Umsóknareyðublað vegna kaltjóna 2007 (Excel-skjal)
Nánari upplýsingar um Bjargráðasjóð, úthlutunarreglur, lög sjóðsins og reglugerð (í uppfærslu)
Verðlagning tjóna í sauðfjár- og nautgriparækt.